Skessuhorn - 18.03.2015, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Mikilvægi
landupplýsinga
áréttað
LANDIÐ: Sameinuðu
þjóðirnar samþykktu ný
verið ályktun um mikilvægi
landmælinga og alþjóð
legra landmælingakerfa.
Ályktunin var lögð fram af
52 ríkjum og var Ísland þar
á meðal. „Ályktunin undir
strikar mikilvægi alþjóða
samvinnu á sviði landmæl
inga og fjarkönnunar við
vöktun á loftslagsbreyt
ingum og hamfarastjórn
un auk þess að hafa víðtækt
notagildi í samgöngum,
landbúnaði og verkleg
um framkvæmdum. Einn
ig er lögð áhersla á opið
óhindrað aðgengi að land
mælingagögnum um all
an heim,“ segir í tilkynn
ingu frá Landmælingum
Íslands. LMÍ bera ábyrgð á
alþjóðlegu samstarfi á sviði
landmælinga hér á landi
og rekur stofnunin lands
hnitakerfi og sameigin
legt hæðarkerfi fyrir allt
Ísland. Þessi kerfi leggja
samfélaginu til áreiðanleg
an grunn fyrir nákvæmar
mælingar s.s. vegna fram
kvæmda og vöktunar nátt
úrunnar. –mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
7. - 13. mars.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 8 bátar.
Heildarlöndun:
4.114.940 kg.
Mestur afli: Ingunn AK:
1.780.193 kg í einni lönd
un.
Engin löndun á Arnar-
stapa í vikunni
Grundarfjörður 7 bátar.
Heildarlöndun:
354.753 kg.
Mestur afli: Steinunn SF:
129.446 kg í tveimur lönd
unum.
Ólafsvík 18 bátar.
Heildarlöndun:
481.277 kg.
Mestur afli: Egill SH:
56.958 kg í þremur lönd
unum.
Rif 21 bátur.
Heildarlöndun:
639.219 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
145.585 kg í tveimur lönd
unum.
Stykkishólmur 5 bátar.
Heildarlöndun:
143.009 kg.
Mestur afli: Bíldsey SH:
59.215 kg í fjórum lönd
unum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Ingunn AK – AKR:
1.780.193 kg. 10. mars
2. Faxi RE – AKR:
1.328.801 kg. 10. mars
3. Lundey NS – AKR:
991.846 kg. 12. mars
4. Tjaldur SH – RIF:
88.006 kg. 8. mars
5. Hringur SH – GRU:
66.524 kg. 10. mars
mþh
Unnið að
áformum um
uppfyllingu
AKRANES: Starfshóp
ur um Breið á Akra
nesi hefur farið yfir hug
myndir og rýmisþörf HB
Granda á landfyllingu sem
er í skoðun að gerð verði
á fjörusvæðinu frá Steins
vör að stóra hafnargarð
inum á Akranesi. Þetta
var gert á fundi hópsins í
febrúar. Sömuleiðis hef
ur hópurinn haft til skoð
unar samning við ráðgjafa
fyrirtækið VSÓ Ráðgjöf
sem tekur að sér að kanna
og leggja mat á mengun
arvarnir sem HB Grandi
hyggst nota ef hugmynd
ir um stækkun fiskþurrk
unarverksmiðju Laugafisks
á Breiðinni koma til fram
kvæmda. Einar Brandsson
er formaður starfshópsins.
Í honum eiga einnig sæti
Guðmundur Þór Valsson
og Guðmundur Páll Jóns
son sem aðalmenn. Vign
ir Albertsson er fulltrúi
Faxaflóahafna og Sigurður
Páll Harðarson sviðsstjóri
skipulags og umhverfis
sviðs Akraness eiga einnig
sæti í hópnum.
–mþh
Eitt tilboð í
þjónustuhús á
tjaldsvæði
DALIR: Nýlega voru opn
uð tilboð í byggingu þjón
ustuhúss á tjaldsvæðið í
Búðardal. Eitt tilboð barst
í verkið frá Árbrún ehf, fyr
irtæki Ármanns R Sigurðs
sonar. Hljóðaði það upp á
tæpar 16,7 milljónir króna
sem er 6% yfir kostnaðar
áætlun. Byggðarráð Dala
byggðar lagði til að gengið
verði til samninga við bjóð
anda með ákveðnum breyt
ingum til lækkunar á samn
ingsupphæð.
–þá
Íbúðalánasjóð-
ur á 85 eignir
AKRANES: Eigna svið
Íbúða lánasjóðs hefur skil
að samantekt um eigna
safn sjóðsins í Akranesbæ
að beiðni Valdísar Eyjólfs
dóttur bæjarfulltrúa Sjálf
stæðisflokksins. Þar kem
ur fram að sjóðurinn á
alls 85 fasteignir í bæn
um. Alls standa 40 eignir
tómar og eru til sölu. Í út
leigu eru 38 eignir. Fjöldi
þeirra er einnig á sölu. Alls
eru 64 eignir Íbúðalána
sjóðs í söluferli á Akranesi.
Þrjár íbúðir standa auðar
en unnið er að skráningu
þeirra í sölu. Fjórar er svo
flokkaðar „í vinnslu“ sem
þýðir að þær verða settar á
sölu þó í þeim séu íbúar í
dag. Alls voru 33 eignanna
byggðar fyrir 41 – 80 árum,
19 voru byggðar fyrir 16 –
40 árum og 30 fyrir 5 – 15
árum. Þrjár eignir eru eldri
en 80 ára gamlar. Á síðasta
ári seldi Íbúðalánasjóður
33 eignir á Akranesi. Marg
ar þeirra voru á bygging
arstigi í fjölbýli. Alls nam
söluverðmæti þeirra eigna
259 milljónum króna.
-mþh
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggð
ar 5. mars síðastliðinn voru kynntar
niðurstöður tilboða í rekstur tjald
svæðanna í Borgarnesi og á Varma
landi sumrin 20152020. Hæsta til
boð átti Landamerki ehf, Muru
holti 8 í Garðabæ, en það er Þór
hallur Hákonarson sem rekur fyr
irtækið. Hljóðar tilboðið uppá 1,1
milljón króna á ári sem verðbætist
á samningstímanum í samræmi við
vísitölu neysluverðs. Jökli Helga
syni forstöðumanni umhverfis
og skipulagssviðs Borgarbyggðar
var falið að ganga til samninga við
hæstbjóðanda. Þrjú önnur tilboð
bárust, frá JHBVélum ehf. í Borg
arnesi fyrir samtals 973 þúsund
krónur, Tourist Online ehf. í Borg
arnesi fyrir slétta milljón króna og
Helgir Valur Ármannsson í Borg
arnesi lagði fram tilboð með núll
krónum fyrir sitthvort svæðið.
Samkvæmt upplýsingum frá Jökli
Helgasyni voru greiðslur til sveit
arfélagsins fyrir bæði tjaldsvæðin
áður 670.000 krónur á ári. Á síð
asta ári voru tjaldsvæðin tvö rekin
með 111.950 króna kostnaði fyrir
sveitarfélagið. Það er að gjöld um
fram tekjur við rekstur tjaldsvæðis í
Borgarnesi voru 244.398 krónur en
tekjur umfram gjöld á Varmalandi
132.448 krónur. „Það eru því góð
ar líkur á því að á samningstíma
bilinu 20152020 þurfi sveitarfé
lagið ekki að bera kostnað af rekstri
tjaldsvæðanna og verði betur í stakk
búið til að mæta óvæntum kostn
aðarþáttum svo sem varðandi við
hald húsa og búnaðar,“ segir Jökull
Helgason.
þá
Íbúar í efri byggð Grundarfjarð
ar voru undir lok síðustu viku dá
lítið uggandi yfir snjóflóðahættu úr
Hellnafelli sem stendur fyrir ofan
bæinn. Fellið er ekki hátt en þrátt
fyrir það hefur safnast þar talsvert
af snjó voru skilyrðin ekki ákjósan
leg. Snjórinn var blautur og þung
ur og asahláka var í kortunum.
