Skessuhorn

Eksemplar

Skessuhorn - 20.12.2001, Side 37

Skessuhorn - 20.12.2001, Side 37
í»iíí*SSStifWÍííá;í FIiVIMTUDAGÚR 20. 'ÖÉSEMBER 2001 1Z * UMSB veitir bama- skólum sambands- svæðisins jólagjafir Sambandsstjóri UMSB, Asdís Helga Bjamadóttir, afhendir fulltrúa Andakílsskóla g/öf- inajýrir hönd UMSB og Fe'lags aldraóra í Borgarfjarðardölum. Nú í vikunni sendi Ungmenna- samband Borgarfjarðar öllum barnaskólum á sambandssvæðinu, þ.e. Grunnskólanum í Borgarnesi, Varmalandsskóla, Kleppjárns- reykjaskóla, Heiðarskóla og Anda- kílsskóla, heimildaskrá ásamt sögn- um með tilvísun til þjóðsagna, sem snerta Borgarfjörð og borgfirsk ör- nefni. Hugmyndin um að safna saman á einn stað slíkum gögnum kom ffam hjá sambandsstjóra UMSB, á fundi með félagi aldraðra í Borgarfjarð- ardölum í tdleftii af ári aldraðra árið 2000. Félagsmenn tóku þessum samstarfsvettvangi vel og hófust þegar handa. Um 90 bækur og rit voru skoðuð og skráð niður þau ör- nefni er komu ffam og tengjast á einn eða annan hátt héraðinu, á- samt sögnum úr sveitinni og sögum tengdum örnefnunum. Þessari samantekt verður haldið til haga og nú geymt á söffuun skólana þannig að nemendur geti nýtt sér þau í þeirri verkefnavinnu sem liggur fyrir á hverjum tíma. Það er jafn- framt von Ungmennasambandsins og Félags aldraðra í Borgarfjarðar- dölum að fleiri slík félög taki sig saman og safni slíkum gögnum um sitt starfssvæði og komi til Ung- mennasambandsins. Það getur þannig aðstoðað við að koma þeim á framfæri með margvíslegum hætti. Þekking á nágrenni okkar hvetur til betri umgengni og virð- ingar við landið, en það ý alltaf að vera eitt af meginmarkmiðum ungmennafélaganna. "Landslag yrði lítils virði, ef það héti ekki neitt" eins og Tómas Guðmunds- son orti. Dæmi um ömefhasögu skráða af Þómnni Eiríksdóttur: Auðunnarlág. Miðja vegu milli eldra íbúðarhússins á Steinum í Stafholtstungum og fjárhúsanna þar, er dálítil lág, sem heitir Auð- unnarlág. Þar er stór steinn. Hefur sneið úr honum auðsjáanlega klofnað ffá og fallið niður. Sögn er um að lágin sé kennd við vinnu- mann, sem eitt sinn var á Steinum, og Auðunn hét. Auðunn hafði ver- ið að svíkjast um og lagt sig undir steininn. En þá hrundi stykki úr steininum ofan á hann og sagan segir, að hann sé þar enn undir! Gleðileg jól ogfarsœlt komandi ár Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða Efnalaug Þ^ottahús Borgarbraut 55 Borgamesi s. 4371930 Kaffihúsamenning í Borgames Kaffi Kot á Brúartorg « Húsmeði Kaffi Kots við Brúartorg. Nýtt kaffihús með menningar- legu yfirbragði verður opnað í Borgarnesi á Þorláksmessu. Það eru þau hjónin Hafsteinn Sævars- son og Halldóra Bergsdóttir sem eru eigendur kaffihússins sem hefur hlotið nafhið Kaffi Kot og verður það staðsett þar sem áður var Borg- arsport, við Brúartorg. I samtali við Skessuhorn sagði Hafsteinn að kaffihúsið yrði reyklaust á matmáls- tímum en þess á milli yrði gerð málamiðlun þannig að allir gætu vel við unað, reykingarmenn og aðrir. Kaffi Kot mun verða opið alla virka daga frá 11- 23 og um helgar frá 11-13. Segist Hafsteinn vera með margar hugmyndir á prjónunum og ædar hann að vera atkvæðamikill í menningarlífinu, standa fyrir menningaruppákomum af margvíslegu tagi eins og víns- mökkun og ljóðalestri. Þá fá fót- boltabullur þar inni, trúbadorar munu koma annað veifið í heim- sókn auk þess sem hann hyggst stofna matarklúbb sem höfða á sér- staklega tíl kvenpeningsins. Verða þau með fullt vínveitingaleyfi og sælkerakaffi frá Italíu, Illy, sem ein- ungis einn annar staður hefur á boðstólum og er sérmalað í sér- hvern kaffibolla. Bakkelsi og smurt brauð verður á kaffitímum, súpa og salat í hádegi og á kvöldin verður fjölbreytt úrval af léttum réttum í boði. Verðinu verður stdllt í hóf. Hafsteinn er lærður þjónn og hefur starfað við þá iðn meira og minna síðustu 13 árin. Halldóra ^ kona hans hefur einnig starfað í veitingageiranum sl. 15 ár og bæði hafa þau unnið á flestum þekktustu hótelunum í Reykjavík og víðar. Hafsteinn er rekstrarfræðingur frá Bifröst og Halldóra klárar sama nám næsta vor. smh UPPHEIMAR Gleðileg jól og farsælt komandi ár Pökkum mjög góðar móttökur á árinu sem er að líða * 4 * € 1

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.