Skessuhorn - 23.11.2005, Side 40
40
MIÐVIKUDAGUR 23. NOVEMBER 2005
^kUsunuLi
hérsnyrtistofa
Borgarbraut 1 - Stykkishólmi
Sími: 438-1587
Pantið jólaklippinguna í tíma.
Opnunartími í desember:
Opið alla virka daga frá kl: 10:00-18:00
Opið til kl: 21:00 öll miðvikudagskvöld
Laugardagar
3. des opið frá kl: 10:00-16:00
10. desopiðfrákl: 10:00-18:00
17. des opið frá kl: 10:00-20:00
Þorláksmessa opið frá kl: 10:00-23:00
Aðfangadagur opið frá kl: 10:00-12:00
Verið velkomin
%
Þorláksmessuskata
og tindabykkja
Saltfiskur
Harðfiskur
Ýsu- og þorskflök
Gellur, kinnar
Tangi
Grundarfirði
...og margt margt
fleira af gómsætu
sjávarfangi
Nánari upplýsingar
og pantanir í síma:
438-6929
og 690-2098
Getum við
aðstoðað þig?
4
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Forprentuð bréfsefni,
umslög & eyðublöð
Kveldúlfsgötu 23-310 Borgarnes
437 2360 - 893 2361
olgeirhelgi@islandia.is
~y
Orlofssjóður
JBHM
OBHM Leitar eftir
orlofskostum á Vestur-
landi, VestQörðum og
Norðurlandi vestra til
skiptileigu og/eða leigu.
Til greina koma sumarbústaðir, íbúðir í þéttbýli og
sérbýli. Einungis koma til greina staðir þar sem hægt
er að kaupa umsjónarþjónustu.
Eignirnar þurfa að vera í góðu ástandi.
Félagasamtök og aðrir sem hafa til umráða eignir sem
gætu komið tii greina eru beðnir að hafa samband við
Jóhönnu Engilbertsdóttur (johanna@bhm.is), Margréti
Þórisdóttur (margret@bhm.is) eða á skrifstofu OBHM
í síma 581 2090 fyrir 15. desember næstkomandi.
Gamlir og nýir badmintonspilarar velkomnir
Skemmtileg og góð hreyfing.
Þjálfari á mánudögum.
Mánud. 17:30-18:45 fullorðnir
Föstud. 18:45-20:00 fullorðnir
Laugard. 16:00-17:00 börn og fullorðnir saman
íþróttahúsið Borgarnesi
A
Operukór Hafrtarfjarðar syngur
á aðventutónleikum
Elín Ósk og Óperukór Hafnarfjarðar með Filharmoniuhljómrveit
Sofiu. Hljómsveitarstjóri var Bernharður Wilkinson.
Aðventutónleikar Tónlistarfé-
lags Borgarfjarðar verða haldnir í
Reykholtskirkju laugardaginn 26.
nóvember næstkomandi. Samstarf
Tónlistarfélagsins, Borgarfjarðar-
prófastsdæmis og Reykholtskirkju
um tónleika við upphaf aðventu
hófst árið 1996 og því verða tón-
leikarnir nú þeir tíundu sem þessir
aðilar standa að í sameiningu.
Blásarakvintett Reykjavíkur lék á
íyrstu tónleikunum en síðan hafa
m.a. Karlakór Reykjavíkur,
Söngsveitin Fílharmónía, Kamm-
ersveit Reykjavíkur, Gradualekór
Langholtskirkju, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir og blásarasveit - Diddú og
drengirnir - og Kammerkór Vest-
urlands komið fram á aðventutón-
leikunum.
Gestir okkar að þessu sinni eru
Operukór Hafnarfjarðar og undir-
leikaramir Peter Maté, píanó og
Lenka Matéova, orgel. Elín Osk
Oskarsdóttir er stjórnandi Op-
erakórs Hafnarfjarðar. Hún er ein
fremsta söngkona okkar, hefur
sungið fjölda óperuhlutverka inn-
anlands sem utan og hlotið marg-
víslegar viðurkenningar fyrir störf
sín að tónlistarmálum.
