Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2019, Blaðsíða 9
KYNNING
Garðaþjónusta Kópavogs er rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í alhliða garðaþjónustu. Kópavogsbúar þekkja vel til vandaðra verka fyrirtækisins sem hefur um árabil séð um að prýða garða, beðahreinsa og helluleggja.
Helgi Bersi Ásgeirsson garðyrkjumaður segir að aðaláhersla fyrirtækisins sé lögð
á almennt viðhald á görðum sem og gerð nýrra garða.
„Við sérhæfum okkur m.a. í að helluleggja en það er einmitt mikið um að fólk sé
að helluleggja um þessar mundir. Við aðstoðum einnig viðskiptavini við hönnun
og skipulag á görðum,“ segir hann.
Hvers kyns garðaþjónusta
„Garðaþjónusta Kópavogs sinnir einnig þökulögnum, jarðvegsskiptum,
trjáfellingum og trjáklippingum. Þótt fyrirtækið sé eyrnamerkt Kópavogi þá förum
við gjarnan yfir bæjarmörkin og vinnum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið, ef
því er að skipta. Við leitumst líka við að hagræða verkefnum og vinnutíma eftir
þörfum viðskiptavina hverju sinni.“
Garðaþjónusta Kópavogs er með áratuga reynslu í hvers kyns garða
þjónustu og leggur mikinn metnað í að þjónusta fjölda einstaklinga, fyrirtækja og
húsfélaga í almennu garðaviðhaldi yfir allt sumarið.
Garðaþjónusta Kópavogs
Austurkór 63, Kópavogur. Sími: 859 – 7090.
www.facebook.com/gardakop/
Alhliða þjónusta og hellulagnir
GARÐAÞJÓNUSTA KÓPAVOGS: