Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2019, Blaðsíða 21
KYNNINGARBLAÐ
Sérblaðið
xx. xxxxxxx 201x Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Gerðu frekar eitthvað
skemmtilegt fyrir sparnaðinn
Leiðni slf. var stofnað árið 2012. Síðan hefur megin uppistað-an verið sala og uppsetning
á öryggismyndavélum. Síðustu tvö
ár hafa sífellt fleiri keypt snjallör-
yggiskerfið Ajax System en Leiðni
er dreifingaraðili þess á Íslandi.
Einstaklingar jafnt sem fyrirtæki og
sveitarfélög eru meðal sífellt fjölgandi
viðskiptavina Leiðni sem reiða sig á
einfaldan og öruggan búnað til þess
meðal annars að fylgjast með eigum
sínum, vakta vinnusvæði eða fylgjast
með sauðburði svo eitthvað sé nefnt.
Öryggiskerfi þurfa ekki að vera ljót!
Það er rétt, Ajax snjallöryggiskerfið er
alveg einstaklega vel hannað út frá
fagurfræðilegu sjónarmiði og hefur
fengið mikið lof fyrir það. Öryggis-
kerfið er stílhreint og einfalt og er eitt
mest verðlaunaða kerfið í Evrópu á
sínu sviði.
Alveg þráðlaust og Grade 2
Ajax notast við eigin þráðlausa tækni
sem allir íhlutir kerfisins eiga sam-
skipti í gegnum með áberandi góðu
þráðlausu sambandi. Þess má geta
að þessi tækni, sem kallast Jeweller,
hefur drægni allt að 2 kílómetrum
sem er mun lengra en önnur þráðlaus
samskipti sem algengast er að notuð
séu hjá öðrum framleiðendum. Íhlutir
kerfisins eru allir með rafhlöðum,
með allt að 7 ára líftíma, sem gerir
notendum kleift að ganga frá þeim á
heimili sínu án þess að nokkur snúra
sjáist. Það undirstrikar einmitt stíl-
hreina hönnunina sem Ajax hefur að
leiðarljósi til þess að gera nauðsynleg
öryggistæki að fallegum hlutum sem
stinga ekki í stúf á nútíma heimilum.
Vottaðir reykskynjarar EN14604
og frábær rafhlöðuending
Hægt er að velja um tvær gerðir
reykskynjara, þ.e. reykskynjara með
innbyggðum hitaskynjara, eða reyk-,
hita- og gasskynjara. Ýmsar still-
ingar eru á skynjurunum eins og hve
hratt hitastigið þarf að hækka til að
skynjari gefi neyðarboð. Skynjarana
má nota eina sér án stjórnstöðvar
eða tengja fleiri saman með aðstoð
stjórnstöðvarinnar sem er falleg og
stílhrein og fellur inn í svo að segja
hvaða rými sem er án þess að vera
áberandi.
Þú getur hannað þitt eigið kerfi
Nokkrar gerðir hreyfiskynjara eru í
boði en allir hreyfiskynjarar gera ráð
fyrir gæludýrum sem eru allt að 20
kílóum að þyngd svo hætta á fals-
boðum er minnkuð til muna. Vilji fólk
sírenur er auðvelt mál að finna eitt-
hvað sem hentar, allt frá fullkomlega
stillanlegum sírenum upp í sannkall-
aða lúðra sem gefa frá sér fælandi
blikkljós og 113 dB hávaða.
Þegar kemur að stýringu kerfis-
ins er enn gert ráð fyrir að notendur
hafi mikið val og þar er um að ræða
möguleika á að nota hefðbundna
fjarstýringu og/eða talnaborð, tölvu
eða snjallsíma. Fjarstýring og talna-
borð gefur fólki kost á að virkja kerfið
og slökkva á því en með tölvu eða
snjallsíma eykst notagildið til muna.
Með því er t.a.m. hægt að gefa gest-
um tímabundið notkunarleyfi, nú eða
láta kerfið bara kveikja á kaffivélinni
og lampanum við hægindastólinn
áður en þú kemur heim.
Gerðu frekar eitthvað skemmtilegt!
Þú ert alltaf með símann við höndina,
hann er notaður til þess að versla,
sinna bankaerindum og kaupa
flugmiða svo eitthvað sé nefnt. Þess
vegna er það ekki nema sjálfsögð
þróun að þú getir stýrt heimilinu
þegar þú ferð að heiman og getir
vaktað það á meðan þú slakar á á
hvítri strönd, því það geturðu gert
fyrir sparnaðinn.
Með Ajax snjallöryggiskerfi og
myndavélum hefurðu fulla yfirsýn,
en getur sleppt því að greiða föst
mánaðarleg gjöld til þriðja aðila. –
Gerðu frekar eitthvað skemmtilegt
fyrir sparnaðinn.
Myndavélar í Ajax appinu
Ajax appið býður upp á að tengja
nánast hvaða myndavél sem er við
kerfið, en nýlega kom frá Ajax sér-
staklega einföld lausn til að tengja
það við myndavélar frá einum
stærsta myndavélaframleiðanda í
heimi, Dahua. Leiðni hefur selt búnað
frá Dahua síðan í byrjun árs 2012.
Síðan þá hafa vinsældir Dahua aukist
það mikið að jafnvel eitt af stærstu
öryggisfyrirtækjum landsins þurfti að
bregðast við aukinni samkeppni með
því að bæta þeim í eigin vörufram-
boð.
Vörur
Uniview og Dahua myndavélakerfi,
Ajax systems snjallöryggiskerfi,
Amadeo aðgangsstýrikerfi, Comelit
dyrasímakerfi, Tellsystem.
Amadeo aðgangskerfi
Austurríski framleiðandinn Amadeo
framleiðir aðgangskerfið sem er full-
komin og vönduð lausn fyrir hótel og
fyrirtæki. Amadeo býður viðskiptavin-
um upp á nýja nálgun í rekstri og um-
sjón aðgangsstýrikerfa. Hurðabúnað-
urinn er með IP68 vottun og þolir því
vel hvers konar íslenska veðráttu.
Comelit dyrasími
Comelit er ítalskur dyrasímafram-
leiðandi með heildarlausnir fyrir
allar aðstæður. Comelit býður upp á
tengingu dyrasímans við snjallsíma
húsráðenda. Það gerir þeim mögu-
legt að svara gestum og hleypa þeim
inn hvar sem þeir eru staddir, hvort
sem þeir eru heima í stofu eða á skíð-
um í Bláfjöllum.
Eyþór veit allt um Ajax
snjallöryggiskerfið.
LEIÐNI SLF: