Skessuhorn - 20.12.2001, Síða 46
* 46
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001
§!ESSIÍSi©12M
«
4T
Maðurinn sem talar með maganum
Guðjón Bjarnason í Bæjarstæði
Á stéttinni fyrir framan hús Guð-
jóns Bjamasonar við Höfðagrund á
Akranesi logaði á tveimur kertum í
blíðunni sunnudaginn 16. desember
síðast liðinn. Þá voru liðin slétt 90 ár
ffá því að þessi brosmildi og hjarta-
hlýi öldungur kom í heiminn. Guð-
jón er jafnan kenndur við Bæjarstæði
sem stóð þar sem Suðurgata 103 er í
dag. I tíleíni dagsins sóttu liðsmenn
Slökkvihðs Akraness sinn gamla for-
ingja heim, í fullum herklæðum og
með bhkkandi ljósum á öllum bíla-
flota liðsins svo fólk dreif að úr öll-
um áttum og hélt að stórbruni væri í
smáhýsahverfinu að Höfða. "Það var
nú ekki ástæða til að kalla út slökkvi-
liðið útaf þessum kertum mínum,"
sagði Guðjón þegar hann tók á mótí
gestunum sem hólkuðu af sér gallan-
um á stéttinni og gengu í bæinn til
að þiggja kafBsopa.
Slökkviliðsmaður
númer 2
"Þeir halda svona tryggð við mig,"
segir Guðjón þegar blaðamaður
Skessuhoms spyr út í þessa heim-
sókn slökkviliðsmannanna. "Það á
víst að heita svo að ég sé slökkvihðs-
maður númer 2 á Akranesi. Það var
árið 1934 sem við vomm settir tveir
bflstjórar til að stjóma brunadælunni
þegar hún kom. Gísli stóri Sigurðs-
son í Bíóhöllinni var númer eitt.
Áður en dælan kom var notast við
strigafötur og hlaupið með þær og
þær handlangaðar og hvað eina og
vatnið sótt í brunnana við húsin.
Annars vom alhr skyldaðir til að
mæta þegar útkallið kom. Tveir
menn hlupu um bæinn og kölluðu
eldur hér eða eldur þar og þá komu
allir sem vom verkfærir til starfa við
að slökkva eldinn. Menn vom skyld-
aðir til þessara starfa og enginn á
launum nema slökkviliðsstjóri en nú
fa menn greitt fyrir vinnu. Þegar
Gísli veiktist varð ég dælustjóri. Eg
tók við slökkvistöðinni 1964 og var
ráðinn án þess að pólitík kæmi þar
við sögu. Eg hef til allrar hamingju
verið blessunarlega laus við pólitík.
Eg hætti þá akstri og gegndi þessu
starfi formlega tíl 1982 en þá var ég
kominn á aldur. Eitthvað gekk þeim
póhtíkusunum brösulega að koma
sér saman um eftírmann minn og
fyrir vikið gegndi ég starfinu hátt í ár
í viðbót. Eg fékk á sínum tíma starf
sem eldvamareftirlitsmaður og fór
hér í hvert einasta hús hér í plássinu
til að fylgjast með frágangi eldfæra
enda vora kolaeldavélar í mörgum
húsum og seinna kynt með olíu.
Tvisvar á ári fór ég í timburhúsin.
Leikir bemskunnar
Það breiðist bros yfir andlit Guð-
jóns þegar hann spurður um æslcuár-
in á Skaga. "Ég er fæddur 1911 og
uppalinn í Bæjarstæði þar sem ég
byggði mitt hús seinna meir. Pabbi
byggir á lóðinni rétt upp úr alda-
mótunum, fyrst torfbæ en síðar hús
á hlöðnum gmnni. 1926 var svo
byggt ofan á það og ég man að hom-
ið á bíslaginu sem var byggt til að
komast upp á efri hæðina skagaði út
í Suðurgötuna. Það var skrítið hvar
þeir létu götuna koma þegar þeir
breyttu henni því að þrátt fyrir nóg
pláss þama vildu þeir endilega láta
hana koma inn á Bæjarstæðislandið
og eyðilögðu þar með heilar þrjár
byggingarlóðir.
Leikvangurinn okkar barnanna
var Langisandur og klettarnir og svo
kálgarðamir á haustín og veturna.
