Skessuhorn - 18.03.2015, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Illviðri setur
mark á
umferðartölur
VESTURLAND: Öku
tækjum um Hvalfjarðargöng
fækkaði um 5.700 frá febrúar
2014 til sama mánaðar 2015
eða um 4,8%. Á vef Spal
ar segir að nærtækasta skýr
ingin sé auðvitað sú að djúp
ar læg ðir, sem koma á færi
bandi til landsins, svipti veg
farendum ferðaveðrinu aftur
og aftur. Það birtist ljóslega
í umferðartölunum. Vega
gerðin mældi samdrátt upp á
nánast sama hlutfall á hring
veginum í febrúar eða um
5%. Þar á bæ þarf að leita
til ársins 2010 til að finna
álíka samdrátt í þessum til
tekna mánuði frá fyrra ári.
Samdrátturinn var mestur á
Suðurlandi en umferð jókst
hins vegar á Norðurlandi og
Austurlandi.
-þá
Sitja eftir í sam-
göngumálum
BORGARBYGGÐ: Á
fundi sveitarstjórnar Borgar
byggðar síðastliðinn fimmtu
dag var samþykkt ályktun
um samgöngumál. Sveitar
stjórn Borgarbyggðar leggur
áherslu á að auknu fjármagni
verði veitt í bundið slitlag á
tengivegi og að hafnar verði
framkvæmdir til uppbygging
ar og viðhalds vega í sveitum
héraðsins. Í ályktuninni seg
ir að það sé orðið mjög að
kallandi að tryggja greiðari
samgöngur íbúa með tilliti
til aukinna atvinnutækifæra
og þeirrar miklu fjölgunar
ferðamanna sem framundan
er. „Borgarbyggð er eitt víð
feðmasta sveitarfélag lands
ins en tengivegir í Borgar
byggð eru samtals 263,4 km.
Ef litið er til heildartalna yfir
bundið slitlag í stoðvega
kerfi landsins þá sýna tölur
að einungis 4% af þessu slit
lagi er í Borgarbyggð, eða
12 km. Þetta telur sveitar
félagið ekki ásættanlegt en
uppbygging tengivega hef
ur ávallt verið forgangsmál í
sveitunum og talin forsenda
stækkunar atvinnusvæða og
bættra búsetuskilyrða.
–þá
Arason í
banastuði
BORGARFJ: Einmennings
keppni Briddsfélags Borg
arfjarðar hófst á mánudags
kvöldið. 27 spilarar mættu
til leiks svo úr varð ein yfir
seta sem flakkaði um salinn.
Guðmundur Arason á titil að
verja og hann gerði mönnum
ljóst að bikarinn yrði ekki lát
inn af hendi refjalaust. End
aði Guðmundur langefst
ur með rúmlega 65% skor.
KópaJón varð annar með
ríflega 61% í vasanum og
Sveinbjörn skoraði 56,3%
líkt og Ingólfur og deildu
þeir því þriðja sætinu. Lár
us varð svo fimmti með slétt
56%. Mótinu verður fram
haldið að viku liðinni og ljóst
að menn verða að bæta sig ef
bikarinn á að hafa vistaskipti.
Allir eru velkomnir.
-ij
Sólmyrkvi verður á föstudaginn. Skessu-
horn minnir fólk á að nota skilyrðislaust
sérstök sólmyrkvagleraugu ætli það og
geti horft til sólar. Annað getur valdið
varanlegum augnskaða. Vísað er einn-
ig í grein Guðrúnar Guðmundsdóttur
augnlæknis hér aftarlega í blaðinu.
Minni veðursveiflur virðast í kortunum
næsta daga en verið hafa að undan-
förnu. Á fimmtudag er spáð austlæg-
um strekkingi og rigningu eða slyddu
sunnan- og vestan til en heldur kald-
ara fyrir norðan og austan með snjó-
komu eða slyddu. Á föstudag er spáð
hægri suðlægri eða breytilegri átt og
þurru á flestum svæðum landsins en
bætir í vind vestan til um kvöldið með
rigningu eða slyddu. Á laugardag er út-
lit fyrir stinningskalda að suðri og rign-
ingu eða súld einkum sunnan- og vest-
an til. Útlit er fyrir sömu átt og vindstyrk
á sunnudag en þá kólni aðeins með élj-
um á sunnan- og vestanverðu landinu.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hefur tíðarfarið áhrif á geðslag
þitt?“ Samkvæmt svörunum virðist svo
vera. „Já mjög mikil“ sögðu 21,6% og
„já einhver“ 36,8%. „Nei engin áhrif“ var
svar 34,6% en 7% vissu það ekki.
Í þessari viku er spurt:
Hyggur þú á utanlandsferð
á þessu ári?