Félagar í Óp-
erukór Hafnar-
fjarðar eru um
70 talsins. Kór-
inn hefur sungið
víða á Islandi og
í október 2004
hélt hann hátíð-
artónleika ásamt
Fílharmóníu-
hljómsveitinni í
Sofiu í Búlgaríu
og flutti íslenska
tónlist á tónleik-
um í Plodvdiv.
Eins og nafn
kórsins gefur til
kynna þá hefur hann einbeitt sér að
flutningi óperu- og óperettutón-
listar eftir hin ýmsu tónskáld, s.s.
Verdi, Mascagni, Johann Strauss
og Lehár. Jafnframt hefur kórinn
flutt verk eftir íslensk tónskáld.
A tónleikunum í Reykholti verð-
ur flutt íslensk og erlend aðvenm-
og jólatónlist. Einsöngvarar verða,
auk Elínar Óskar Óskarsdóttur,
þau Þórunn Stefánsdóttir, Helga
Magnúsdóttir, Margrét Grétars-
dóttir, Björg Karítas Jónsdóttir,
Gréta Jónsdóttir, Björn Björnsson,
Kjartan Ólafsson, Birgir Hólm
Ólafsson, Ari B. Gústafsson, Krist-
inn Kristinsson, Haraldur Baldurs-
son og Stefán Arngrímsson. Öll
eru þau félagar í kórnum en hann
hefur á að skipa ffábæru liði ein-
söngvara.
Tónleikarnir í Reykholtskirkju
hefjast kl. 16.00. Aðgangseyrir er
2000 krónur fyrir utanfélagsmenn
og 1000 krónur fyrir böm og eldri
borgara. Að venju verða seldar
kaffiveitingar í safnaðarsal í hléi.
('fréttatilkynning)
Um þjónustu löggæslu
og sýslumannsembætta
Nefnd á vegum dómsmálaráð-
herra hefur nýlega skilað tillögum
að breyttri skipan lögreglumála í
landinu. Eðlilegt er að huga að
skipan sýslumannsembætta og lög-
reglumála í landinu ekki síst með
tilliti til breyttra samgangna og
búsetumynsturs. Lagt er upp með
mörg fögur markmið eins og að
efla almenna löggæslu og hraða
rannsóknum sakamála. En til þess
að svo megi verða þarf að fækka
umdæmum og skera verkefni af
sýslumönnum að mati nefndarinn-
ar.
Sýshimenn eru
umboðsaðilar ríkisins
í héraði
Löggæslan og starfsemi sýslu-
manna er einn mikilvægasti þáttur
í almannaþjónustu landsmanna og
þessi embætti eru þjónustustofn-
anir og umboðsaðilar ríkisins í
héraði auk þess að fara með lög-
reglustjórn. Nærþjónusta þessi
skiptir því íbúana miklu máli. Þá
ber og til að líta að opinber störf
sýslumannsembætta og lögreglu
skipta hin minni samfélög gríðar-
lega miklu varðandi fjölbreytni at-
vinnulífs. Dómsmálaráðherra hef-
ur boðað að flutt verði 12-15 sér-
greind störf og verkefni til
Blönduóss og byggð upp við sýslu-
mannsembættið á staðnum. Því
fagna ég og tel að þarna hafi verið
tekið myndarlega á sem vonað er
að framhald verði á við önnur
sýslumannsembætti. Vafalaust má
flytja stærri hluta af eftirlitsstofn-
unum til Sýslumannsembættanna
en sá iðnaður þenst út og vex eins
og gorkúlur á haug á Suðvesmr-
horninu. Nauðsynlegt er að fá
strax fram hugmyndir og áætlanir
stjórnvalda um frekari flutning
verkefna til sýslumannsembætt-
anna út um land.
Hlutverk lögreglunnar
er víðtækara en elta
þjófa og ökuníðinga
Starfsemi lögreglumanna tengist
ekki eintmgis löggæslumálum, elta
uppi þjófa og þá sem brjóta umferð-
arlögin, sem mér finnst tillögumar
taka um of mið af. Lögreglustjórar
fara með yfirstjóm leitar- og björg-
unarstarfa á landi. Þjónusta lögregl-
unnar að minnsta kosti út vun land
er ekki síður tengd fjölþættri aðstoð
m.a. leiðsögn við hinn almenna
borgara, fræðsla og forvamarstarf,
aðstoð í erfiðri færð, slys eða örmur
neyðartilvik, sjúkraflumingar og
björgunarstörf og svo ótal margt
annað. Þar skiptir nálægð þjónust-
unnar ekki síst máli fyrir strjálbyggð,
fámenn, landstór eða samgöngulega
eingraðar byggðir. Það er einkum
við þessi landstóru dreifbýlu sveitar-
félög sem ríkið ber sérstakar skyldur
í forsjá löggæslumála. Og það er nú
einmitt þegar aðstæður em erfiðast-
ar sem þörfin er mest.
Stöndum með sýslu-
mönnum í Búðardal
á Patreksfirði og
Hólmavík
Nefndin gerir tillögur um að lög-
reglan í Búðardal fari tmdir Borgar-
nes. Sömuleiðis að lögreglan á
Hólmavík fari þangað. Einnig er
gert ráð fyrir að löggæsla í Reyk-
hólahreppi fari undir Borgames. Þá
er gert ráð fyrir að lögreglan á Pat-
reksfirði fari undir sýslumanninn á
Isafirði. Ansi verða nú sýslumenn-
irnir strípaðir á þessum stöðum þeg-
ar lögreglan hefúr verið tekin frá
þeim. Hætt er þá við að embættin
sjálf og umsýsla þeirra fari fljótlega
sömu leið.
Með sýslumenn á staðnum er þó
langnærtækast að þeir verði áffam
lögreglustjórar en hafi samvinnu sín
á milli og við nágrannaembættin.
Patreksfjörður og ísafjörður era í
innbyrðis vegasambandi aðeins ör-
fáa mánuði á ári. Umdæmi Hólma-
víkurlögreglu spannar nokkur
hundmð kílametra og vegimir lok-
ast oft vegna veðra. Er ekki séð að
öryggi íbúanna aukist við að færa
lögreglustjóm Strandamanna suður
í Borgames, en um 200 km em frá
Borgarnesi til Hólmavíkur og á
fjórða hundrað km norður í Ames-
hrepp.
Dalamenn skora á
dómsmálráðherra og
þingmenn
Á þriðja hundrað íbúa Dalasýslu
hafa nú sent skriflega áskorun til
dómsmálaráðherra og alþingis-
manna um að verja og efla sýslu-
mannsembættið í Búðardal með nýj-
um verkefnum. Þar er „mótmælt
fyrirhuguðum áædtmum stjómvalda
að flytja lögreglustjóm í Dalasýslu
frá sýslumanninum í Búðardal og til
sýslumannsins í Borgarnesi." Er ein-
dregið tekið undir þá áskorun.
Eg tel hinsvegar að vel megi
skoða sameiningu löggæslu á Reyk-
hólum og Búðardal og setja þar
a.m.k. tvo lögreglumenn undir
stjórn sýslumannsins í Búðardal.
Tillögur að breyttri skipan sýslu-
manns og lögreglumanna sem nú er
verið að kynna þarf að skoða mun
nánar enda segir í skýrslunni: „Síð-
ast en ekki síst er mikilvægt að breið
samstaða skapist um þær tillögur að
breytingum sem hrint verður í fram-
kvæmd.“
Jón Bjamason,
þingmaður Vinstri hreyfingarinnar
græns framboðs