Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2019, Blaðsíða 24
2. ágúst 2019KYNNINGARBLAÐ 9.
Ég heyrði fyrst af Kreativ Dental Clinic þegar ég var í meist-aranámi í alþjóðahagfræði
í Búdapest. Læknanemar sem ég
kynntist ræddu um tannlæknastof-
una og minntust á að þetta væri
ein besta tannlæknastofa í Evrópu.
Fólk gerði sér ferð til Búdapest
hvaðanæva úr heiminum, meðal
annars frá Danmörku og Noregi til
þess eins að gangast undir tannmeð-
ferðir hjá stofunni. Ég varð hissa að
heyra þetta því ég hafði alltaf heyrt
að heilbrigðiskerfið í Skandinavíu
væri vel rekið og frekar ódýrt fyrir
notendur. Ég varð forvitinn um þessa
rómuðu stofu og kynnti mér málið,“
segir Grímur Axelsson, umboðsmaður
Kreativ Dental á Íslandi, sem búsettur
er í Búdapest.
Tannlæknar og tannsmiðir sem eru
hoknir af reynslu
Grímur uppgötvaði að Kreativ Dental
er engin venjuleg tannlæknastofa,
a.m.k. ekki í þeirri merkingu sem við
leggjum í orðið hér heima. Þetta er
stór tannlæknamiðstöð sem hefur
yfir að ráða fjórtán tannlæknastofum
í hæsta gæðaflokki. Hjá miðstöðinni
starfa fjórtán tannlæknar og tann-
sérfræðingar í fullu starfi undir sama
þaki. Þeir eru rótarsérfræðingar,
tannholdssérfræðingar, sjö almennir
tannlæknar, tveir tannplantsér-
fræðingar og þrír „Maxillio“ kjálka-
skurðlæknar, sem sjá um flóknustu
kjálkaskurðaðgerðirnar. Hjá Kreativ
Dental starfa einnig yfir tuttugu tann-
smiðir, af þeim eru fimm meistarar,
á einu fullkomnasta tannsmíðaverk-
stæði í Evrópu. Einnig eru þar sýni-
kennarar fyrir stærsta postulínsfram-
leiðanda í heimi, Vita, sem er þýskt
fyrirtæki. Allir þessir sérfræðingar
hafa unnið hjá Kreativ Dental í fjölda
ára og býr stofan yfir rúmlega 20
ára reynslu við flóknustu tannsmíði
og tannviðgerðir. Til stendur að
opna nýtt tannsjúkrahús á vegum
Kreativ Dental seinna á þessu ári,
þar sem fyrirhugað er að einblína á
beinígræðslu og tannlækningar undir
fullri svæfingu og bjóða upp á fastar
heildarlausnir í tannplöntum og öðru.
„Þangað er búið að ráða einn fremsta
kjálkaskurðlækni í Evrópu, en hann
starfaði áður sem prófessor og er yf-
irlæknir í meðferðarstöðinni í Brugge
í Belgíu, sem sérhæfir sig í lagfæring-
um á skarði í vör.“
Lifði lengi vel á orðspori einu saman
Miðstöðin er í fyrsta sæti af 73 skráð-
um tannlæknastofum í Ungverjalandi.
