Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 52
52 17. maí 2019
Tímavélin Gamla auglýsinginMánudagsblaðið 14. maí 1973
M
ánudagsblaðið naut mik
illar sérstöðu í íslenskri
blaðaflóru um áratuga
skeið. Blaðið var gróft
og fréttirnar oft byggðar á sögu
sögnum. Þetta var einkennilegur
bræðingur af kynferðislegum, og
jafnvel klámfengnu efni, og sterkri
umfjöllun um hámenningu. Að
mestu leyti var blaðið skrifað af
einum manni, Agnari Bogasyni,
sem var mjög hægrisinnaður og
íhaldssamur.
Hægriblað
Agnar Bogason gaf Mánudags
blaðið út í rúmlega þrjá áratugi.
Hann var fæddur í Reykjavík árið
1921 og uppalinn í miðbænum.
Agnar útskrifaðist sem stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1940 og hélt þá vestur til Banda
ríkjanna til þess að nema tann
lækningar. Hann skipti þá um
gír og lauk háskólagráðu í fjöl
miðlafræði í Chicago árið 1946.
Þegar hann sneri aftur heim var
hann stuttan tíma á Morgunblað
inu en stofnaði Mánudagsblaðið
árið 1947.
Eins og nafnið gefur til kynna
var Mánudagsblaðið vikublað og
kom út á mánudögum. Það skar
sig verulega úr flórunni á þess
um tíma fyrir efnistök og orðnotk
un. Mætti segja að blaðið hafi ver
ið það fyrsta hérlendis sem telst til
gulu pressunn
ar. En á þessum
tíma voru öll stóru
dagblöðin í eigu
stjórnmálaflokkanna og
íhaldssöm í sinni framsetn
ingu. Agnar var vissulega hægri
sinnaður og faldi það ekki, en
blaðið var óháð og ekki bundið
Sjálfstæðisflokknum eða neinum
öðrum stjórnmálaflokki.
Í fyrsta tölublaðinu, sem kom
út þann 4. október árið 1948, stóð:
„Enginn pólitískur flokkur né
einstaklingur stendur á bak við
ritstjórnina til þess að hafa áhrif á
stefnu hennar eða hvað má birta
og hvað ekki. Blaðið mun leitast
við að verða lesendum bæði til
gagns og fróðleiks og birta greinar
sem snerta almenningshag.“
Strax á fyrstu tölublöðunum
sást hins vegar hvar hollustan lá,
bæði í innanlandsmálum og utan
landsteinanna. Með borgaraleg
um öflum og gegn vinstrinu.
Æsifréttablað
Mánudagsblaðsins verður hins
vegar ekki minnst fyrir þá pólit
ísku afstöðu sem tekin var. Held
ur fyrir fréttir úr daglegu lífi Ís
lendinga, oft fréttir úr sollinum.
Voru fyrirsagnirnar og fréttirnar
sjálfar yfirleitt skrifaðar í æsifrétta
stíl sem var Íslendingum fram
andi á þeim tíma en var þekktur í
Bandaríkjunum. Mikið var skrifað
um áfengisdrykkju og lögreglumál
henni tengd. Agnar skrifaði sjálfur
stærstan hluta blaðsins, og aug
sjáanlegt að hann var vel tengd
ur inn í bæjarlífið, hjá leigubíl
stjórum, vertum og fleiri stéttum.
Sjálfur viðurkenndi Agnar að hafa
drukkið ótæpilega sjálfur.
Fréttirnar báru þess merki að
hann hefði heyrt þetta og hitt frá
félögum sínum. Oft voru stórar
fullyrðingar um hvernig hinir og
þessir hópar höguðu sér án þess
að það væri skýrt neitt frekar. Sem
dæmi má nefna langa grein frá 20.
apríl árið 1970 þar sem fullyrt er
að nemendur Verzlunarskólans
hafi allir stundað gegndarlausa
fíkniefnaneyslu og stóðlífi og það
með blessun skólastjórans.
Klámblað
Þegar líða tók á fóru kynferðis
mál að verða áberandi á síðum
blaðsins og orðið stóðlífi kom
glettileg oft fyrir. Ein frétt frá 1.
október árið 1973 lýsir Mánudags
blaðinu vel og hvernig fréttir þar
voru unnar.
