Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 43
FÓKUS - VIÐTAL 4317. maí 2019 vinnur „svolítið í þessum radíus hérna,“ segir hún og teiknar hring í kringum sig. Hún var einkabarn í níu ár, þar til Vigdís Perla, systir hennar, fæddist. „Við höfum alltaf verið mjög nánar og erum mjög líkar, en það munar alveg þessum níu árum þannig að það var aldrei samkeppni um sömu athyglina eða neitt svoleiðis, og ég fékk snemma að bera ábyrgð á henni sem var ótrúlega gaman. Og núna býr hún í London og það er ógeðs- lega erfitt!“ Margrét segir foreldra sína ólíka, en mjög samstíga. Móðir hennar, Ragnheiður Ólafsdóttir, starfar sem miðasölustúlka í Þjóð- leikhúsinu og sem blómasölu- dama í Kópavogi. „Hún er stór- kostleg og maður skilur ekki að þetta stóra hjarta komist fyrir í þessum kropp sem hún hefur. Hún er mamma allra, öll mín frændsystkin mömmu megin eru börnin hennar, ég kem í heim- sókn og það er alltaf einhver í heimsókn hjá henni. Vinir systur minnar koma í heimsókn til að drekka viskí með henni, sem er furðulegt og geggjað á sama tíma. Mamma er ofsalega mannglögg og skemmtileg, henni finnst gam- an að gefa fólki að borða og er of- boðslega nærandi manneskja.“ Faðir Margrétar, Pjetur Þ. Maack, er prestur og aðspurð hvort hún hafi ekki viljað fara í hempuna eins og hann svarar hún að þau séu í sama bransa. „Við erum bæði að kenna fólki að njóta sköpunarverksins á mismunandi hátt. Ég er ekki sérstaklega trú- uð, en ég er alin upp í miklum kærleika og kristilegum gildum, trúnni var aldrei troðið upp á mig. Mér var frekar kennd sú upplifun að trú sé hjálpartæki og geti hjálp- að fólki mikið, eins og í gegnum sorg, fíkn og aðra erfiðleika. Og ég fann svona að pabbi vonaði að ég þyrfti kannski ekkert á trúnni að halda, sem mér finnst mjög fallegt uppeldi.“ Kynntist sveitastrák á Tinder Sjálf er Margrét búin að stofna eigin fjölskyldu, en hún kynntist kærastanum, Tómasi Steindórs- syni, á Tinder og á það vinkonu sinni að þakka, sem tók af henni símann og lækkaði aldursmörk- in í stefnumótaappinu. „Hann er góður, mjúkur sveitakall frá Hellu, ógeðslega fyndinn. Hann er stór og mikill, eins og hoppukastali í körfuboltabúningi og að sjá mann hlaupa á hann er það fyndnasta sem ég veit. Ég fæ enn hláturskast þegar sé lappirnar hans í rúminu; „er þessi stærð til af manneskju?““ Tómas er með fleiri en einn bolta á lofti líkt og Margrét, hann starfar hjá Billboard, þar sem hann selur auglýsingar á strætó- skýli og skilti, en er aðallega í því að laga þau, er plötusnúður, sér um pubquiz og spilar körfu með Breiðablik. „Hann er fastur í 9–5 vinnunni og finnst erfiðast hvað ég er oft erlendis því hann á erfitt með að fá frí og koma með.“ Þau hafa verið saman í tvö og hálft ár og hittust á sínu fyrsta og eina stefnumóti eftir að hafa spjall- að í tvær vikur á Tinder og reynt að finna tíma til að hittast. „Það var náttfatapartí heima hjá mér þar sem við horfðum á Útsvar með kíló af nammi. Við ákváðum strax að byrja saman, vorum ákveðin í samband og hann flutti inn,“ segir Margrét. „Tómas er öðruvísi en aðrir sem ég hef verið með, honum finnst ekkert mál að ég þéni suma mánuði meira en hann, að ég sé áberandi eða að ég vinni við það sem ég geri. Fyrri kærastar heill- uðust oft af mér af því að ég var að gera svo mikið, af því að ég var skemmtikraftur og plötusnúður, svo spurðu þeir hvenær ég ætlaði að hætta þessu. Ég held að enginn segi svona af væntumþykju, en kannski vantaði einhverja bara ástæðu til að hætta með mér. Ég dýrka vinnuna mína, hún er hluti af persónuleika mínum og Tómasi finnst hún snilld. Tómas er allur pakkinn.“ Ófrísk með Instagram-öfund Parið á von á barni í lok septem- ber og þegar Margrét er spurð hvað hún sé langt gengin, tekur hún upp símann og skoðar daga- talið. „Ég er svo léleg í þessu, ég er með Instagram-öfund og er búin að henda öllum út sem eiga von á barni. Ég er ekki byrjuð að tengja eða byrjuð á hreiðurgerð. Ég er að fara í rannsókn á morgun og fæ þá að vita kynið og þá vonast ég til að tengja betur við barnið, þegar ég get kallað það hann eða hana, ekki það. Ég er örlítið kvíðin fyrir þessu, að tengja aldrei, það kemur en ég er samt; „hvað ef það kemur ekki?