Eigendur miðstöðvarinnar er metn-
aðarfull tannlæknafjölskylda sem er
annt um orðspor sitt og kappkostar
að bjóða upp á bestu þjónustu sem
völ er á. „Árið 2016 ákvað ég að ger-
ast umboðsmaður fyrir Kreativ Dental
á Íslandi og hóf að koma Íslendingum
í samband við sérfræðinga Kreativ
Dental. Lengi vel auglýsti Kreativ
Dental ekki og lifði einungis á góðu
orðspori. Hið góða orðspor Kreativ
Dental barst manna á milli og fólk
hafði samband við okkur. Undanfarin
eitt til tvö ár hafa fleiri aðilar á Íslandi
farið að bjóða upp á almenna þjón-
ustu í samstarfi við aðrar erlendar
tannlæknastofur. Við sáum að það
var kominn tími til þess að vera sýni-
legri á markaðnum, bæði fyrir okkur
og framtíðarviðskiptavini okkar.“
Ábyrgjast gæði
„Tannlæknamiðstöðin Kreativ Dental
er ávallt með nýjustu ISO 9001
gæðavottun og er reglulega tekin út
af Lloyd’s Register. Kreativ Dental
býður 5–6 ára ábyrgð á krónu- og
brúarsmíði, sem er ein lengsta
ábyrgð í Evrópu. Aðeins þarf að
fara í skoðun hjá tannlækni á um
það bil árs fresti, annaðhvort frítt
hjá Kreativ Dental í Búdapest eða
hjá sínum tannlækni á Íslandi. Eins
hefur Kreativ Dental samstarfstann-
lækni á Íslandi sem tekur vel á móti
okkar fólki. Eftir því sem ég best veit
fylgir engin ábyrgð á viðgerðum
hjá íslenskum tannlæknastofum en
einhverjar tannlæknastofur erlendis
bjóða upp á þriggja ára ábyrgð, en
þá þarf að koma til þeirra í skoðun
á sex mánaða fresti. Til að halda
ábyrgðinni hjá Kreativ Dental er
nauðsynlegt að mæta um það bil
árlega í tannskoðun, hvort heldur er
hjá eigin tannlækni heima á Íslandi,
samstarfstannlækni Kreativ Dental á
Íslandi eða í skoðun hjá Kreativ Dental
í Búdapest en sú skoðun er ókeypis.
Ábyrgðin fellur ekki úr gildi þó svo að
fólk þurfi að fara í aðrar tannviðgerðir
annars staðar en hjá Kreativ Dental,
en tannlæknarnir hjá Kreativ Dental
vilja og þurfa vissulega að fá að fylgj-
ast með sínu fólki.“
Persónuleg þjónusta á íslensku í
gegnum allt ferlið
Kreativ Dental leggur mikið upp úr
persónulegri þjónustu. Miðstöðin er
með þjónustuborð á flugvellinum
í Búdapest þar sem vel er tekið á
móti gestum tannlæknastofunnar.
Þar fær viðskiptavinurinn upplýs-
ingar um tíma í skoðun og bílstjóri
Kreativ Dental ekur viðkomandi á
samstarfshótel tannlæknamiðstöðv-
arinnar. „Hátt í fjörutíu Íslendingar
nýta sér þjónustu okkar í hverri viku.
Þeir sem eru að ferðast einir á veg-
um Kreativ Dental rekast því strax
á landa sína við þjónustuborðið á
flugvellinum í Búdapest. Á hótelinu
er því enginn einn og fólk miðlar og
ræðir um reynslu sína. Hjá Kreativ
Dental starfar þjónustustjóri sem
talar reiprennandi íslensku og er við-
skiptavinum okkar til halds og trausts.
Hann starfar einnig sem túlkur á milli
viðskiptavinar og tannsérfræðinga, ef
þess er óskað.“ Allt ferlið getur farið
fram á íslensku fyrir þá sem vilja en
þess má geta að allir tannlæknar
eru enskumælandi. „Einnig er ég á
staðnum sem umboðsmaður Kreativ
Dental á Íslandi. Eftirfylgni af hálfu
Kreativ Dental fer svo að sama skapi
fram á íslensku og er fólk hvatt til að
vera áfram í góðu sambandi við okkur
eftir að meðferð lýkur.“
Verð, gæði og tímasparnaður
Ástæður þess að fólk, hvaðanæva úr
heiminum, velur Kreativ Dental Clinic
frekar en aðrar stofur eru margvís-
legar en þær helstu eru verð, gæði
á þjónustu og tímasparnaður. „Hjá
Kreativ Dental eru engin falin gjöld.
Verðlisti á meðferðum er fullkomlega
gegnsær. Ef þú kaupir tannplant-
meðferð, kostar hún 680 evrur. Það
bætist ekkert aukalega við aðgerðina,
eins og að opna fyrir tannplanta,
deyfing, notkun á skurðáhöldum,
verð fyrir grisjur eða annað. Sama
gildir um aðrar meðferðir eins og til
dæmis kinnholulyftingu (e. sinus lift).
