Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2019, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2019, Blaðsíða 34
FÓKUS 9. ágúst 201934 Ísland frábær innblástur n Linda teiknar töfrandi hversdagsmyndir Linda Jóhannsdóttir fatahönnuður teiknar töfrandi hversdagsmyndir. Fimm ár eru nú síðan fyrirtæki hennar Pastelpaper varð að veruleika en fyrstu myndirnar voru andlitsmyndir íslenskra fugla. S íðan þá hafa línurnar Baby North, Tropical Dream og Bird Portrait 2 litið dagsins ljós, en ásamt þeim hefur Linda haldið sýningarnar Píka og Brjóst sem nutu mikillar athygli. „Ég stofnaði Pastelpaper 2014, ný- útskrifuð úr Listaháskóla Íslands og uppfull af ótal hugmyndum. Ég var ófrísk að yngri drengnum mínum og ákaflega spennt fyrir að skapa eitthvað. Þetta hafa verið skemmtileg og lærdómsrík fimm ár, en ég lýsi merki mínu yfirleitt sem litlu hönnunarmerki sem sér- hæfir sig í póstkortum og mynd- um. Myndefnið eru aðallega ís- lenskir fuglar en hugmyndin var strax frá upphafi sú að gefa út fleiri línur. Það var líka alltaf á planinu að hanna fleiri muni fyrir heimilið og er afmælisárið helgað því.“ Atvinnuskapandi og umhverfi- svænt Fyrr á árinu varð sá draumur að veruleika þegar Linda frum- sýndi sófaborðið B38 á Hönnunar- Mars í Epal. Borðið hlaut mikið lof og vonast Linda til að hægt verði að koma því í sölu sem fyrst. „Það að framleiða á Íslandi hefur sína kosti og galla. Það er dásamlegt hvað allt er nálægt og alltaf hægt að finna einhvern sem þekkir ein- hvern sem býr yfir því sem þig vantar, en að sama skapi bitnar það á kostnaðinum sem er mun meiri en ef framleiðslan væri er- lendis. Ég hef þó valið að halda framleiðslunni hér heima, enda er það bæði umhverfisvænna og at- vinnuskapandi.“ Fátt sem toppar fegurð þessa lands Síðasta haust ákvað Linda svo að bæta menntun sína sem hún segir að nýtist Pastelpaper gríðar- lega vel. „Ég skráði mig í nýsköp- un og viðskiptaþróun hjá Háskóla Íslands sem opnar fyrir alls kon- ar nýjar hugmyndir. Það er því óhætt að segja að framundan séu skemmtilegir tímar, en ég hef nýtt sumarið vel í ferðalög um landið þar sem ég safna í hugmynda- bankann og þróa hugmynd sem ég hef gengið með í langan tíma. Eins klisjulegt og það hljómar er Ís- land frábær innblástur og fátt sem toppar fegurð landsins. Í haust mun ný lína fæðast innblásin af náttúru Íslands.“ „Það að framleiða á Íslandi hefur sína kosti og galla. Ég hef þó valið að halda framleiðslunni hérna heima. Íris Hauksdóttir iris@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.