Frábærar söngkonur af Vesturlandi taka
nú þátt í hæfileikakeppninni „Ísland got
talent“ á Stöð2. Alda Dís Arnardóttir frá
Hellissandi kom, sá og sigraði í keppni
síðastliðið sunnudagskvöld, en næsta
sunnudag keppir Margrét Saga Gunn-
arsdóttir frá Akranesi. Þær eru Vest-
lendingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Almannavarnanefnd í Snæ
fellsbæ kom saman til fundar síð
astliðinn fimmtudag vegna yfir
vofandi snjóflóðahættu ofan við
Engihlíð í Ólafsvík. Tekin var
ákvörðun um að rýma tvær neðri
hæðir í efstu íbúðablokkinni við
Engihlíð og einnig heilsugæslu
stöðina en þessar tvær bygging
ar standa efst á þessum stað í
kauptúninu. Snjór var þá kom
Sveitarstjórn Borgarbyggðar sam
þykkti á fundi 12. mars síðastlið
inn að ráða Guðrúnu S. Hilmis
dóttur í starf sviðsstjóra umhverf
is og skipulagssviðs. 23 umsækj
endur voru um starfið. Guðrún er
byggingaverkfræðingur að mennt
frá Háskóla Íslands og Danmarks
Tekniske Universitet. Hún hef
ur víðtæka reynslu af stjórnun og
verkfræðistörfum. Guðrún hef
ur undanfarin ár starfað sem verk
efnisstjóri hjá umhverfis og skipu
lagssviði Reykjavíkurborgar en
vann áður hjá bæði Eski verkfræði
stofu og Hönnun. Þá starfaði hún
í nokkur ár hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga við umhverfismál
sveitarfélaga og menntamálaráðu
neytinu en þar vann hún m.a. að
verkefnum sem sneru að kostnað
arþátttöku ríkisins vegna byggingu
grunnskóla. Guðrún þekkir sveitar
félagið Borgarbyggð vel en hún bjó
um tíma í Borgarnesi.
þá
Tveir hópferðabílar fuku og lentu
utan vegar í óveðrinu sem geisaði
um landið vestanvert á föstudaginn.
Skömmu fyrir klukkan tvö fauk lít
il rúta út af veginum til móts við
Höfðasel á Akranesi, Æðarodda
megin. Ökumaður var einn í bíln
um, kenndi eymsla og var fluttur til
aðhlynningar á sjúkrahúsið á Akra
nesi. Klukkan 14:18 fauk rúta frá
BSA Norðurleið útaf þjóðveginum
við Hafnarfjall. Sautján manns voru
í bílnum og sluppu allir án meiðsla.
Björgunarsveitarmenn í Brák í
Borgarnesi ferjuðu fólkið í Borgar
nes. mm/ Ljósm. mþh
Útgerð Arnars ehf. í Stykkishólmi
hefur gert samning við Melnes
ehf. í Rifi um sölu á Arnari II SH
557 ásamt krókaaflahlutdeild og
krókaaflamarki sem bátnum fylgir.
Krókaaflamark á yfirstandandi fisk
veiðiári var tæp 57 tonn af þorski,
um 1,2 tonn af ýsu, 1,5 af ufsa, 1,2
tonn af blálöngu og um 600 kíló af
öðrum tegundum, alls 60,95 þorsk
ígildistonn. Með vísan í 3. mgr. 12.
greinar laga nr. 116/2006 um stjórn
fiskveiða var Stykkishólmsbæ boð
inn forkaupsréttur að Arnari II
SH 557. Sturla Böðvarsson bæjar
stjóri vakti á laugardaginn máls á
þessu á vef bæjarins, en benti jafn
framt á að frestur til að ganga inn
í kaupin væri skammur. „Um leið
og vakin er athygli á því að bæjar
stjórn þarf að taka afstöðu til for
kaupsréttar er upplýsingum kom
ið á framfæri um þessa fyrirhuguðu
sölu bátsins og aflaheimilda sem
æskilegt væri að gætu áfram nýst
útgerð, fiskvinnslu og starfsmönn
um hjá sjávarútvegsfyrirtækjum í
Stykkishólmi, sagði Sturla. Óskaði
hann eftir viðbrögðum þeirra sem
kynnu að vilja nýta sér þann mögu
leika að ganga inn í fyrirliggjandi
samning. Berist tilboð um að ganga
inn í kaupin mun Stykkishólmsbær
nýta sér forkaupsréttinn. Tilboðum
þurfti að skila inn til bæjarins fyrir
klukkan 16 í gær, þriðjudaginn 17.
mars. Tilboð, ef þau berast, verða
síðan tekin fyrir á fundi bæjarráðs á
morgun, 19. mars.
mm/ Ljósm. af.
Guðrún S. Hilmisdóttir.
Ráðið í nýtt starf sviðsstjóra hjá Borgarbyggð
Vísað til laga um að nýta megi
forkaupsrétt á Arnari II SH
Andri Heide læknir og Þórarinn Steingrímsson neyðarflutningamaður, en rýma
varð heilsugæslustöðina.
inn að hluta til yfir snjóflóða
varnagirðinguna í Tvísteinahlíð.
Lítilsháttar hreyfing hafði verið
á snjó í hlíðinni en ekkert stórt
flóð fallið. Prýðilegt veður var í
Ólafsvík á fimmtudaginn, lítils
háttar hiti og kyrrt.
Snjóflóð féll úr Tvísteinahlíð
í óveðri veturinn 1995 og stór
skemmdist þá húsnæði heilsu
gæslustöðvarinnar. Eftir það var
tekin ákvörðun um byggingu
varnargirðinganna í Tvísteina
hlíð en þeim framkvæmdum lauk
2007.
af
Rútan frá Norðurleið sem fór útaf við Hafnarfjall. Sautján voru í henni og sluppu
allir án meiðsla.
Tvær rútur fóru illa í óhöppum á föstudaginn
Hús voru rýmd vegna snjóflóðahættu í Ólafsvík
Rútan sem fauk við Höfðasel á Akranesi er illa farin og líklega ónýt.