Pabbi áttí árabát og hafði uppsátur í
Ivarshúsavör sem hvarf undir bygg-
ingar Sementsverksmiðjunnar. Við
höfðum kindur og ræktuðum kart-
öflur og við þetta vann maður, hey-
skapinn og mótekjuna. Um tíu ára
aldurinn byrjaði maður svo að vinna
við að breiða út saltfiskinn á reitun-
um hjá Haraldi Böðvarssyni. Svona
gekk þetta til í leikjum og störfum,
við lékum parís, feluleiki, fallin
spýta, útilegumannaleik, sýslumann
og böðull og hvað það nú var sem
við höfðumst að. Við máttum leika
okkur í kálgarðinum í Bæjarstæði og
þar lékum við fótbolta en knötturinn
var gerður með því troða út með
heyi rakaðan og verkaðan
hrútspung. Ekki máttum við leika á
túnunum. Þannig vora nú fyrstu fót-
boltamir á Skaga áður en reimuðu
leðurboltarnir komu. Garðurinn var
harðtroðinn efrir sparkið og þræl-
dómur að stinga hann upp á vorin."
Símskeytasendill
og skátaforingi
14 ára varð ég sendill á símstöð-
inni á Söndum og stöðvarstjórinn
vildi endilega að ég fengi síma. A
skiptiborðinu var pláss fyrir 60 núm-
er en á þessum tíma vom ekki nema
um helmingurinn af þeim í notkun.
Eg fékk númer 60 og það hangir enn
við númerið mitt í dag. Bæjarstæði
var í þá tíð efsta húsið á Skaga."
Skátafélagið var stofnað 1926 og í
því félagi átti Guðjón eftir að eiga
langan og farsælan feril. "Félagið er
stofnað um vorið en ég geng ekki í
það fyrr en um haustið, í október, á-
samt Hans Jörgenson sem er nýfall-
inn frá. Jón Hallgrímsson var for-
inginn okkar til dauðadags en þá tók
ég við sem félagsforingi og var það í
ein fjórtán ár. I samvinnu við kven-
skátana byggðum við Skátahúsið og
báram möl og sand í pokum af
Langasandi í bygginguna. Skátahús-
ið þótti fulllangt fyrir utan bæinn.
Við fómm fótgangandi í fyrstu útí-
legumar að Innri Holtum og upp að
Garðaseli og Akrafjalli. Á reiðhjól-
um fóram við lengst í Leirárlaug til
að komast í heitt vam að synda og
tvisvar fómm við í Hreppslaug og
tjölduðum í Meyjarlundi í Hafiiar-
skógi. Seinna fór ég svo að keyra
krakkana og sótti þau svo aftur. Við
fómm meira að segja á Bjúkkanum á
Þingvöll á skátamót. Og aldrei var
neitt tekið fyrir ferðimar - sem bet-
ur fer.
Fyrsti bíllinn
- og aukin umsvif
Ég tók bflpróf árið 1930. Þá fékk
maður ekki ökuskírteini fyrr en 20
ára. Ég var þó reyndar byrjaður að
keyra áður. Veturinn áður var ég
með verslun Haraldar Böðvarssonar
í Sandgerði en það atvikaðist þannig
að Ingólfur Jónsson verslunarstjóri
hans varð bráðveikur og vantaði
Harald mann til að hlaupa í skarðið.
Haraldur kemur niður í beiminga-
skúr eftir áramótin og spyr hvort ég
vilji taka verslunina. Ég fer heim og
tala við mömmu en pabbi var á sjó.
Mamma segir að Haraldur ráði
þessu, ég sé hjá honum og hún fer að
tína saman fatnað og annað í koffort
sem þá tíðkaðist að nota í ferðalög.
Þar var ég um veturinn og kom síð-
an heim um sumarið og vann við að
byggja Haraldarbúð og þá fæ ég
þessa dellu að vilja læra á bfl. Ég
lærði hjá Magnúsi Gunnlaugssyni en
varð síðan að bíða þar tíl aldrinum
var náð. En það var hægt að keyra án
þess að hafa skírteini ef maður átti
bílinn. Því var það ég keypti fyrsta
bílinn minn, sem var vörabfll, Ford
29 módel, af Gísla stóra sem veiktíst
af berklum og fór á Vífilsstaði. Ég
kaupi hann af Gísla á 150 krónur -
og ég áttí fyrir honum. Ég fékk und-
anþágupappíra ffá dómsmálaráðu-
neytinu og sýslumanninum um að
ég mætti keyra og tveimur dögum
eftír afrnælið mitt, þann 18. desem-
ber fékk ég svo ökuskírteini. Tveim-
ur ámm áður hafði ég verið í
Reykjavík og lært þar reiðhjólavið-
gerðir í Eminum og fór í framhald-
inu út í innflutning á reiðhjólum frá
Þýskalandi og Danmörku og flutti
einnig inn grammófóna og sauma-
vélar meðfram. Þetta hafði ég með
akstrinum.
Fyrsti bjúkkinn
Fyrsta fólksbílinn eignast ég 1934.
