Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 14
14 FÓKUS - VIÐTAL 17. maí 2019
Sá listi af poppstjörnum sem
Arnþór hefur samið fyrir og tekið
upp er hreint lygilegur á að líta.
Þarna má meðal annarra finna
Jennifer Lopez, Jessicu Simpson,
Carlos Santana, Janet Jackson,
Celine Dion, Westlife, Jay-Z,
Sting, Samönthu Mumba, Ronan
Keating, Enrique Iglesias, Ricky
Martin og Boyzone að ógleymdri
poppdrottningunni Britney Spe-
ars.
Hverjum var skemmtilegast að
starfa með?
„Ég verð að segja Janet Jackson.
Við vorum þrjár vikur í Los Angel-
es og mánuð í New York. Hún er
fagmaður af öðru kalíberi en ég
hef séð áður, bæði sem listamað-
ur og í samskiptum við okkur. Ég
hlustaði mikið á hennar tónlist
þegar ég var unglingur og henn-
ar lagahöfundar, Terry Lewis og
Jimmy Jam, voru mínar hetjur.
Það var draumur að fá að standa í
þessum sporum.“
Hefur verið erfitt að starfa með
einhverjum?
„Já, já, við erum að vinna með
mjög skapandi og tilfinningaríku
fólki. Margir af listamönnunum
eru ekki alltaf hamingjusamir og
ýmislegt að gerast í einkalífinu.
Ég hef samt verið nokkuð hepp-
inn með samstarfsfólk. Stúdíóið
er líka nokkurs konar athvarf fyr-
ir listamennina og þeim líður vel
þar. Það er enginn sem kemur til
að trufla eða angra þá. Oftast nær
er þægilegt andrúmsloft í stúdíói.“
Ert þú alltaf ánægður með út-
komuna?
„Nei,“ segir Arnþór eftir smá
umhugsun. „Í þessum bransa
verður maður að læra listina að
gera málamiðlanir. Þeir sem eru
einstrengingslegir endast ekki
lengi. Það eru margir sem koma
að útgáfunni og sumir með ára-
tuga reynslu af því hvað virkar í
útvarpi og hvað ekki. Stundum
hef ég ekki verið alveg sáttur við
lokaútkomuna en þeim skiptum
hefur farið fækkandi síðustu tíu
árin. Það er ekki jafn mikil pólitík í
þessu lengur. Fólk treystir því sem
við erum að gera.“
Flýgur stjörnunum
Arnþór hefur lengi verið með flug-
dellu. Sjálfsagt á móðir hans ein-
hvern þátt í því. Þegar hann var
níu ára gamall fékk hann sinn
fyrsta flughermisleik og sat hann
öll kvöld og lék sér í honum. Árið
2001 byrjaði hann í flugnámi en
lauk því ekki vegna anna. Þá var
Benjamín, elsti sonurinn, vænt-
anlegur í heiminn.
„Að klára þetta hefur blundað
í mér allar götur síð-
an. Fyrir nokkrum
árum fór ég að
hugsa: Ef ég
geri þetta ekki
núna, þá
geri ég þetta aldrei. Þess vegna
dreif ég mig af stað og kláraði
einkaflugmannsprófið og vegna
þess að mér fannst þetta svo
skemmtilegt tók ég atvinnuflug-
mannsprófið líka.“
Arnþór kláraði námið árið
2018 og tók sér þá frí frá
upptökum. Í mars síðast-
liðnum fékk hann flug-
mannsstöðu hjá flugfé-
lagi í einkaflugi. Starfar
hann núna jafnfætis
í fluginu og upp-
tökunum, viku
og viku í senn.
Ertu þá
að fljúga
poppstjörn-
unum um
heiminn?
„Já,
í nýja
starf-
inu
hitti ég marga gamla vini og flýg
með þá til Ibiza og á fleiri staði.
Þeir vilja allir fljúga hjá mér,“ segir
Arnþór og skellir upp úr. „Ég hef til
dæmis verið að fljúga með fyrsta
kollega minn, Christian, og hina
strákana í Galantis.“
Að fljúga minni vélum er mjög
hentug byrjun í fluginu. Arnþór er
þó opinn fyrir því að fljúga stærri
vélum og breiðþotum í framtíð-
inni.
