Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Blaðsíða 2
2 17. maí 2019FRÉTTIR hlutir til þess að gera í stað þess að horfa á Eurovision Á morgun, laugardag, sest meiri hluti þjóðarinnar niður fyrir framan sjónvarpið, hámar í sig snakk og líklega margir sem fá sér aðeins í tána. Í ár hafa skapast miklar deilur um Eurovision og margir hverjir eru reiðir vegna þeirrar ákvörðunar að halda keppnina í Tel Aviv í Ísrael. Íslendingar eru þar ekki undan- skildir og voru ansi háværar raddir um að við ættum að sleppa því að taka þátt í ár og mótmæla þannig þeim aðgerðum sem stjórnvöld Ísrael hafa tekið og aðför þeirra að Palestínu. Það verða því líklega einhverjir sem ekki ætla sér að fylgjast með keppninni í ár, þrátt fyrir að Íslandi sé spáð góðu gengi. DV fann því fimm hluti sem hægt er að gera í staðinn fyrir að horfa á Eurovision. Fara út að skokka: Ef þú hafðir hugsað þér að nýta tímann í líkamsrækt er líklega best fyrir þig að fara út að skokka. Ef þú ferð í ræktina verður líklega kveikt á Eurovision í öllum sjónvörpum þar og þú kemst ekki hjá því að sjá hvað fer fram. Eurovision er nokkuð langt sjón- varpsefni svo þú ættir að komast í ágætis- form. Læsa þig inni á klósetti og hlusta á hljóðbók: Ef það er sjónvarp á heimili þínu er líklegt að einhver heimil- ismaður muni vilja horfa á keppnina. Þá getur þú læst þig inni á klósetti og hlustað á hljóðbók. Með því úti- lokar þú bæði hljóð og myndefni. Passaðu þig bara að sitja ekki of lengi á klósettinu ef þér verður mál, þá færðu gyllinæð. Kaupa í matinn: Það verða líklega ansi fáir í búðinni. Það er þó tvennt sem þú þarft að hafa í huga. Ekki gleyma heyrnartólum þar sem líklegt er að keppnin verði spiluð í beinni í útvarpinu í búðinni. Mundu svo að vera almennileg/ur við starfsfólkið því það neyðist til þess að afgreiða þig á meðan það reynir að fylgj- ast með keppninni í símanum sínum. Hámhorfa á Game of Thrones: Ef þú býrð ein/nn og getur því ráðið sjónvarpsefninu þá er þetta tilvalinn tími til þess að rifja upp allar seríurnar af Game of Thrones. Hafir þú ekki séð þær nú þegar, er kominn tími til, enda lokaþátturinn sýndur í næstu viku og honum má enginn missa af. Halda húsfund: Sértu formaður hús- félags og almennt illa innrætt manneskja, þá er þetta einmitt tíminn til þess að boða alla íbúa á húsfund. Þar getið þið farið yfir sorphirðu, endur- vinnslu og fyrirhug- aðar framkvæmdir. Þá getið þið rætt bílastæðavandamál og rýnt ítarlega í árs- reikninginn. Þú skalt þó ekki gera ráð fyrir því að verða kosinn í stjórn félagsins aftur á næsta ári. Á þessum degi, 17. maí 1536 – Hjónaband Hinriks VIII. Eng- landskonungs og Önnu Boleyn er ógilt. 1863 – Rosalía de Castro gefur út Cantares Gallegos, fyrstu bókina sem skrifuð var á galisísku. 1933 – Vidkun Quisling og Johan Bernhard Hjort Nasjonal Samling, Þjóðarhreyfinguna, flokk að fyrirmynd þýska Nasistaflokksins. 1974 – Þrír óbreyttir borgarar eru myrt- ir og um 300 særast þegar UVF, hreyfing róttækra sambandssinna á Írlandi, sprengir fjórar bílsprengjur í Dublin og Monaghan í Írska lýðveldinu. Síðustu orðin „Hví grátið þið. Hélduð þið að ég væri ódauðlegur?