“ Þetta er búið að ganga vel, ég var gengin átta vikur þegar ég vissi að ég var ófrísk. Ég er enn þá að kenna, nýkomin úr Evróputúr, er að fara til Brighton um helgina og svo til New York í lok maí. Þetta er ekkert mál og ég er mjög heppin,“ segir Margrét, sem hefur reynslu af meðgöngu. „Ég hef bæði farið í fóstureyðingu og misst fóstur, og áður var mjög mikil vanlíðan, uppköst og grindargliðnun.“ Viðtalið er tekið sama dag og ný lög um þungunarrof voru sam- þykkt á Alþingi. Margrét hefur sterkar skoðanir á málefninu og segir að hún sjái það mjög skýrt að engin kona komin jafn langt á leið og hún velji fóstureyðingu að gamni sínu. „Það er engin sem fer á þessum tíma, nema það sé að- kallandi og félagslegar og líkam- legar ástæður liggi að baki.“ Margrét skráði sig úr Þjóðkirkj- unni eftir að grein Agnesar M. Sig- urðardóttur um þungunarrof birt- ist í Morgunblaðinu. „Ég hef gefið Þjóðkirkjunni mikinn séns í gegn- um tíðina af því að pabbi minn er prestur, en ég skráði mig úr henni núna. Grein Agnesar er miðalda- kjaftæði, þar sem hún tjáir sig ekki sem kona, heldur sem biskup. Það er fjöldi frábærra presta starfandi, en þarna er risaeðla talsmaður kirkjunnar. Ég verð svo reið, pabbi sagði mér um daginn að skoða ekki í pakkann og fá ekki að vita kynið á barninu. Ég svaraði að þegar hann og karlar á hans aldri myndu byrja að ganga með börn gætu þeir tjáð sig um leg kvenna, ekki núna.“ Á undan barni kemur Búkalú Áður en haustar og Margrét fer að undirbúa komu frumburðar- ins leggur hún land undir fót með sumarferðalagið Búkalú. Það var leikarinn Örn Árnason sem stakk upp á nafninu og stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon sam- þykkti um hæl. „Lagið virkar full- komlega undir stikluna sem ég er að klippa núna, en Jakob sagði mér að búkalú væri einhver sixtís lífs- og dansstíll. Sara vinkona kom svo með Lönd og lendar-setninguna. Með Margréti verða þekktir skemmtikraftar frá New York og hún segist spennt fyrir að fara með þá í alls konar rými á landsbyggð- inni. Svo spyrja þau hvar við mun- um gista og ég svara til dæmis með að við munum gista hjá Röggu vin- konu minni, og svo ætli nágranni hennar að lána okkur sitt hús og það verði bara opið. Nei, ég þekki nágrannann ekkert, er eitthvert ykkar með ofnæmi fyrir kanínum? Það verður geggjað að fara með Kana í þennan íslenska veruleika þar sem allir eru vinir, allir eru skyldir og fólk bara treystir manni.“ Ætlar þú að vera í þessum bransa áfram þar til þú ferð á eftir laun? „Ég veit það ekki. Öll móður- fjölskylda mín er skemmtikraftar og listafólk, þannig að það gæti verið, en svo fæ ég kannski leiða á þessu.“ Blaðamaður stingur upp á að viðburðastjórnun gæti tekið við. „Já, og að opna kabarettklúbb- inn. Eina fasta vinnan sem ég hef haft er fjölmiðlavinnan, sem er náttúrulega óöruggasta starfsum- hverfi sem þú finnur núna. Í dag veit ég nákvæmlega hvernig ég er að fara að borga leiguna mína til áramóta og ég er byrjuð að bóka þorrablót og veislustjórn á næsta ári. Ég var aldrei þar þegar ég vann við fjölmiðla, ég veit hvar ég verð næsta árið og það er mun meiri lúxus en margir lifa við og ef eitt- hvað kemur upp á, þá get ég alltaf kennt fleiri danstíma í Kramhús- inu. „En ég veit ekki hvernig týpa þetta er sem ég er að fæða í þenn- an heim, kannski er þetta barn sem enginn vill passa og þá er ég bara í djúpum skít, þótt ég sé ekki ein að eiga það.“ n Hádegis tilboð alla virka daga frá 11.30 - 14.00 Geirsgötu 8 • 553 1500 2.850 kr Humarsúpa & grillað fiskspjót „Ég dýrka vinnuna mína, hún er hluti af persónuleika mínum“ Kærastinn Tómas Margrét og sveitastrákurinn sem flutti inn á fyrsta stefnumóti. Kaupmannahöfn Margrét í nýafstöðnum Evróputúr. Mynd: Gaia Micotovich
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.