Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2019, Blaðsíða 36
FÓKUS 9. ágúst 201936
Betra að sleppa tökum á for-
tíðinni og horfa fram á veginn
S
öngkonan Sjana Rut Jó-
hannsdóttir leggur nú loka-
hönd á sína fyrstu sólóplötu
en hún hefur lengi unnið að
eigið efni.
Á plötunni, sem ber heitið
Gull og grjót, er að finna átta lög
og á Sjana Rut heiðurinn af bæði
laga- og textagerð. Hún segir gerð
plötunnar hafa átt sér langan að-
draganda. „Ég hef alltaf verið að
semja lög og texta en mér fannst
aldrei rétti tíminn til að gefa
þau út. Ég hef samið út frá eigin
reynslu og því eru lögin öll ákaf-
lega persónuleg. Á plötunni er að
finna bæði gömul, óútgefin lög
sem hafa beðið lengi í skúffunni
sem og ný og brakandi fersk. Eitt af
þessum lögum sendi ég sem dæmi
inn fyrir Söngvakeppni sjónvarps-
ins en það komst ekki í gegnum
inntöku.“
Vinsældir víða
Þetta er þó ekki frumraun Sjönu
Rutar í lagaútgáfu því í fyrra gaf
hún út smáskífuna Show me your
truth, en hana vann hún í samstarfi
við bróður sinn, Alex Má. „Hann
gengur undir listamannsnafninu
NumerusX og hefur reynst mér
afar hjálplegur. Platan okkar fékk
talsverða athygli, en á henni var að
finna þrjú lög á íslensku og þrjú á
ensku. Titillag plötunnar, Show me
your truth, fékk meðal annars spil-
un á nokkrum erlendum útvarps-
stöðvum, til að mynda iHEart Rad-
io og tDong Radio,“ segir Sjana Rut
en platan fékk sömuleiðis umfjöll-
un í kanadískum fjölmiðlum.
The Voice Ísland æðisleg
reynsla
„Við systkinin stigum fyrst á svið
saman árið 2015 þegar við tókum
þátt í Söngkeppni Tækniskólans
og unnum þá keppni með frum-
sömdu lagi. Það var í fyrsta skipti
sem ég kom fram fyrir fullum sal
af fólki, en eftir það fór boltinn að
rúlla og við höfum síðan þá kom-
ið fram á ótal góðgerðasamkom-
um, hátíðum og öðrum viðburð-
um. Árið 2017 tókum við svo þátt í
Músíktilraunum en það má eigin-
lega segja að The Voice Ísland hafi
komið mér almennilega á kortið
enda þekkja mig flestir þaðan. Það
var æðisleg reynsla, þökk sé Svölu
Björgvinsdóttur og fleiri góðum.“
Sjana Rut segir yrkisefni
plötunnar persónulegt og sem
dæmi megi nefna lagið Ég horfi
fram á við, þar sem hún fjallar
um mikilvægi þess að festast ekki
í fortíðinni. „Lagið samdi ég um
reynslu mína eftir að hafa orðið
fyrir erfiðu áfalli í lífinu. Ég tók
meðvitaða ákvörðun um að skilja
það eftir í fortíðinni ásamt fólkinu
sem stóð ekki með mér í þeim að-
stæðum. Boðskapurinn í laginu
er sá að brýna fyrir hlustendum
mínum hversu mikilvægt það er
að standa með sjálfum sér þrátt
fyrir að á móti blási og maður fái
ekki endilega þann stuðning sem
best yrði á kosið. Oft er best að
sleppa tökum á fortíðinni og horfa
frekar fram á veginn. Ég trúi því að
flestir geti tengt við textann á einn
hátt eða annan og dillað sér við
lagið í leiðinni.“
Tvöföld fæðing
Annað lag á plötunni er jafnvel
enn persónulegra en það ber
heitið Hjartsláttur og tileinkar
Sjana Rut það frumburði sínum
sem væntanlegur er í heiminn
með haustinu. „Það má eiginlega
segja að ég stefni á tvær fæðingar
í september, bæði á plötunni
og litla prinsinum, en í laginu
Hjartsláttur syng ég til litla kríl-
isins sem við unnusti minn eig-
um von á í september. Í tilefni
af þessum tvöföldu tímamótum
stefni ég á útgáfutónleika plötunn-
ar í nóvember en þeir verða haldn-
ir í Salnum í Kópavogi og hefst
miðasala þeirra nú í ágúst á tix.is.“
n Sjana Rut gefur út sína fyrstu plötu en hún
á heiðurinn af lögum, texta og vinnslu plötunnar
MYNDIR: EYÞÓR ÁRNASON
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is