Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 52

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 52
52 17. maí 2019 Tímavélin Gamla auglýsinginMánudagsblaðið 14. maí 1973 M ánudagsblaðið naut mik­ illar sérstöðu í íslenskri blaðaflóru um áratuga skeið. Blaðið var gróft og fréttirnar oft byggðar á sögu­ sögnum. Þetta var einkennilegur bræðingur af kynferðislegum, og jafnvel klámfengnu efni, og sterkri umfjöllun um hámenningu. Að mestu leyti var blaðið skrifað af einum manni, Agnari Bogasyni, sem var mjög hægrisinnaður og íhaldssamur. Hægriblað Agnar Bogason gaf Mánudags­ blaðið út í rúmlega þrjá áratugi. Hann var fæddur í Reykjavík árið 1921 og uppalinn í miðbænum. Agnar útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1940 og hélt þá vestur til Banda­ ríkjanna til þess að nema tann­ lækningar. Hann skipti þá um gír og lauk háskólagráðu í fjöl­ miðlafræði í Chicago árið 1946. Þegar hann sneri aftur heim var hann stuttan tíma á Morgunblað­ inu en stofnaði Mánudagsblaðið árið 1947. Eins og nafnið gefur til kynna var Mánudagsblaðið vikublað og kom út á mánudögum. Það skar sig verulega úr flórunni á þess­ um tíma fyrir efnistök og orðnotk­ un. Mætti segja að blaðið hafi ver­ ið það fyrsta hérlendis sem telst til gulu pressunn­ ar. En á þessum tíma voru öll stóru dagblöðin í eigu stjórnmálaflokkanna og íhaldssöm í sinni framsetn­ ingu. Agnar var vissulega hægri­ sinnaður og faldi það ekki, en blaðið var óháð og ekki bundið Sjálfstæðisflokknum eða neinum öðrum stjórnmálaflokki. Í fyrsta tölublaðinu, sem kom út þann 4. október árið 1948, stóð: „Enginn pólitískur flokkur né einstaklingur stendur á bak við ritstjórnina til þess að hafa áhrif á stefnu hennar eða hvað má birta og hvað ekki. Blaðið mun leitast við að verða lesendum bæði til gagns og fróðleiks og birta greinar sem snerta almenningshag.“ Strax á fyrstu tölublöðunum sást hins vegar hvar hollustan lá, bæði í innanlandsmálum og utan landsteinanna. Með borgaraleg­ um öflum og gegn vinstrinu. Æsifréttablað Mánudagsblaðsins verður hins vegar ekki minnst fyrir þá pólit­ ísku afstöðu sem tekin var. Held­ ur fyrir fréttir úr daglegu lífi Ís­ lendinga, oft fréttir úr sollinum. Voru fyrirsagnirnar og fréttirnar sjálfar yfirleitt skrifaðar í æsifrétta­ stíl sem var Íslendingum fram­ andi á þeim tíma en var þekktur í Bandaríkjunum. Mikið var skrifað um áfengisdrykkju og lögreglumál henni tengd. Agnar skrifaði sjálfur stærstan hluta blaðsins, og aug­ sjáanlegt að hann var vel tengd­ ur inn í bæjarlífið, hjá leigubíl­ stjórum, vertum og fleiri stéttum. Sjálfur viðurkenndi Agnar að hafa drukkið ótæpilega sjálfur. Fréttirnar báru þess merki að hann hefði heyrt þetta og hitt frá félögum sínum. Oft voru stórar fullyrðingar um hvernig hinir og þessir hópar höguðu sér án þess að það væri skýrt neitt frekar. Sem dæmi má nefna langa grein frá 20. apríl árið 1970 þar sem fullyrt er að nemendur Verzlunarskólans hafi allir stundað gegndarlausa fíkniefnaneyslu og stóðlífi og það með blessun skólastjórans. Klámblað Þegar líða tók á fóru kynferðis­ mál að verða áberandi á síðum blaðsins og orðið stóðlífi kom glettileg oft fyrir. Ein frétt frá 1. október árið 1973 lýsir Mánudags­ blaðinu vel og hvernig fréttir þar voru unnar. „Til eru í Reykjavík eiturlyfja­ klúbbar, eins og allir vita. Kunn­ ingi okkar lenti þar á dögunum og sagði sínar farir ekki sléttar. Hann brúkar ekki hass eða annað slíkt og var litinn hornauga fyrir bragð­ ið. Út yfir tók þó þegar „gestirn­ ir“, allir í kringum 15–18 ára, bæði kynin, hófu upp stóðlífi þarna, blönduðust hvert innan um ann­ að og voru þar á ýmsum stigum samfara eða öðrum ástarleikjum. Hann sagði að þau hefðu verið al­ veg blygðunarlaus og ekkert haft á móti, þótt þeir sem ekki tóku þátt, horfðu á.