Það var Bjúkki og fyrrverandi ráð-
herrabíll. Ég vann um tíma hjá
Steindóri og hann vildi selja mér bíl
en ég vissi að þeir vom allir mikið
keyrðir sem hann vildi selja en svo
fór ég frá Steindóri og var hér
heima. Ég ffétti síðan af þessum bfl,
hann hafði staðið um árs skeið og ég
keypti hann, fékk víxil í Sparisjóðn-
um upp á tvö þústmd kall. Spari-
sjóðsstjórinn Ami Böðvarsson setti
það sem skilyrði að bróðir minn
elsti, Sigtryggur, skrifaði uppá ásamt
Jóni Hallgrímssyni. Þar með átti
Sparisjóðurinn ekki að tapa þótt ég
yrði gjaldþrota. En svo gekk þetta
allt saman upp hjá mér, ég hafði
hjólaviðgerðirnar og keyrsluna - og
svo kom herinn og þá fékk ég
offiserana í Hvalfirðinum, þeir
leigðu af mér Bjúkkann og ég hafði
það bara mjög gott. Ég gat ekki
arrisserað hinum bílnum og seldi
hann. Með offiserana fór ég á milli
kampanna hér á Vesturlandinu,
maður fór nokkuð reglulegar ferðir
á Kjalames, í Borgames og Bröttu-
brekku. Ég fékk fasta vinnu með
vömbflinn hjá þeim við að flytja vör-
ur. Þá losuðu skipin vöramar hérna
á Akranesi og þurftí að keyra í Hval-
fjörðinn. Seinna lagði ég svo vöm-
bflnum og sneri mér að því ein-
göngu að keyra fólksbflinn. Ég var í
leiguakstri yfir 30 ár.
Fyrst þegar ég var að fara á milli
Reykjavíkur og Akraness var ég
svona á sjötta tíma ef ekkert kom
uppá, ef maður festi sig ekki og ekk-
ert bilaði. Vdpurnar vora margar og
oft sat maður fastur. Þá varð maður
að tjakka bflinn upp og rogast með
grjót að fylla undir og svoleiðis. Svo
batnaði þetta smám saman og þegar
kom þar að ég var ekki nema fjóra
tíma suður þá fór ég að fara til baka
sama dag.
Ég man ekki árið sem fyrstí bfllinn
kemur á Akranes en það var Þórður
Asmundsson og Bjami Olafsson sem
kaupa fyrsta bflinn til Akraness. Sá
bfll var með keðju aftur á öxul. Og
þrír pedalar: Low, high. Og bremsa.
Sveinbjöm Oddsson sem var þekkt-
ur verkalýðsleiðtogi var bflstjóri á
þessum bfl. Næsmr til að eignast bfl
er Þórður Þorsteinn Þórðarson á
Hvítanesi og svo bættust við bílar,
Magnús Gtmnlaugsson var með eina
sex á tímabili og útgerðarmennimir
fóm að fá sér bfla, Haraldur, Þórður
og Siggi í Tungu og Mangi á Hóla-
völlum. Ætli það hafi ekki verið
komnir héma 10 til 11 bflar þegar ég
kaupi Fordinn 1930. Þetta var mikil
vinna. En maður var ungur og gat
unnið. Allt flutti maður. Möl, sand,
hey, mó, fisk og fénað. Mér þénaðist
vel og stofnaði fjölskyldu en á stríðs-
árunum gegnum við Ingibjörg í það
heilaga. Svo fékk ég mér annan
Bjúkka og átti þá tvo slíka og hafði
strák til að keyra með mér.
Heymartækið úr
Familie Joumal
Á fjórða áratugnum byrjaði Guð-
jón að tapa heym og hann hefur frá
því á stríðsárunum gengið með
heyrnartæki. Hljóðnemann ber
hann framan á bringunni og þaðan
liggur þráður í lítið tæki sem lagt er
við höfuðkúpuna fyrir ofan hægra
eyrað. Þegar Guðjón talar í síma
leggur hann tólið að bringunni til
heyra í viðmælanda sínum.
"Þetta er maðurinn sem talar með
maganum segja börnin þegar þau sjá
mig tala í síma. Einu sinni fékk ég að
hringja á bæ hjá góðri konu og lagði
símtólið að hljóðnemanum á bring-
unni. Hún gekk þá að mér og tók af
mér símtólið og bar upp að eyranu
og sagði: "Þú átt að gera svona!"
Ég verð fyrst var við að eitthvað er
í ólagi árið 1937. Þá fer ég á al-
heimsskátamót í Hollandi ásamt
þrjátíu öðmm Islendingum. Eftír
mótið ferðuðumst við um Evrópu
og skoðuðum meðal annars heims-
sýninguna í París. Þar sáum við
heiminn á heimssýningunni. Við
Fyrsti bíllinn: Ford árgerð 1929.