“ – Louis XIV. Frakklandskonungur (1638–1715) Stebbi Hilmars kannar listamannalaun H áskólastúdentar sem stefna á útskrift í sumar keppast við það í maí að skila inn lokaritgerðum, og er ávallt við hæfi að fagna þegar þeim stóra áfanga er náð. Tónlistarmaðurinn Stefán Hilmarsson, sem lengst hefur verið kenndur við hljómsveitina Sálina hans Jóns míns, hefur skilað inn BA-ritgerð sinni í stjórnmálafræði. Ritgerðin ber heitið „Listin að styrkja: Hugleiðingar um listamannalaun.“ Í viðtali við Vísi í ágúst í fyrra sagði Stefán: „Mig langaði bara að gaumgæfa þennan málaflokk með hliðsjón af pólitískum sjónarmið- um sem og í sögulegu ljósi, verandi listamaður og áhugamaður um pólitík og sögu.“ Í ritgerðinni eru birtar niðurstöður skoðanakönnun- ar sem Stefán stóð fyrir og endurspegla þessar hugleiðingar hans og afhjúpa hug almennings til listamannalauna. Höpp og glöpp Óla í bók L eiðsögumaðurinn Ólafur B. Schram hyggst gefa út sína fyrstu bók, þar sem hann mun segja frá höppum og glöppum á ferðalögum sínum um landið, af reiðmennsku og æskuminningum. „Undanfarin ár hef ég birt smásögur á Facebook-síðu minni og ekki hlotið tjón af,“ seg- ir Ólafur, en um 70 sögur verður að finna í bókinni. Fjallafari – Highlander, fyrir- tæki Ólafs, fagnar 25 ára afmæli í ár, en Ólafur hefur varið um 5.000 dögum síðastliðin 25 ár eða nær 14 árum samanlagt á ferðum um byggðir og óbyggðir Íslands. „Á þessum tíma hef ég gist í tjöld- um, á hótelum, í bændagistingu og í allt að 117 fjallaskálum, ekið Sprengisand ótal sinnum á hverju ári, Gæsavatnaleið að jafnaði tvisvar á hverju sumri og farið alla merkta vegarslóða á korti og komið á þorra allra gisti- staða landsins, nær oftast með erlenda ferðamenn með mér,“ segir Ólafur. „Ég hef komið víða við, bæði gangandi, hjólandi, ríðandi og akandi.“ Ólafur safnar fyrir útgáfu bók- arinnar á Karolina Fund: Höpp og glöpp Óla. Hægt er að styrkja útgáfuna og fá í staðinn allt frá eintaki af bókinni upp í tveggja daga ferðalag um hálendið með höfundi, auk eintaks af bókinni og boði í útgáfuhóf. „Sögurnar mínar með höpp- um og glöppum hafa verið lesnar af fjölda fólks. Hver þeirra er ör- saga, tvær til þrjár blaðsíður. En þær virðast vera vinsælar,“ seg- ir Ólafur. „Og eftir fimm ára skrif örlar enn á ábendingum um að safna þessu saman og binda inn. Næsta skref er því að láta reyna á þessar hvatningar og nýta sér vinskapinn við ykkur. Ég hef rætt við útgefanda. Hann vissi ekki hvaðan á hann stóð veðrið þegar ég birtist á skrifstofunni hjá honum, hefur þekkt mig fyrir aðra hluti en innivinnu og skrift- ir. Hann las tvær til þrjár grein- ar, sannfærðist og gerði mér til- boð. Þar er ég staddur í dag. Nú er komið að ykkur að styðja mig í raun.“ E ydís Blöndal, varaþingkona VG, útskrifast úr heimspeki við Háskóla Íslands í sum- ar, en hún skilaði BA-rit- gerði sinni í heimspeki þann 10. maí. Ritgerðin ber heitið „Hin hliðin á peningnum: Kynbund- inn launamunur í ljósi kenninga Nietzsches og sjónarhóls kenninga femínískrar þekkingarfræði.“ Eydís er fædd 1994 og er dótt- ir Péturs H. Blöndals heitins, sem sat lengi á þingi fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Eydís fagnar skilunum á Twitter með orðunum „Loksins fáanleg, öll 19 þúsund tweetin mín innbundin í bók.“ Varaþingmaður útskrifast
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.