Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2019, Blaðsíða 23
Tannheilsuferðir sem fá þig til
þess að brosa allan hringinn
Þau Rósa Kristín Benedikts-dóttir og Gunnar Jónatansson hófu samstarf við Madenta
í Búdapest fyrir rúmi ári og hafa
yfir tvö hundruð Íslendingar farið
á þeirra vegum til Ungverjalands í
þeim tilgangi að þiggja fyrsta flokks
tannlæknaþjónustu á frábæru verði.
Madenta var stofnuð árið 2000
og hefur verið í fremstu röð tann-
læknastofa í Ungverjalandi undan-
farin 19 ár. Tannlæknar Madenta eru
sérhæfðir á öllum sviðum tannlækn-
inga, m.a. almennum tannlækningum,
tannfegrunaraðgerðum, gerð tann-
planta, skurðaðgerðum, tannsmíði og
barnatannlækningum. Hjá Madenta
vinna tannlæknar með allra nýjustu
tækni og vörumerki eins og KAVO
lækningatæki, CB-CT sneiðmynda-
tæki, almennar svæfingar, Arcus
Digma tann/kjálkaréttinga búnað,
3D prentuð stoðtæki, Nobel Biocare
og Alpha Bio tannplantakerfi o.s.frv.
Fram til þessa hafa yfir 75.000
viðskiptavinir leitað til stofunnar og
fjölgar ánægðum viðskiptavinum á
ári hverju.
Fyrsta skrefið er tekið á Íslandi!
„Við ráðleggjum öllum þeim sem
hafa áhuga á tannheilsuferðum til
Búdapest að byrja ferlið hér heima.
Fyrsta skrefið er að útvega OPG
röntgenmynd hjá einum af þeim
tannréttingasérfræðingum sem
bjóða upp á þær og við getum vísað
á. Slík myndataka kostar oftast rétt
um 6.000 kr. og þegar henni er lokið
fáum við myndina senda og komum
henni til tannlæknanna hjá Madenta.
Þeir skoða myndina og út frá henni
geta þeir gefið 90–95% nákvæma
meðferðar- og kostnaðaráætlun án
allra skuldbindinga. Einnig liggur fyrir
allur sá tími sem meðferðin mun taka
og fjöldi ferða,“ segir Gunnar. Stund-
um eru gefnir upp tveir eða fleiri kost-
ir á meðferð sem fólk velur á milli. Á
þessu stigi getur fólk annaðhvort valið
að hætta alfarið við eða halda áfram.
„Þetta fyrsta skref, sem er tekið hér
heima, er gríðarlega mikilvægur hluti
af þjónustunni sem við bjóðum upp
á. Við viljum að fólk viti að hverju það
gengur áður en það fjárfestir í flug-
miða, gististað og fleira.“
Ef fólk ákveður að skella sér á með-
ferð þá nefnir það tímasetningu sem
hentar því og Gunnar eða Rósa hafa
samband við Madenta til að panta
tíma. Fjöldi ferða fer eftir umfangi
meðferðarinnar. „Í mörgum tilfellum
er nóg að fara eina ferð út, en sumar
meðferðir krefjast þess að viðskipta-
vinur fari út oftar. Það á þá frekar um
skurðaðgerðir eins og tannplanta og
þess háttar.“
Hópferð í tannlækningar
Þau Gunnar og Rósa hjá Madenta
bjóða líka upp á hópferðir í tann-
lækningar til Búdapest. „Núna 12.–19.
október munum við fara út með ann-
an hópinn okkar. Þá bjóðum við upp á
túlkaþjónustu auk þess verður ís-
lenskur leiðsögumaður með í för sem
fer með hópinn í skoðunarferð um
borgina. Ferðin er ein vika og farið er
út á laugardegi. Meðferðardagarnir
eru mánudagur til föstudags. Stofan
tekur ekki við öðrum viðskiptavinum
þessa viku og verður því undirlögð
af Íslendingum. Kosturinn við svona
hópferðir er sá að þá kynnist fólk, sem
hefur ekki komið áður til Búdapest,
staðarháttum, og ef það þarf að fara
fleiri ferðir til þess að klára meðferð
hjá Madenta, er mun auðveldara að
fara aftur á eigin vegum. Við búumst
við að það seljist von bráðar upp í
þessa aðra ferð okkar, enda komast
ekki nema tuttugu manns með. Það
er því um að gera að skrá sig sem
fyrst ef fólk hefur hug á að koma
með.“
Það þarf allt að vera 100%
Túristatannlækningar eru nokkuð
frábrugðnar því sem við eigum að
venjast hjá tannlæknunum hér heima.