Snjóflóðalína samkvæmt aðalskipu
lagi Grundarfjarðarbæjar ligg
ur rétt fyrir ofan byggðina eins og
sjá má á þéttbýlisuppdrætti af bæn
um. Meðfylgjandi mynd er tekin
við snjóflóðalínuna í bakgarðinum
á Fellasneið 16 en línan liggur um
það bil þrjá metra frá húsinu.
tfk
Bjarnfríður Leósdóttir, sem lengst
starfaði sem kennari við Fjöl
brautaskóla Vesturlands, lést á
Sjúkrahúsinu á Akranesi 10. mars
síðastliðinn á nítugasta og fyrsta
aldursári. Bjarnfríður var fædd á
Másstöðum í InnriAkraneshreppi
6. ágúst 1924. Foreldrar henn
ar voru Leó Eyjólfsson bifreiða
stjóri og Málfríður Bjarnadótt
ir húsfreyja. Bræður Bjarnfríð
ar voru Ragnar Leósson bifreiða
stjóri (19202014) og Jón Leós
son múrarameistari (19352013).
Eftirlifandi systir hennar er Hall
bera Guðný Leósdóttir f. 1928.
Bjarnfríður lauk verslunarprófi frá
Samvinnuskólanum 1943 og var
einn vetur í Húsmæðraskólanum
í Reykjavík. 1947 giftist hún Jó
hannesi Finnssyni frá Önundarfirði
(19171974). Hann var samvinnu
skólagenginn og starfaði lengst
sem skrifstofumaður á Akranesi en
stundaði einnig sjó. Bjarnfríður og
Jóhannes eignuðust saman fjögur
börn; Steinunni, Eyjólf, sem að
eins varð sólarhringsgamall, Leó
og Hallberu Fríði. Þau reistu sér
hús við Stillholt 13 og eftir að Jó
hannes lést af slysförum í febrúar
1974 bjó Bjarnfríður áfram í hús
inu og ræktaði sinn stóra garð þar
til fyrir einu ári að hún flutti inn á
Dvalarheimilið Höfða.
Bjarnfríður vann á yngri árum
ýmis erfiðisstörf eins og við síld
arsöltun, netahnýtingar sem og
verslunarstörf. Hún var frá unga
aldri virk í menningarlífi Akra
ness, lék um árabil með leikfélag
inu og sat í stjórn þess, tók þátt í
stofnun bókmenntaklúbbs sem
enn lifir og var lengi umboðs
maður Máls og menningar. Frá
miðjum aldri varð hún þjóðþekkt
fyrir afskipti sín af verkalýðs og
jafnréttismálum. Hún var í stjórn
og trúnaðarráði Verkalýðsfélags
Akraness, varaformaður um ára
bil, átti sæti í miðstjórn Alþýðu
sambands Íslands. Hún var vara
fulltrúi Alþýðubandalagsins í bæj
arstjórn Akraness í nokkur kjör
tímabil. Hún var varaþingmaður
Alþýðubandalagsins í Vesturlands
kjördæmi og tók nokkrum sinnum
sæti á Alþingi á áttunda áratugn
um. Þá átti hún sæti í miðstjórn og
framkvæmdastjórn Alþýðubanda
lagsins. Árið 1986 kom út hjá For
laginu lífssaga Bjarnfríðar; Í sann
leika sagt, sem Elísabet Þorgeirs
dóttir skráði.
Bjarnfríður var formaður Fé
lags eldri borgara á Akranesi í
átta ár, 19952003, og barðist öt
ullega fyrir föstum samastað fyr
ir félagið. FEBAN fékk aðstöðu
í húsi Verkalýðsfélags Akraness
við Kirkjubraut í febrúar 2002
sem hleypti miklu lífi í starfsem
ina. Sjálf tók hún virkan þátt í alls
kyns afþreyingu innan félagsins
eins og dansi, kórsöng og bóka
lestri en Bjarnfríður var rómað
ur upplesari. Eftir miðjan aldur
jók Bjarnfríður í tvígang við form
lega menntun sína. Hún lauk prófi
frá Kennaraháskóla Íslands og tók
einnig leiðsögumannspróf, enda
mikill ferðagarpur og náttúru
unnandi. Bjarnfríður var heiðurs
félagi í Verkalýðsfélagi Akraness.
Hún var sæmd riddarakrossi hinn
ar íslensku fálkaorðu á nýjársdag
2002.
þá
Andlát:
Bjarnfríður Leósdóttir
Snjóflóðahætta þrátt fyrir
að Hellnafellið sé ekki hátt
Tjaldsvæðið í Borgarnesi.
Samið um rekstur tjaldsvæða
í Borgarnesi og á Varmalandi