Skessuhorn - 18.03.2015, Síða 43
43MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
300
ÞÚSUND
KRÓNA
LÁGMARKS
LAUN
Já
www.sgs.is
Íþróttahúsið við Vesturgötu
Körfuknattleiksfélag Akraness
1. deild karla
Föstudaginn 20. mars kl. 19.15
ÍA - Höttur
Fjölmennum og hvetjum
ÍA til sigurs!
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Skrifstofa Stéttarfélags Vesturlands
verður verður lokuð fimmtudaginn
19. mars nk. vegna námskeiðs.
Ef erindi er mjög brýnt er hægt að hringja í
GSM síma formanns 894-9804 og verður
þá hringt til baka við fyrsta tækifæri.
Beðist er velvirðingar ef þetta
veldur einhverjum óþægindum.
Starfsmenn
Dalamenn huga að því að fá til sín
aukinn fjölda ferðamanna á næstu
árum og skapa þeim afþreyingu á
héraðinu. Í Búðardal fer væntan
lega af stað skemmtilegt umhverf
isverkefni með vorinu. Það er fyrsti
áfangi svokallaðs Strandstígs. Verk
efnið felst í raun í gerð útivistar
svæðis, göngustígs með áningar
stöðum sem liggur meðfram strönd
inni og fjörunni frá Leifsbúð upp að
Laxá. Fyrsti áfanginn verður stígur
frá Leifsbúð að gamla Læknishús
inu sem er syðst í þorpinu á mót
um Ægisgötu og Brekkuhvamms.
Þar verður byggður upp skemmti
legur áningarstaður sá fyrsti á leið
inni upp að Laxá. Iðnaðar og við
skiptaráðherra hefur staðfest tillögu
stjórnar Framkvæmdasjóðs ferða
mannastaða um að veita Dalabyggð
styrk að upphæð 2,9 milljónir króna
vegna verkefnisins. Sveinn Pálsson
sveitarstjóri segir spennandi að ráð
ast í þetta verkefni. Verkefnið fari í
kynningu á næstunni og komi ekki
fram alvarlega athugasemdir gegn
því verði væntanlega byrjað á því
með vorinu.
Verkefni um áfangastaði
Að undanförnu hefur komið fram
í fréttum að íbúar svo sem á höf
uðborgarsvæðinu hafi tekið að sér
ýmsar framkvæmdir í sínu nánasta
umhverfi. Þetta hefur gerst víðar
og Búðdælingar voru meðal þeirra
fyrstu sem riðu á vaðið í þessum
efnum. Þar hefur verið í aðalhlut
verki Svavar Garðarsson sem tekið
hefur að sér hvert umhverfisverk
efnið á fætur öðru í Búðardal fyr
ir eigin reikning, en með stuðn
ingi sveitarfélagsins. Strandstígur
inn er þó stærra verkefni en svo að
hann geri það kauplaust. Byggðar
áð Dalabyggðar lagði til á fundi sín
um fyrir skömmu að gert verði ráð
fyrir mótframlagi með 2,9 milljóna
króna styrknum frá Framkvæmda
sjóði ferðamannastaða til gerð
ar Strandstígsins. Jafnframt verði
Svavari falin umsjón með verkinu
að fengnu samþykki sveitarstjórn
ar. Standstígnum verður eflaust
fagnað af íbúum í Búðardal sem og
ferðafólki, svo sem fuglaáhugafólki.
Hugmyndin að Strandstígnum og
áningarstöðum við hann hefur verið
að þróast síðustu árin en meðfram
sjónum er vinsæl gönguleið. Sveit
arstjórn Dalabyggðar sendi umsókn
í Framkvæmdasjóð ferðamanna
staða á sínum tíma í verkefni sem
nefndist Áfangastaðir í Dalabyggð.
Ábendin kom um að verkefnið væri
of vítt skilgreint og vænlegra væri að
þrengja verkefnið í áfangastaði við
og í Búðardal. „Þetta leiddi til hug
myndarinnar um Strandstíginn,“
segir Sveinn Pálsson sveitarstjóri.
Útsýnispallur og bryggja
Við læknishúsið eru gamlar tröppur
og stígur niður í fjöruna. En það er
gott betur en endurnýjun á stígnum
og tröppunum við gamla læknishús
ið sem á að framkvæma. Samkvæmt
greinargerð fyrir framkvæmdinni
skal koma fyrir útsýnispalli neð
an við gamla læknishúsið. Útsýnis
pallurinn er fyrsti áningarstaðurinn
sem byggður verður í fyrsta áfanga
Strandstígsins frá Leifsbúð að Laxá.
