Skessuhorn - 18.03.2015, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Stefnt er á að opna Hótel Húsafell
15. júlí næstkomandi. Þá verður um
ár liðið síðan lokið var við að steypa
sökkla byggingarinnar. „Bókan
ir eru hafnar bæði fyrir þetta ár og
næsta. Það er mikill áhugi fyrir hót
elinu. Fulltrúar helstu ferðaþjón
ustuaðila hafa þegar komið hingað
til að skoða hótelbygginguna og að
stæður. Það er fólk frá fyrirtækjum
á borð við flugfélögin Icelandair og
WOW Air og ferðaskrifstofunni
Iceland Travel. Hér hafa líka komið
erlendir blaðamenn. Alls hafa um
250 manns frá svona fyrirtækjum
komið í heimsókn hingað að Húsa
felli í vetur til að skoða nýja hótelið
sem hér er í byggingu,“ segir Þórð
ur Kristleifsson hjá Ferðaþjónust
unni á Húsafelli.
Mjög góðir umsækj-
endur um störf
Alls munu 35 manns starfa við Hót
el Húsafell. Á dögunum var auglýst
eftir starfsfólki og það er þegar búið
að ráða 20 manns. „Það er búið að
fá mjög hæft fagfólk til starfa. Þetta
er fólk bæði með reynslu og mennt
un í ferðaþjónustu. Við erum að fá
hingað ungt og hæfileikaríkt fólk
sem sækir hingað þó það sé í góð
um störfum á höfuðborgarsvæð
inu,“ segir Þórður.
Hann telur að ákveðin og upp
örvandi viðurkenning felist í því að
svo mikill áhugi hafi verið sýndur
störfunum við nýja hótelið á Húsa
felli. „Það er mjög jákvætt að sjá
að svona gott fólk skuli vilja koma
hingað upp í Húsafell til að búa hér
og vinna við þetta nýja verkefni.
Fólkið mun flest búa til að byrja
með í sumarbústöðum sem verða
teknir á leigu hér á Húsafelli. Auð
vitað þarf svo að hugsa fyrir því að
hér verði byggð íbúðarhús til fram
tíðar.“
Flestir iðnaðarmenn
úr héraði
Skessuhorn hefur áður greint frá
þessu stóra hótelverkefni á Húsa
felli. Í því verða 36 tveggja manna
herbergi, þar af sex lúxussvítur. Auk
þessa verður veitingastaður með
plássi fyrir 90 manns. Eigendur
veitingastaðarins Galito á Akranesi
munu sjá um rekstur hans. „Hér
hafa starfað að jafnaði tæplega 40
iðnaðarmenn nú í vetur. Flestir eru
héðan af Vesturlandi og mjög marg
ir úr uppsveitum Borgarfjarðar. Við
höfum líka fengið nokkra menn af
Suðurnesjum og frá Blönduósi.“
Mikil áhersla hefur verið lögð
á að byggingin falli vel inn í um
hverfið. „Helsti verktakinn er Ei
ríkur J. Ingólfsson húsasmíða
meistari í Borgarnesi. Hann er svo
með undirverktaka með sér. Hótel
ið er hannað af Helga Hjálmarssyni
arkitekt sem hefur teiknar margar
þekktar byggingar í gegnum tíð
ina,“ segir Þórður.
Gamall draumur
að rætast
Kristófer Ólafsson húsasmiður er
verkstjóri hjá Eiríki J. Ingólfssyni.
Hann hefur haft yfirumsjón með
daglegum störfum iðnaðarmann
anna sem starfa við bygginu Hótels
Húsafells. „Þetta er búið að ganga
mjög vel. Veðrið hefur truflað okk
ur svolítið en nú erum við að mestu
komnir í innivinnuna. Við búumst
við því að loka húsinu alveg núna
í vikunni og erum bjartsýnir á að
okkur takist að ljúka verkinu fyrir
15. júlí.“
Kristófer segir að bygging hót
elsins sé búin að vera draumur hjá
sér í mörg ár. „Ég er sjálfur héð
an frá Kalmanstungu. Þegar ég var
ellefu ára gamall gerðist ég vinnu
maður hjá Kristleifi heitnum Þor
steinssyni ferðaþjónustubónda hér
á Húsafelli. Þá talaði hann mik
ið um þetta, að fara að byggja hót
el, eða „mótel“ eins og hann kallaði
það. Ég hef verði viðloðandi Húsa
fell allt frá þessum vinnumannsár
um mínum hér. Nú er þessi fram
tíðarsýn Kristleifs loks að rætast.
Allir sem eiga hamar í sveitinni eru
að vinna hér við hótelbygginguna
núna. Eða því sem næst,“ seg
ir Kristófer og brosir kankvíslega í
kampinn. mþh
Kristófer Ólafsson smiður frá Kalmanstungu.
Fjórir mánuðir í opnun Hótels Húsafells
Hótel Húsafell eins og það leit út í síðustu viku.
Smiðirnir Óskar Sverrisson úr Borgarnesi og Sigurður Ólafsson frá Gils-
bakka bera veggjaplötur inn.
Kolbeinn Magnússon smiður frá Stóra-Ási og Guð-
mundur Sigurðsson smiður frá Bjarnastöðum.
Sigurður Daníelsson smiður úr Borgarnesi.
Halldór Sigurðsson frá Þorvaldsstöðum vinnur við pípulagnir.
Björgvin Garðarsson smiður frá Akranesi og Sigurður Daníelsson festa upp plötur
í loft. Björn Viggó Björnsson smiður frá Rauðanesi og Óskar Sverrisson smiður í Borgarnesi.