Reynsla og gæði eru helstu ástæður
þess að fólk tekur Kreativ Dental fram
yfir aðrar tannlæknastofur en fram
hefur komið að þar starfa einhverjir
af fremstu tannsérfræðingum heims.
Árið 2015 var Kreativ Dental Clinic
valin tannlæknastofa ársins í Evrópu
af International Medical Travel Jo-
urnal. Árið 2017 valdi Global Health
and Pharma hana tannlæknastofu
ársins í heiminum. Ári síðar var hún
valin tannlæknastofa ársins í heimin-
um af IMTJ. Á þessu ári gáfu við-
skiptavinir tannlæknastofa víðs vegar
í heiminum Kreativ Dental hæstu
einkunn og fékk tannlæknastofan
viðurkenningu þess efnis. Tíma-
sparnaður er einn af kostunum við
að velja Kreativ Dental. Allir sér-
fræðingar Kreativ Dental, eins og
tannlæknar og tannsmiðir, eru undir
sama þaki og vinna náið saman að
því að skipuleggja og halda utan um
meðferðarferli viðskiptavinarins. Allt
fer fram á skilvirkan og þægilegan
hátt og fólk er yfirleitt búið áður en
það veit af.
Það fer eftir því hve mikið inngripið
er og hve mikið er verið að lagfæra
hversu oft þarf að koma í heimsókn.
Allir okkar viðskiptavinir byrja á því
að mæta í skoðun, myndatöku og
fá meðferðaráætlun sem miðar að
því að koma tannheilsunni í lag. Það
ferli getur tekið um 2–3 klst., er án
skuldbindingar og kostar ekki neitt.
Í sumum tilfellum kemur í ljós að
það þarf ekkert að gera við, í öðrum
tilfellum þarf að fara fram viðgerð.
Ef í ljós kemur að viðkomandi þarfn-
ast tannviðgerðar og jafnvel fleira
því tengt setja sérfræðingar Kreativ
Dental upp nákvæma kostnaðar- og
meðferðaráætlun, viðskiptavininum
að kostnaðarlausu. Út frá því ákveða
viðskiptavinir hvað þeir vilja gera,
hvaða tími hentar þeim fyrir meðferð
og fleira. Þjónustustjóri er til halds
og traust í gegnum allt þetta ferli. Á
þessum tímapunkti hefur viðskipta-
vinur ekki borgað krónu fyrir þjónustu
Kreativ Dental og hann er ekki skuld-
bundinn til þess að hefja meðferð hjá
stofunni. Ef meðferðir eru flóknar og
þarf að framkvæma í mörgum skref-
um er ekki óalgengt að viðskiptavinir
komi 2–3 sinnum til okkar í Búdapest
en vert er að geta þess að ferlið tekur
ótrúlega stuttan tíma.“
Tannsmíðanemar frá Íslandi sækj-
ast eftir að komast í starfsnám til
Kreativ Dental
„Það er gaman frá því að segja
að íslenskir tannsmíðanemar hafa
undanfarið sóst eftir því að komast í
starfsnám hjá Kreativ Dental. Í haust
hefur Kreativ Dental boðið að taka
tvo íslenska tannsmíðanema í starfs-
nám og verður spennandi að fá þá
í okkar hóp,“ segir Grímur og býður
íslensku tannsmíðanemana velkomna
til Búdapest.
Hafir þú áhuga á að kynna þér
málið frekar, eða hefja meðferð hjá
Kreativ Dental Clinic, gerðu svo vel
að hafa samband í síma 859-9403
eða sendu vefpóst á grimur@kreati-
vdentalclinic.eu
Nánari upplýsingar um verð og
þjónustu má nálgast á heimasíðunni:
kreativdental.is
Fylgstu með á Facebook: Kreativ
Dental Ísland
Einnig er óháður spjallhópur á
Facebook þar sem fyrrverandi við-
skiptavinir Kreativ Dental og áhuga-
samir geta átt samskipti um þjónustu
stofunnar, fundið sér ferðafélaga og
spjallað um hvað sé vert að gera í
heimsborginni Búdapest: Tannlækn-
ingar í Búdapest- Kreativ Dental-
spjallhópur
Fólk velur Kreativ Dental Clinic vegna
sérfræðiþekkingar og góðrar þjónustu