Skessuhorn - 18.03.2015, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Þrátt fyrir að flest ungmenni á Ís
landi kjósi að láta ferma sig í kirkju á
það ekki við um alla. Ekki aðhyllast
allir kristna trú og börn á fermingar
aldri eru engin undantekning þar á.
Þeir sem vilja sleppa því að fermast
á kristinn hátt hafa þó aðra valkosti.
Hér á landi stendur meðal annars
til boða taka siðmálum að heiðnum
sið. Að sögn Jóhönnu Harðardóttur
Kjalnesingagoða munu 22 einstak
lingar taka siðmálum í vor og hef
ur verið metaðsókn í siðfræðsluna í
vetur. „Flestir sem hyggja á siðmála
athöfn eru á unglingsaldri, sem er
ekki undarlegt í ljósi þeirrar hefð
ar í samfélaginu að smala ungling
um í trúarathafnir. Þetta eru því
8090% börn á fermingaraldri en
svo eru eldri einstaklingar líka,“ seg
ir Jóhanna. Siðfræðslan fer að mestu
leyti fram í spjallformi. Þar er rætt
um goðin og heiðna lífssýn, velt
fyrir sér heilræðum Hávamálanna
og ýmsum siðfræðilegum og heim
spekilegum álitamálum sem fullorð
ið fólk stendur frammi fyrir. Þegar
fræðslunni er lokið er haldin Sið
málaathöfn fyrir þá sem það vilja.
„Í þessum athöfnum hjá okkur er
engin krafa um trúarjátningu, held
ur aðeins að viðkomandi er að opin
bera að hann ætli að hafa heiðinn
sið að leiðarljósi í lífinu, þ.e. ábyrgð,
heiðarleika og drengskap,“ segir Jó
hanna.
Ísak Reyr Hörpuson var einn
þeirra sem tók siðmálum í fyrra, í
stað þess að fermast í kirkju. Sið
málaathöfnin hans fór fram 17. maí
2014 en Ísak hefur verið heiðinn frá
2012. Móðir Ísaks hefur verið heiðin
frá 2007, en þau eru þau einu í fjöl
skyldunni sem eru ásatrúar. Skessu
horn heyrði í Ísaki og fékk að for
vitnast um stóra daginn hans í fyrra.
Vígsla inn í fullorðinna
manna tölu
Ísak segir siðmálaathöfnina vera
vígslu að hætti ásatrúarmanna inn í
fullorðinna manna tölu. Að því leit
inu til sé hún sambærileg ferming
arathöfn kristinna manna. En ólíkt
fermingarathöfninni eru siðmál tek
in úti í náttúrunni og er aðeins einn
aðili í hverri athöfn. „Það er byrjað
á því að Goðinn helgar staðinn, lýsir
sáttum og griðum og að því loknu er
farið með inngang að athöfninni,“
útskýrir Ísak Reyr. Hann tók sið
málum hjá fossinum við Andakíls
árvirkjun en þá staðsetningu valdi
hann sökum þess hvað honum þyk
ir fallegt þar. „Það var Kjalnesinga
goði, Jóhanna Harðardóttir frá Hlé
sey, sem framkvæmdi athöfnina. At
höfnin fer fram með þeim hætti
að eldur er kveiktur í keri og stað
ið í hring, ásamt goðinu sem býður
Æsi velkomna. Svo er lesið upp úr
Hávamálum og sá sem tekur siðmál
um dreypir á drykk úr horni,“ seg
ir Ísak Reyr. Drykkurinn umræddi
er óáfengur mjöður með eplum og
hunangi. Drukkin er heillaskál og
hráefnið sem notað er í mjöðinn er
hollt og gott. Drykkurinn er þann
ig tákn fyrir góð lífsgæði, verið er að
færa fólki allt það besta í lífinu.
Lamb fæddist í
miðri veislu
Þegar Ísak er spurður að því hvers
vegna hann hafi valið að taka sið
málum svarar hann því til að hon
um hafi fundist það áhugaverðara
en venjuleg ferming. „Allir studdu
mig og bekkjarfélögum fannst þetta
bara skemmtilegt. Það eru ekki all
ir í bekknum mínum kristinnar trúar
og flestum fannst siðfestan spenn
andi,“ útskýrir hann. Eftir athöfnina
var haldin venjuleg veisla að sögn
Ísaks, boðið var upp á mat og hann
fékk gjafir. „Ég fékk Ipad, föt, bæk
ur, lampa og eitthvað af peningum.
Reyndar voru tilmæli um klæðaburð
fremur óvenjuleg, en gestir voru
beðnir um að koma í ullarpeysum,
lopasokkum og gúmmískóm sem og
allir hlýddu,“ segir hann. Veislan var
haldin í reiðskemmu heimilisins en
Ísak Reyr býr að SyðstuFossum í
Andakíl sem er um 13 kílómetra frá
Borgarnesi. Boðið var uppá kjötsúpu
og kransakökur í eftirrétt og skemm
an skreytt með víkingadóti móð
ur hans. Veislan var harla óvenjuleg
því í henni miðri bar ær í fjárhúsinu
sem er staðsett við hlið reiðskemm
unnar. „Þangað kíktu auðvitað all
ir veislugestirnir þangað og lamb
ið vakti mikla lukku. Það má reynd
ar alveg búast við slíku í viðburðum
sem haldnir eru í útihúsum,“ segir
Ísak Reyr að endingu.
eha/grþ
Ísak Reyr tók siðmálum að hætti ásatrúarmanna
Með ömmu og afa, Magnúsi Óskarssyni og Þuríði Jónsdóttur.
Ísak Reyr Hörpuson ásamt Jóhönnu Harðardóttur Kjalnesingagoða í Sið-
málaathöfninni.
Ókeypis heimsendingaþjónusta!
Opið alla daga ársins
Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is
Óskum öllum fe
rmingarbörnum
á Vesturlandi til
hamingju
með merkan áf
anga
Afgreiðslutímar:Virka daga 9–18Laugardaga 10–14Sunnudaga 12–14