Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 34
Iðnaðarblaðið 17. maí 2019KYNNINGARBLAÐ Strax í upphafi var sérstök áhersla lögð á fagleg vinnu­brögð og þrifalega umgengni,“ segir Halldór Kristjánsson, verkstjóri fyrirtækisins Bortækni. Þar geng­ ur starfsemin út á að leysa fag­ mannlega af hendi öll verkefni, stór sem smá, á fljótlegan og skilvirkan máta. „Þetta hefur dafnað vel hjá okkur undanfarin ár og hefur allt gengið hispurslaust fyrir sig. Auk þess erum við komnir í betra húsnæði sem hentar starfseminni betur.“ Halldór segir að Bortækni ann­ ist margvísleg verkefni, eins og til dæmis kjarnaborun og steypusögun auk þess sem fyrirtækið sérhæfir sig í niðurrifi. „Bortækni hefur á hátt í fjögurra áratuga ferli ávallt lagt mikla áherslu á að veita viðskiptavinum sínum góða og persónulega þjón­ ustu. Með nýjustu og bestu fáanleg­ um tækjum er okkur kleift að bjóða hraða þjónustu á sanngjörnu verði,“ segir hann. „Bortækni hefur verið leiðandi í íslenskum verktakaiðnaði í gegnum tíðina og ekkert verk er of stórt eða of smátt fyrir okkur. Í dag erum við með með 10–12 starfsmenn sem eru allir búnir að vera lengi i faginu. Okkur er mjög umhugað um vinnu­ öryggi og heilsu okkar starfsmanna. Bortækni vinnur mikið í heimahús­ um við að saga glugga, hurðarop og stiga. Fyrirtækið tekur einnig að sér að saga fyrir hita í gólf og sér um að rífa allt, eins og innréttingar, veggi og gólfefni. Við komum á staðinn og gerum verðtilboð þér að kostnaðarlausu,“ segir Halldór. Bortækni ehf., Miðhrauni 14, 210 Garðabær Símar: 567-7570, 693-7700 Netfang: bortaekni@bortaekni.is www.bortaekni.is Leiðandi á íslenskum verktakamarkaði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.