“ Þrátt fyrir þessa heilögu vand­ lætingu greinarhöfundar var sí­ fellt kjamsað á kynferðislegum málum. Einnig birtust í auknum mæli nektarmyndir, og þá helst af konum og ekki var hikað við að birta slíkar myndir á forsíðunni. Á áttunda áratugnum má eiginlega segja að blaðið hafi verið gegn­ sýrt af kynferðislegum málum og hreinlega klámfengið. Menningarblað Það sem stingur helst í stúf þegar gömlum tölublöðum af Mánu­ dagsblaðinu er flett, er hin mikla menningarumfjöllun sem þar tíðkaðist. Innan um djarfar ljós­ myndir, upphrópanir um komm­ únista og blammeringar á drykkjumenningu unga fólksins má finna gagnrýni í löngu máli og skrifaða af talsverðri þekkingu um Ibsen, Shakespeare, Dalí og Woody Allen. Leiklistargagnrýnin var ávallt hornsteinninn í menningarum­ fjöllun Mánudagsblaðsins og það sem skilaði sér hvað best út í sam­ félagið. Agnar sjálfur var í félagi leikdómara hjá Reykjavíkurblöð­ unum og sinnti skrifum um leik­ list lengur en flestir aðrir. Félagið veitti verðlaunin Silfurlampann til þeirra sem þóttu hafa skarað fram úr í leiklist á hverju ári. Voru þau verðlaun undanfari Grímunnar. En leiklist fékk ekki allt rýmið. Í Mánudagsblaðinu mátti einnig finna mikla umfjöllun um kvik­ myndir, sjónvarpsþætti, mynd­ list, dans og sér í lagi bókmenntir. Þessi umfjöllun gat verið mjög harkaleg á köflum og listamenn fengið rækilega á baukinn ef Agn­ ari fannst þeir ekki standa sig í stykkinu. Varð gagnrýnin oft mjög umtöluð í þjóðfélaginu þó að blaðið sjálft þætti ekki mjög fínt. Sjálfsagt hafa margir menn­ ingarvitar laumast í skjóli myrkurs til þess að kaupa blaðið og ekki sagt nokkrum manni frá því. Fátækari en kirkjurotta Fram til ársins 1970 voru að jafnaði prentuð um tólf þúsund eintök af Mánudagsblaðinu. Þá byrjaði salan að dala. Í viðtali við Vikuna árið 1979 greindi Agnar frá því að hann hefði fengið heilablóðfall árið 1974 og lamast hægra megin í líkaman­ um. Hann varð óvinnufær í heilt ár og útgáfan var stopul eftir það. Þegar viðtalið var birt var upplagið komið niður í þrjú þúsund eintök. „Nú er ég líka fátækari en nokk­ ur kirkjurotta, þrátt fyrir 20 ára út­ gáfustarf. Ég væri líklega stórríkur maður núna ef ég hefði haldið áfram í tannlækningunum en það átti ekki við mig að hanga yfir gap­ andi kjöftum,“ sagði Agnar. Síðasta tölublaðið kom út þann 20. desember árið 1982. Agnar lést tæpu ári síðar. n Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Vandaðar innréttingar Hjá Parka færðu flottar innréttingar í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Mánudagsblaðið var djarft, klámfengið og menningarlegt n Fyrsta gula blaðið n Nektarmyndir á forsíðu Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Agnar Bogason Skar sig úr fjöl- miðlaflórunni. Mánudagsblaðið 6. október 1969.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.