Þegar um er að ræða viðskiptavini
sem búa í öðru landi verður enn
mikilvægara að fá nákvæma áætlun
fyrir meðferð, kostnað og tíma. Einnig
verður enn mikilvægara að allt sé
gert eins vel og hægt er, því sjúklingur
getur ekki einfaldlega skotist aftur í
skoðun eða smávægilegar lagfær-
ingar. „Í Ungverjalandi og sérstaklega
í Búdapest hefur myndast gríðarleg
reynsla í heilsutengdri ferðaþjónustu
og má segja að þeir séu algerir frum-
kvöðlar á þessu sviði túrisma. Ástæð-
an er óneitanlega verðlagið sem og
gæðin á þjónustunni sem veitt er.“
Madenta í hjarta Búdapest
Búdapest er ein af fegurstu borg-
um Evrópu og á sér magnaða sögu
sem er sérlega gaman að kynna sér.
Einnig er verðlagið í borginni afar
hagstætt, í mat, drykk, gistingu og
öðru uppihaldi. Auk þess er stóran
hluta ársins hægt ferðast til Búda-
pest með beinu flugi allt að þrisvar í
viku og flugið er í ódýrari kantinum.
„Það er ódýrara að fljúga til Búda-
pest en að taka flugið til Akureyrar.“
Madenta tannlæknastofan er svo
staðsett í hjarta miðborgarinnar.
„Okkar samstarfsaðilar bjóða upp
á flotta gististaði hvort sem um er
að ræða hótel eða íbúðir sem eru
staðsettar í um 200–300 metra
fjarlægð frá Madenta. Það er því allt
í göngufjarlægð, Madenta, gistiað-
staða og miðbærinn, og engin þörf á
að nota almenningssamgöngur eða
leigubíla til þess að komast á milli.“
Svo miklu meira en bara tann
lækningarferðir
Ungverjar eru að sama skapi þekktir
fyrir aðra heilsutengda ferðaþjón-
ustu og er þar í boði gífurlegt úrval af
fyrsta flokks spa-meðferðarstofum
þar sem boðið er upp á andlitsmeð-
ferðir, hvers kyns nudd- og snyrti-
meðferðir, heit náttúruböð, leirböð
og fleira. Einnig er vinsælt að kaupa
sér gleraugu í leiðinni en verðlagið í
Búdapest á umgjörðum og glerjum er
sérlega hagstætt.
3–5 ára ábyrgð á krónum og brúm
og eilífðarábyrgð á tannplöntum
„Við Íslendingar höfum ekki vanist því
að ábyrgð fylgi þeim tannmeðferð-
um sem við göngumst undir, en hjá
Madenta ábyrgjast tannlæknarnir ár-
angur á öllum þeim meðferðum sem
viðskiptavinur gengst undir. Ef svo
ólíklega vill til að viðskiptavinur upplifi
að meðferð hafi ekki tekist sem skyldi,
þá getur hann fengið alla eftirmeð-
ferð og vinnu sér að kostnaðarlausu
hjá Madenta, innan þess tíma sem
ábyrgðin gildir. En langflest slík tilfelli
koma upp á fyrstu vikum og mánuð-
um eftir meðferð.“
Nánari upplýsingar um Madenta og
tannheilsuferðir má finna á heima
síðunni madenta.is
Madenta er einnig á Facebook:
Madenta Dental Clinic
Frekari upplýsingar eru veittar í
vefpósti: island@madenta.eu
Eða í síma: 6646550 eða 664
6555.
9. ágúst 2019 KYNNINGARBLAÐ