„Til eru í Reykjavík eiturlyfja
klúbbar, eins og allir vita. Kunn
ingi okkar lenti þar á dögunum og
sagði sínar farir ekki sléttar. Hann
brúkar ekki hass eða annað slíkt
og var litinn hornauga fyrir bragð
ið. Út yfir tók þó þegar „gestirn
ir“, allir í kringum 15–18 ára, bæði
kynin, hófu upp stóðlífi þarna,
blönduðust hvert innan um ann
að og voru þar á ýmsum stigum
samfara eða öðrum ástarleikjum.
Hann sagði að þau hefðu verið al
veg blygðunarlaus og ekkert haft á
móti, þótt þeir sem ekki tóku þátt,
horfðu á.“
Þrátt fyrir þessa heilögu vand
lætingu greinarhöfundar var sí
fellt kjamsað á kynferðislegum
málum. Einnig birtust í auknum
mæli nektarmyndir, og þá helst
af konum og ekki var hikað við að
birta slíkar myndir á forsíðunni. Á
áttunda áratugnum má eiginlega
segja að blaðið hafi verið gegn
sýrt af kynferðislegum málum og
hreinlega klámfengið.
Menningarblað
Það sem stingur helst í stúf þegar
gömlum tölublöðum af Mánu
dagsblaðinu er flett, er hin mikla
menningarumfjöllun sem þar
tíðkaðist. Innan um djarfar ljós
myndir, upphrópanir um komm
únista og blammeringar á
drykkjumenningu unga fólksins
má finna gagnrýni í löngu máli
og skrifaða af talsverðri þekkingu
um Ibsen, Shakespeare, Dalí og
Woody Allen.
Leiklistargagnrýnin var ávallt
hornsteinninn í menningarum
fjöllun Mánudagsblaðsins og það
sem skilaði sér hvað best út í sam
félagið. Agnar sjálfur var í félagi
leikdómara hjá Reykjavíkurblöð
unum og sinnti skrifum um leik
list lengur en flestir aðrir. Félagið
veitti verðlaunin Silfurlampann til
þeirra sem þóttu hafa skarað fram
úr í leiklist á hverju ári. Voru þau
verðlaun undanfari Grímunnar.
En leiklist fékk ekki allt rýmið.
Í Mánudagsblaðinu mátti einnig
finna mikla umfjöllun um kvik
myndir, sjónvarpsþætti, mynd
list, dans og sér í lagi bókmenntir.
Þessi umfjöllun gat verið mjög
harkaleg á köflum og listamenn
fengið rækilega á baukinn ef Agn
ari fannst þeir ekki standa sig
í stykkinu. Varð gagnrýnin oft
mjög umtöluð í þjóðfélaginu þó
að blaðið sjálft þætti ekki mjög
fínt. Sjálfsagt hafa margir menn
ingarvitar laumast í skjóli myrkurs
til þess að kaupa blaðið og ekki
sagt nokkrum manni frá því.
Fátækari en kirkjurotta
Fram til ársins 1970 voru að jafnaði
prentuð um tólf þúsund eintök af
Mánudagsblaðinu. Þá byrjaði salan
að dala. Í viðtali við Vikuna árið
1979 greindi Agnar frá því að hann
hefði fengið heilablóðfall árið 1974
og lamast hægra megin í líkaman
um. Hann varð óvinnufær í heilt
ár og útgáfan var stopul eftir það.
Þegar viðtalið var birt var upplagið
komið niður í þrjú þúsund eintök.
„Nú er ég líka fátækari en nokk
ur kirkjurotta, þrátt fyrir 20 ára út
gáfustarf. Ég væri líklega stórríkur
maður núna ef ég hefði haldið
áfram í tannlækningunum en það
átti ekki við mig að hanga yfir gap
andi kjöftum,“ sagði Agnar.
Síðasta tölublaðið kom út þann
20. desember árið 1982. Agnar lést
tæpu ári síðar. n
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu flottar innréttingar
í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Mánudagsblaðið var djarft,
klámfengið og menningarlegt
n Fyrsta gula blaðið n Nektarmyndir á forsíðu
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Agnar
Bogason
Skar sig úr fjöl-
miðlaflórunni.
Mánudagsblaðið 6. október 1969.