Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2019, Blaðsíða 27
2. ágúst 2019 KYNNINGARBLAÐ
„Sparaði tvær og hálfa
milljón í tannlæknakostnað“
Mikil aukning hefur orðið síð-ustu ár á því að Íslendingar sæki sér tannlæknaþjón-
ustu utan landsteinanna og ekki að
ástæðulausu. Í fyrsta lagi er það
mun ódýrara enda er kostnaðurinn
þar í yfirbyggingu, eins og launa-
kostnað tannlækna, töluvert minni
en á Íslandi. Í öðru lagi eru gæðin
á þjónustunni fyrsta flokks. Í þriðja
lagi er gríðarlegur tímasparnað-
ur fólginn í flóknari tannviðgerðum
erlendis. Ferli sem getur auðveld-
lega tekið mörg ár á Íslandi vegna
sárs skorts á sérfræðingum, tekur
t.d. eingöngu jafnlangan tíma og
það þarf að taka hjá EuroMiladent í
Gdansk í Póllandi. Tannlæknastofan
hefur upp á síðkastið tekið fagnandi á
móti íslenskum gestum sem eru í leit
að lausn á tannvandamálum sínum
og hefur sent heim fjöldann allan af
ánægðum viðskiptavinum með bros
á vör.
Reynsla, gæði og færni
EuroMiladent hefur tíu ára reynslu á
sviði ferðatannlækninga og eru helstu
viðskiptavinir stofunnar frá Noregi,
Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi og
Íslandi. EuroMiladent fékk viðurkenn-
ingu frá tímaritinu Forbes Diamonds
2016 fyrir framúrskarandi vöxt á
árinu en í Gdansk rekur EuroMiladent
fjórar tannlæknastofur. Á hverri
stofu eru reynslumiklir og menntaðir
tannlæknar sem eru afar færir í sinni
sérgrein. Erlendir viðskiptavinir nota
2–3 stofur í hverri ferð og eftir fyrstu
skoðun er þeir úthlutaður sá tann-
læknir sem mun sjá um að klára ferlið
með viðskiptavininum. Dr. Dominik
Łoś, sérfræðingur í tannlæknaþjón-
ustu, eigandi stofunnar og stofnandi
Miladent, er einn sá færasti í Gdansk
þegar kemur að implöntum, en
hann hefur sett upp yfir 4.000 slíka.
Hann sér um að þjálfa tannlækna
EuroMiladent í Póllandi og erlendis
á sviði stoðtækja og ígræðslu. Tann-
læknar EuroMiladent hafa þjónustað
yfir 60.000 sjúklinga, sett upp 8.000
implanta og hannað um 5.000 stoð-
tækni-yfirbyggingar. EuroMiladent
ábyrgist alla þá vinnu sem þeir gera á
viðskiptavinum sínum.
Ferlið hjá EuroMiladent er afar
einfalt
„Best er að byrja á að skoða flug og
tímasetningar sem henta hverjum og
einum og hafa svo samband við okkur
í síma 830-0388 eða í gegnum email
á tannlaeknatjonusta@gmail.com.
Ég mun svara öllum fyrirspurnum og
gera ráðstafanir með tímapantanir
hjá tannlæknunum hjá EuroMiladent.
Ég mæli með að vera úti í a.m.k.
þrjá heila virka daga ef um að ræða
skoðun, litlar eða stærri aðgerðir þar
sem hægt er að gera mikið á svona
stuttum tíma og t.d. tekur einn tann-
læknatíma að setja implant í. Það er
ótrúlegt hvað hægt er að gera á 3–4
dögum. Í öllum hópferðum okkar, sem
eru alltaf um fjórir heilir virkir dagar,
hefur fólk alveg fengið allt að 24
krónur, en auðvitað er það smá álag
á góminn,“ segir Dominika Majewska,
íslenskur túlkur og leiðsögumaður á
vegum EuroMiladent á Íslandi.
Fáðu grófa kostnaðaráætlun út frá
símamynd
Það er engin þörf á að renna blint í
sjóinn. „Hægt er að fá nokkuð ná-
kvæma kostnaðaráætlun áður en
ákveðið er að fljúga út með því að
senda okkur röntgenmynd af heilgóm.
Myndin fæst hjá einum af tannsér-
fræðingunum á Íslandi. EuroMiladent
er þó ekki í samstarfi við íslenska
tannlækna. Með myndinni geta
tannsérfræðingarnir úti metið stöð-
una á tönnunum og hvað þurfi að
gera. Einnig er hægt að senda okkur
ljósmyndir, t.d. úr símanum, en þær
verða að vera í fókus. Út frá þeim
getum við gefið upp gróflega áætlað-
an kostnað út frá útliti og engu öðru.
Við reynum alltaf að senda frá okkur
allar kostnaðaráætlanir innan 48 klst.
Allar kostnaðaráætlanir eru gefnar
með fyrirvara um breytingar, en eftir
skoðun á stofunni úti í Póllandi stand-
ast þær í 99% tilfellum.“
Vinsælar hópferðir
Dominika sér um vinsælar hópferðir
EuroMiladent frá Íslandi. Innifaldar
eru fríar leigubílaferðir til og frá flug-
vellinum sem og í alla tannlæknatíma.
„Þetta er vinsælt hjá þeim sem eru
að koma í fyrstu skoðun og vilja kynna
sér staðhætti í öruggu umhverfi.
Hópferðirnar eru líka vinsælar hjá
þeim sem tala litla sem enga ensku.
Fólk finnur aukið öryggi þegar það
getur tjáð sig á móðurmálinu en öll
þjónusta og samskipti eru á íslensku.“
Dominika er til staðar allan sólar-
hringinn íslenskum viðskiptavinum
til halds og trausts og aðstoðar með
allt.
Næsta hópferð með Dominiku
verður 17.–22. ágúst. „Líklega verður
ferð í september þar sem íslenskur
túlkur verður á staðnum og túlkar
fyrir þá sem vilja. Svo verða fleiri
ferðir í haust. Allar upplýsingar um
næstu ferðir er að finna á Facebook:
Tannlæknaþjónusta – EuroMiladent
Gdansk. Þeir sem eru öruggir í að
ferðast og tjá sig auðveldlega á
ensku geta farið út hvenær sem er.
„Þá panta ég fyrir fólk tannlæknatím-
ana en á staðnum tekur á móti þeim
indæl stelpa að nafni Weronika sem
talar ensku og aðstoðar með allt.“
Þess má geta að EuroMiladent tekur
ekki þátt í ferðakostnaði.
16 ára fékk implant
Fólk á öllum aldri með alls kyns
tannvandamál nýtir sér tannheilsu-
ferðir sem þessar. „Þetta er langmest
fólk sem hefur þörf á miklum tann-
viðgerðum og aðgerðum, þar sem
sparnaðurinn er oft gífurlegur þrátt
fyrir kostnað í flug og gistingu. Þó
eru líka margir sem skella sér í frí til
Gdansk og nýta sér fría skoðun hjá
okkur. Stundum þarf ekkert að gera
og stundum þarf bara að laga smá
skemmd. Við tökum á móti öllum,
hvort sem þeir þurfa einfalda tann-
hreinsun eða heilgóm. Yngsti einstak-
lingurinn sem hefur nýtt sér þjónustu
okkar var 16 ára. Hann þurfti implant
sem var ekki niðurgreidd aðgerð á
Íslandi.“
Sparaði 2.500.000 krónur
„Það er gífurlegur verðmunur á
tannlæknaþjónustu á Íslandi og í
Póllandi og er hægt að spara sér
allt að 80% af tannlæknakostnaði
hjá EuroMiladent. Í síðustu hópferð
okkar sparaði einn einstaklingur sér
2.500.000 krónur sem er gríðarlega
mikil upphæð. Svo má ekki gleyma
því að Gdansk er ótrúlega falleg borg
með mikla sögu og hefur upp á margt
að bjóða.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
Facebook: Tannlæknaþjónusta –
EuroMiladent Gdansk
Sími: 830-0388
Netpóstur: tannlaeknatjonusta@
gmail.com
Dr. Dominik.EUROMILADENT: Dominika Majewska.
FYRIR EFTIR