Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2019, Blaðsíða 26
2. ágúst 2019KYNNINGARBLAÐ
14 ára starfsreynsla og tann-
krónur á 48 klukkustundum
Indexmedica er ein stærsta og nú-tímalegasta tannmeðferðarstofa Póllands og hefur starfað sem
einkastofa síðan 2006. Stofan býr yfir
þrettán ára reynslu í heilsutúrisma
og hefur verið með ISO 9001 vottun
síðan árið 2008. Stofan var valin ein
af fimm bestu tannlæknastofum Pól-
lands af Global Clinic Rating.
Ferlið hjá Indexmedica er afar
einfalt. „Viðskiptavinurinn bókar flugið
og við sjáum um restina. Við bókum
hótelgistingu, far frá flugvellinum
á hótelið sem og tímapantanir hjá
tannlæknum Indexmedica. Stofan
er staðsett í hinni gullfallegu Kraká í
Póllandi og geta viðskiptavinir notið
ómetanlegra menningarverðmæta,
skemmtilegra skoðunarferða og afar
hagstæðs verðlags, allt á meðan þeir
öðlast bros drauma sinna með hjálp
hinna færu tannlækna Indexmedica,“
segir Jadwiga Szymeczko, fram-
kvæmdastjóri Indexmedica.
14 ára starfsreynsla
„Meðalstarfsreynsla tannlækna
Indexmedica er rúmlega fjórtán ár og
fara þeir reglulega í endurmenntun
og endurþjálfun til þess að geta veitt
viðskiptavinum stofunnar bestu þjón-
ustu sem völ er á.“ Tannmeðferðum
fylgir í flestum tilfellum eins til fimm
ára ábyrgð og í sumum tilfellum er
ævilöng ábyrgð.
Snögg afgreiðsla á keramikkrónum
Indexmedica býður upp á afar breitt
úrval af tannmeðferðum en þær vin-
sælustu meðal erlendra viðskiptavina
tannmeðferðarstofunnar eru tann-
plantar, krónur, brýr, postulínsskeljar,
fyllingar og tannhvíttun. „Að auki
erum við útbúin stafrænum munn-
hols-skanna sem gerir okkur kleift
að fullgera keramikkrónur á tveim-
ur sólarhringum, en þessi snögga
afgreiðsla hefur hentað erlendum
gestum okkar einkar vel.“
Indexmedica tannmeðferðarstöðin
býður upp á töluvert af þjónustu,
viðskiptavinum að kostnaðarlausu
Frítt far, með enskumælandi
bílstjóra, frá flugvellinum í Kraká á
gististað.
Við bókum fyrir þig gistingu frítt á
hótelum okkar eða samstarfshótel-
um.
Sjúklingar sem eru að koma í fyrsta
skipti fá alltaf a.m.k. eina fría gistinótt
á hótelunum okkar.
Aðstoð enskumælandi þjónustu-
stjóra er í boði allan sólarhringinn án
endurgjalds.
Tannskoðun og viðtal við einn af
okkar hæfileikaríku tannlæknum.
Nákvæm meðferðar- og kostn-
aðaráætlun sem og tímaáætlun án
skuldbindingar.
Stafrænar Panorama röntgen-
myndatökur sem og RVG stafrænar
myndatökur af einstaka tönnum
gegnum allt meðferðarferlið. Einnig
eru stafrænar myndatökur af munn-
holi og tönnum með munnhols-
myndavél fríar.
Staðdeyfing og fjarlæging á saum-
um eftir skurðaðgerðir.
Index Medica bókar fyrir þig frítt
í skoðunarferðir um Kraká eða í
nágrenninu, svo sem saltnámurnar
í Wieliczka, Auschwitz, Zakopane og
fleira.
Allir sjúklingar fá ókeypis pakka
sem inniheldur tannkrem, tannbursta,
munnskol, tannþráð, kort af Kraká,
ICE kort (In Case of Emergency) og
bæklinga með upplýsingum um Kraká
og Index Medica.
Á Indexmedica fá allir viðskiptavinir
frítt kaffi, te og kalda drykki. Þar eru
tölvur með ókeypis internetaðgangi
og prentara, dagblöð, tímarit og
starfsfólk sem aðstoðar gesti okkar
með bros á vör.
Frí gisting og ódýr fyrsta flokks
tannlæknaþjónusta
Indexmedica er eigandi tveggja
fjögurra stjarna hótela í miðbæ
Kraká, INX Design Hotel og Metropolis
Design Hotel, og geta viðskiptavinir
þegið að gista þar í fimm nætur frítt
fari kostnaður á meðferð upp fyr-
ir 500 evrur. Um er að ræða sér-
stakt tilboð á gistinóttum út ágúst
og verður sama tilboð í boði frá 15.
október til 20. mars 2020. Þetta er
afar freistandi tilboð sem er erfitt að
hafna. „Gestir okkar eru hæstánægðir
með að fá bæði ódýra tannlækna-
þjónustu og fimm fríar gistinætur mitt
í einni fallegustu borg Evrópu. Einnig
endurgreiðum við flugmiða upp að
115 evrum ef meðferð sjúklings fer yfir
2.500 evrur.
Tilboðið gildir einu sinni á hvern sjúkling.“
Fjöldi íslenskra gesta í hverri viku
Indexmedica fær fjölda gesta frá
Íslandi í hverri viku og við vinnum með
frábærum túlki sem aðstoðar þá
Íslendinga sem tjá sig eingöngu á sínu
móðurmáli í gegnum allt ferlið.
„Yfir 2.100 Íslendingar hafa líkað
við Indexmedica á Facebook. Það er
ekkert skrítið við það hvað Íslendingar
eru ánægðir með þjónustuna frá
Index Medica því þeir eru að spara
allt að 70% á tannlæknakostnaði
miðað við það verð sem er í boði á
Íslandi. Við höfum einnig reynslu af
samskiptum við Sjúkratryggingar
Íslands og útbúum ókeypis fyrir sjúk-
linga okkar skjöl sem gera þeim kleift
að fá endurgreiddan hluta kostnaðar
við meðferð á stofunni okkar.“ Frá
og með 16. september verður enn
einfaldara að panta far til Kraká en
þá verður boðið upp á beint flug frá
Keflavík til Kraká Balice flugvallarins.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunni indexmedica-island.com
Einnig má senda fyrirspurnir á
íslensku office@indexmedica.eu eða
hringja í síma +48 690 808 840 og
fá upplýsingar á ensku.
Facebook: Indexmedica – Tann-
læknaþjónusta í Kraków
INDEXMEDICA:
Fyrir og eftir keramikkrónur.