Skessuhorn - 20.12.2001, Side 3
gBiSSlíIg©BH
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001
3
Nýtt skólahús mun rísa á Bifröst
Byggt fyrir 800 millj-
ónir á tveimur árum
s
Framtíðin er okkar segir Runólfur Agústsson rektor viðskiptaháskólans
Bjöm Bjamason
Síðastliðinn þriðjudag tók Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
fyrstu skóflustunguna að nýju
skólahúsi fyrir Viðskiptaháskólann
á Bifröst við hátíðlega athöfn. Þá
voru teknar í notkun 20 nýjar íbúð-
ir fyrir nemendagarða skólans og
síðast en ekki síst tilkynnt um
byggingu nýs leikskóla fyrir há-
skólaþorpið.
Gífurlegar framkvæmdir hafa átt
sér stað á Bifröst og hvert húsið á
fætur öðru hefúr risið til að hýsa
bæði nemendur og starfsfólk.
Heildarfjöldi nemenda á Bifröst er
um 270 en íbúar eru um 400. Gert
er ráð fyrir að eftir tvö ár verði í-
búafjöldi á Bifröst um 600 og því
má búast við enn frekari fram-
kvæmdum á svæðinu. Ef hinsvegar
eru teknar saman þær framkvæmd-
ir sem átt hafa sér stað að undan-
förnu og þær sem þegar eru fyrir-
hugaðar lætur nærri að heildar-
kostnaður við þær sé um 800 millj-
ónir.
"Hér er um að ræða einhverja þá
stórfelldustu fjárfestingu sem átt
hefúr sér stað í menntun á lands-
byggðinni," sagði Runólfur Agústs-
son rektor Viðskiptaháskólans á Bif-
röst í samtali við Skessuhom eftír at-
höfiúna í gær. "Verið er að byggja
upp menntunar- og þekkingarþorp
þar sem áætlað er að um 600 manns
búi, nemi og starfi innan tveggja ára.
Þessi mikla fjárfesting byggir á
sterkri fjárhagslegri stöðu Viðskipta-
háskólans, skýrri kennslufræðilegri
sérstöðu og gæðum í námi, góðri
aðsókn og því áliti sem rúmlega 80
ára saga skólans hefúr skapað hon-
um," segir Runólfúr.
Ríkisábyrgð
Nýja skólahúsið á Bifföst verður
1.100 fermetrar á tveimur hæðum
og mrm hún hýsa aðalfyrirlestrarsal
skólans og ýmiskonar vinnurými
fyrir nemendur og starfsmenn. Arki-
tektar hússins em þau Steve Christ-
er og Margrét Harðardóttir á arki-
tektastofúnni Stúdíó Granda.
Kosmaður við byggingu skóla-
hússins er um 200 milljónir og er
framkvæmdin fjármögnuð með láni
frá Norræna fjárfestingabankanum
og innlendum bönkum. Þá veitír
Byggðastofnun ríkisábyrgð vegna
lántökunnar. Nemendagarðar og
starfsmannaíbúðir hafa verið fjár-
magnaðar að stómm hluta með lán-
um frá Ibúðarlánasjóði og við at-
höfnina á Bifröst í gær kom fram að
sú lánveiting næmi nú þegar um 500
milljónum.
Kristinn Gunnarsson formaður
stjórnar Byggðastofnunar sagði
aðekki væm fordæmi fyrir aðkomu
byggðastofnvmar að uppbyggingu
sem þessari enda hefði hún fyrst og
fremst sinnt verkefnum sem tengj-
ast atvinnumálum. Sagði hann
helstu rökin vera þau að þeir sem
smnduðu nám á landsbyggðinni
væra líklegri til að setjast þar að. Þá
sagði hann ýmis samfélagsleg áhrif
einnig mikil af slíkum stofnunum.
Samfélagsleg áhrif
"Samfélagsleg áhrif starfsemi af
þessari stærð era gríðarleg," segir
Runólfur. "Eg held að Borgfirð-
ingar margir vanmeti stórlega þátt
háskólanna tveggja í atvinnulífi
héraðsins, en hvarvetna er háskóla-
starfsemi talin mjög arðbær fyrir
sitt næramhverfi. Þessi efling Bif-
rastar mun styrkja Borgarbyggð og
Borgarfjörðinn á svipaðan hátt og
stóriðjan á Grundartanga hefur
styrkt Hvalfjarðarsvæðið. Háskól-
arnir Bifröst og Hvanneyri eru
helstu vaxtarbroddar héraðsins og
munu á næsm áram verða enn mik-
ilvægari Borgfirðingum og reyndar
Vestlendingum öllum. Fjárfesting í
menntun er fjárfesting í framtíð-
inni. Það sem við höfum sannað
hér á Bifröst er að landsbyggðin er
ekki dæmd til að lifa á framfram-
leiðslu. Það er hægt að byggja upp
arðbær þekkingarfyrirtæki úti á
landi. Framtíðin er okkar," segir
Runólfur.
GE
ATHUGIÐ
Þorláksmessuskatan
veröur á sínum staö í
Matstofunni, Borgarnesi.
Tökum gjarnan viö
pöntunum í síma
437 1220
Matstofan, Borgarnesi
Um leið og Áburðarverksmiðjan hf. þakkar
frábærar viðtökur og ánægjulegt samstarf á árinu
sem er að líða, óskar hún viðskiptavinum sínum,
íslenskum bændum og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og góðrar uppskeru á nýju ári.
Hlökkum til samstarfsins á komandi árum.
Áburðarverksmiðjan hf.
Gufuncsi -128 Reykjavík
Sími 580 3200 - Fax 580 3209 - www.aburdur.is