Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Síða 27
Iðnaðarblaðið 17. maí 2019 KYNNINGARBLAÐ
Opnar dyrnar fyrir nýjan markað
Miklar breytingar hafa átt sér stað í MD Vélum ehf. síðustu tvö árin. „Í stað þess að þjóna
eingöngu sjávarútveginum höfum við
fært út kvíarnar yfir í byggingargeir-
ann og fleira. Þetta hefur gerst með
nýjum umboðum, vörum og breyting-
um hjá rótgrónum birgjum,“ segir
Laila Björk Hjaltadóttir, fjármála- og
viðskiptastjóri MD Véla.
Vararafstöðvar í gámum
MD Vélar hafa verið með umboð
fyrir Mitsubishi frá stofnun fyrirtæk-
isins árið 1990. Frá upphafi hafa öll
samskipti MD Véla við Mitsubishi farið
í gegnum aðalskrifstofuna í Almere
í Hollandi og þaðan hafa allar vörur
og þjónusta komið. Nú eftir áramót
breyttist fyrirkomulagið með tilkomu
nýs útibús Mitsubishi í Noregi, sem
mun framvegis sinna MD Vélum. „Með
þessum breytingum hjá Mitsubishi
getum við nú boðið upp á heila véla-
pakka frá einum birgja og vararaf-
stöðvar tilbúnar til uppsetningar eftir
óskum viðskiptavinarins. Þá er t.d.
hægt að fá rafstöðvarnar innbyggðar
í gámum með olíutanki undir og fleira.
Þetta opnar nýjar dyr fyrir okkur og
höfum við t.d. verið að fá fyrirspurnir
frá orku- og gagnaverum. Við erum
hæstánægð að geta núna sinnt
þessum markaði enn betur.“
MD Vélar hafa sérhæft sig í sölu
þenslutengja í gegnum árin. „Nú hefur
úrvalið breikkað mjög mikið,“ segir
Laila og bætir við: „Okkar birgir er
VM Kompensator í Danmörku og þeir
eru með gúmmí-, stál- og veftengi.
Gúmmítengin er frá hinum þekkta
framleiðanda Trelleborg sem er vott-
aður og þekktur fyrir gæði.“
Stál- og veftengin eru framleidd
í Danmörku og eru sérhönnuð eftir
pöntunum. Stáltengin er hægt að fá í
stærðum DN 25–DN 5000. „Dönsku
tengin eru í hæsta gæðaflokki. Tengin
eru ekki bara með eitt lag af stáli,
eins og hjá mörgum öðrum fram-
leiðendum, heldur minnst tvö lög. Öll
tengin eru sömuleiðis virkjuð með
því að teygja og pressa þau áður en
þau eru send frá verksmiðju. Með
þessari meðferð virkjast allar bylgjur
á tenginu. Hreyfingin dreifist á allar
bylgjurnar undir álagi, en ekki bara
þessar fyrstu 1–2 eins og oft gerist.
Tengin hafa því mun meiri endingar-
tíma og eru öruggari. Einnig býður
fyrirtækið upp á veftengi sem eru
notuð þegar þrýstingur er lágur, t.d.
í loftræstikerfum. Tengin má hanna
þannig að þau þoli mjög sterk efni og
allt upp að 1.000°C hita.
VM Kompensator býður einnig upp
á þjónustu þar sem starfsmenn þess
koma á staðinn, mæla allt upp og
hanna svo tengin út frá aðstæðum á
staðnum. Við komum líka og setjum
upp tengi sé þess óskað. Nýverið voru
t.d. menn frá Danmörku uppi í Kölku,
sorpeyðingarstöð í Reykjanesbæ, að
setja upp tengi sem leiða í brennslu-
ofna og þola allt að 1.000 gráður.“
Nýjasta umboð MD Véla er
MetraFlex, staðsett í Chicago, sem
framleiðir einnig þenslutengi. Tengin
hafa einstakan hreyfanleika allt upp
í +/-24 tommur og fást fyrir ýmsa
miðla. Einnig fást þau sérhönnuð fyrir
eldvarnarkerfi. Tengin geta tekið á
sig mjög mikla hreyfingu og henta því
sérstaklega vel á jarðskjálftasvæðum
eins og t.d. Íslandi. „Ég var nýverið í
Madrid til að ganga frá einkaumboði
á þessum tengjum og öllum vörum
þessa fyrirtækis í Evrópu. Þetta eru
mjög spennandi tímamót og er sam-
starfið strax farið að skila sér bæði á
Íslandi og á meginlandinu.
Aðrar vörur sem þeir framleiða
eru t.d stálbarkar til að tengja saman
ofna í byggingum. Þetta er nokkuð
sem hótel hafa verið að óska eftir, en
þau glíma við það að ef hótelgestur
rekst utan í ofn í einu herbergi þá
berst hljóðið í næsta herbergi. Svona
tengi tekur titringinn og dempar þar
með hljóðið.
Við erum með breitt birgjanet og
getum boðið upp á mjög fjölbreytt-
ar vörur og lausnir. Við erum spennt
fyrir framtíðinni og erum alltaf að
bæta við okkur,“ segir Laila og hvetur
alla til að fylgjast með heimasíðunni
mdvelar.is og Facebook-síðu MD Véla:
MD Vélar ehf, þar sem hægt er að fá
nánari upplýsingar um fyrirtækið og
fylgjast með því sem er að gerast.
MD VÉLAR: