Skessuhorn - 18.03.2015, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 12. tbl. 18. árg. 18. mars 2015 - kr. 750 í lausasölu
HEFUR SAFNAÐ FYRIR
ÖKUTÆKI
FYRIR HVERJU
LANGAR ÞIG AÐ SAFNA?
Allt um sparnað á arionbanki.is/reglulegur_sparnadur
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Er þér annt
um hjartað?
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Þemadagur NordGen-skog og fagráðstefna skógræktar fór fram í Borgarnesi í
síðustu viku, dagana 11.-12. mars. Vesturlandsskógar voru gestgjafar á þessari
ráðstefnu en þátttakendur voru fagfólk úr geiranum, innlent auk erlendra gesta.
Alls tóku 111 þátt í ráðstefnunni, sem þykir nokkuð gott í ljósi þess að ein af
vetrarlægðunum gekk yfir landið á svipuðum tíma og gestirnir voru að mæta.
Meðfylgjandi mynd var tekin í kynnisferð sem farin var í tengslum við ráðstefnuna
í Einkunnir ofan við Borgarnes. Sjá nánar spjall við Sigríði Júlíu framkvæmda-
stjóra Vesturlandsskóga bls. 51. mm/ Ljósm. Edda S. Oddsdóttir.
Mikið foktjón um allt Vesturland
Eldri hlaða og sambyggt fjós á bæn-
um Hvítanesi undir norðanverðu
Akrafjalli splundruðust í ofsaleg-
um vindhviðum sem skullu á bæn-
um snemma á laugardagsmorg-
un. Mildi þykir að feðgar sem voru
við gegningar í húsunum slösuðust
ekki þegar veggir tóku að falla. Frá-
sögn af þessu og foktjóni víða um
Vesturland má lesa í Skessuhorni í
dag.
Á meðfylgjandi mynd eru Guð-
jón Friðjónsson frá Hóli í Svína-
dal, Marinó Tryggvason og Jón Þór
Marinósson í Hvítanesi með rúst-
ir úthúsanna í bakgrunni. Guðjón
býr á Akranesi en kemur daglega í
Hvítanes til að hjálpa til við bústörf-
in. Þegar óveðrið dundi yfir á laug-
ardaginn varð hann veðurtepptur
á Akranesi. Að öðrum kosti hefði
hann nær örugglega verið með við
gegningar og lent í hættu þegar
húsin féllu. Þeir feðgar Marinó og
Jón Þór stóðu í og við dyragættina
sem sést til vinstri á myndinni þeg-
ar veggir hlöðunnar hrundu.
mþh
Um næstu helgi verða fyrstu
fermingarathafnirnar á Vestur-
landi á þessu ári en líkt og fyrr
verða þær fyrstu á Akranesi. Á
þriðja hundrað ungmenni ferm-
ast í landshlutan-
um að þessu sinni.
Í Skessuhorni í
dag fylgir með
sérblað þar sem
þessara tímamóta
í lífi unga fólksins
er minnst. Rætt
er við fermingar-
börn fyrr og nú.
Meðal annars
er leitast við að
kanna tíðarand-
ann með því að
ræða við einstak-
ling frá hverjum
áratug allt aftur
til ferminga um
miðja síðustu
aldar. Þá er listi
yfir fermingar-
börn, m.a. rætt
um tískuna og
skreytingar og
síðast en ekki
síst við presta
um fermingar-
undirbúning-
inn og hvernig hann er að breyt-
ast. Auk venjubundinnar dreif-
ingar er blaðið sent til ferming-
arbarnanna sjálfra með kveðju frá
Skessuhorni. mm
Fermingar á næsta leiti
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Sýningar í
LANDNÁMSSETRINU
Ekki missa af
SKÁLMÖLD EINARS á
Söguloftinu
Flytjendur feðginin Einar
Kárason og Júlía Margrét
Sýningar í mars
Laugardagur 21. kl. 20:00
Sunnudagur 22. kl. 16:00
Laugardagur 28. kl. 20:00
“...frábær stund og minnti enn á þá einföldu
staðreynd að ekkert er eins skemmtilegt og að
láta segja sér spennandi sögu.” (Silja TMM)
Miðapantanir í síma 437-1600
eða landnam@landnam.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5