„Þetta hentar mér mjög vel
eins og þetta er. Ég bý í Solna,
fimm mínútum frá flugvellin-
um. Þetta er lítið og þægilegt,
það væri miklu stærra batterí að
fljúga fyrir SAS til dæmis. Þegar
ég var yngri var draumurinn alltaf
að fljúga fyrir Icelandair.“
Sonurinn samdi við Sony
Arnþór á tvo syni, sá yngri heitir
Jósef og sá eldri Benjamín. Benja-
mín, sem verður brátt sautján ára,
skrifaði nýlega undir útgáfusamn-
ing í tónlist við Sony.
„Hann byrjaði á þessu þegar
hann var þrettán eða fjórtán ára
gamall og hefur mestan áhuga á
hip hop. Hann hefur verið að fá
græjur lánaðar hjá mér til þess að
búa til tónlist. Ungir strákar sem
eru að framleiða sænskt hip hop
tóku eftir því sem hann var að gera
og vildu fá að taka upp með hon-
um. Þetta verður einhvers konar
blanda af hip hop og poppi.“
Ert þú ekkert að skrifa fyrir
hann?
„Nei. Ég hef hjálpað honum við
ýmislegt, en hann er að gera þetta
sjálfur. Hann spilar ekki á hljóm-
borð og stundum biður hann mig
að koma og spila. Hann tekur það
síðan í sínar áttir.“
Það eru fleiri gleðifréttir af
fjölskyldunni því að í ágústu
munu Arnþór og Sharaeh Sophia
Hosseini, unnusta hans, festa sitt
ráð. Arnþór hefur áður verið giftur.
Sharaeh er af írönsku bergi brotin,
en flutti til Svíþjóðar tveggja ára
líkt og Arnþór.
Ræktið þið sambandið við Ís-
land?
„Já, við gerum það. Því miður
tala strákarnir ekki íslensku og ég
sé svolítið eftir því að hafa ekki
talað meira við þá á íslensku. En
þeir koma með mér til Íslands, oft-
ast einu sinni á ári. Foreldrar mín-
ir eru nú fluttir aftur til Íslands
og strákarnir fara til þeirra í sum-
ar. Strákarnir elska að koma til Ís-
lands.“
Heldur meira með Íslandi en
Svíþjóð
Það er ekki hægt að sleppa Arn-
þóri án þess að spyrja hann um
Eurovision. Hann er jú milli steins
og sleggju, verandi Íslendingur bú-
settur í Svíþjóð. Eins og við vitum
flest þá eru þetta tvær Eurovision-
óðustu þjóðir álfunnar og Svíar
vitaskuld margfaldir sigur vegarar.
Hefur þú sent lag inn í keppn-
ina?
„Ég hef einu sinni samið lag fyr-
ir vin minn sem heitir Darin, fyrir
um það bil tíu árum. Lagið hafn-
aði í þriðja sæti í keppninni hér,
Melodifestivalen. Eurovision er
auðvitað mjög skemmtileg keppni.
John Lundvik, sænski keppandinn
í ár, er góður vinur minn og hefur
sungið demó-lög fyrir okkur. Þetta
er hans fyrsta skipti og við erum
mjög spennt fyrir hans hönd.“
Arnþór hefur einnig fylgst með
Hatara, fulltrúum Íslendinga.
Hvort heldur þú með Svíþjóð
eða Íslandi?
„Ég held alltaf með þeim sem
gengur betur,“ segir Arnþór og
flissar. „Ef sá sem ég held með fær
fá stig skipti ég umsvifalaust um
hollustu. En heilt yfir hef ég alltaf
haldið meira með Íslandi en Sví-
þjóð. Íslendingar hafa líka sent
mjög mörg góð lög í keppnina.“
Hvernig heldur þú að Hatara
muni ganga?
„Þetta gæti orðið erfitt. Þetta
er mjög athyglisvert framlag,
bæði lagið og hvernig þetta er sett
saman. Það sem mér finnst flott
við atriðið er að þetta er öðruvísi
og nýtt. Ég er hins vegar ekki viss
um að áhorfendur geti skilið það
jafn vel og við. Ég þurfti sjálfur
að hlusta nokkrum sinnum til að
átta mig á því. En ég vona að þeim
gangi vel.“ n
Í þessum
bransa verður
maður að læra listina
að gera málamiðlanir
Nokkrar af stjörnunum sem Arnór hefur samið fyrir
Celine Dion, Carlos Santana, Britney Spears og Janet Jackson