Í megindráttum er útsýnispallur
inn byggður úr tveimur samskonar
einingum og stendur önnur þeirra
þrepi neðar. Efri einingin er nefnd
ur pallur og sá neðri bryggja, hvor
um sig er um átján fermetrar. Frá
götunni er gengið eftir steinlögð
um stíg niður að útsýnispallinum
sem á að standa neðarlega í brekk
unni framan við gamla læknishúsið.
Í gerð stígsins skal nota náttúruhell
ur sem finna má í grennd bæjarins
en slíkur steinn er nú þegar notaður
í vegghleðslur við stjórnsýsluhúsið
og Leifsbúð. Grjótið er sérstakt og
notkun þess á fleiri stöðum í bænum
dregur fram svæðisbundin einkenni.
Það er brúnleitt á lit og hefur fallega
slétta áferð. Handriði skal komið
fyrir við þrepin. Það skal byggja úr
skógarviði með náttúrulegri fúavörn
til dæmis lerki eða greni. Fjarlægja
skal börk og slípa niður allar hvass
ar brúnir. Frá pallinum liggur stíg
urinn áfram eftir brúninni uns kom
ið er framan við gömlu hesthúsin en
þar er í framtíðinni gert ráð fyrir út
sýnisstofu í stoðgrind hesthúsanna,
segir í greinargerð með Strand
stígnum.
Stærsta einstaka verk-
efnið í umhverfismálum
Eins og að framan greinir er ljóst
að um heilmikla framkvæmd er að
ræða. Svavar Garðarsson sagðist í
samtali við Skessuhorn hafa mik
ið að gera um þessar mundir en
hann ætli samt að fara í verkið í vor.
„Vonandi hjálpar þessi framkvæmd
til að stoppa ferðamennina af sem
fara hérna í gegn. Hérna eins og
víðar hefur vantað afþreyingu fyrir
ferðamenn,“ segir Svavar. Aðspurð
ur segir hann að stígurinn frá gamla
læknishúsinu að Leifsbúð sé um það
bil hálfur kílómetri. Hann segir að
ekki sé gert ráð fyrir því að náttúru
legu steinhleðslurnar verði í þeim
stíg og hafi reyndar ekki séð nein
ar útfærslur á honum. Spursmálið sé
hvort slóð efst í fjöruborðinu neð
an við bakkann verði látin duga eða
gerður stígur upp á bakkanum með
fram götunni sem gert hefur verið
ráð fyrir gangstétt. Sveinn Pálsson
sveitarstjóri segir að Strandstígur
inn sé væntanlega stærsta einstaka
verkefnið í umhverfismálum í Dala
byggð í seinni tíð. Sveitarstjórn hafi
undanfarið lagt 1,5 milljón króna á
ári til sjálfboðavinnuverkefna sem
tengjast umhverfismálum. Þá var
myndarlega staðið að umhverfi
Leifsbúðar á sínum tíma og varið í
það mun hærri upphæðum.
þá
Dag ur í lífi...
Sóknarprests
Nafn: Aðalsteinn Þorvaldsson
Starfsheiti/fyrirtæki: Sókn
arprestur Setbergsprestakalls,
Grundarfirði
Fjölskylduhagir/búseta: Giftur
Línu Hrönn Þorkelsdóttur, tákn
málstúlki. Börnin eru Kristbjörg
Ásta (15 ára) og Guðrún Ósk (3
ára). Eyrarvegur 26.
Áhugamál: Útivist, hlaup, lestur
bóka, glamra á gítar og skotveiði.
Vinnudagurinn: Miðvikudagur
inn 11. mars 2015
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Fór seint á fætur, var í
Reykjavík daginn áður vegna út
farar og kom seint heim vegna
þess að óveður hamlaði för meiri
hluta dagsins. Ætli það fyrsta sem
ég gerði hafi ekki verið að kyssa
konuna mína góðan daginn, eins
og venjulega.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Hrökkbrauð með osti og marmel
aði, tók lýsið mitt og skolaði öllu
niður með nokkrum kaffibollum.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Labbaði yfir götuna í
vinnuna rétt fyrir kl. 10.00.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Undirbúa verkefnin eftir há
degi og svara ýmsum erindum.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Borðaði hádegismat, hlustaði á
fréttir og spjallaði stuttlega við
konuna.
Hvað varstu að gera klukk-
an 14? Var með 89 ára á drekas
kátafundi. Sungum og spiluðum,
spjölluðum og fórum í leiki. Rauk
á fund með góðu fólki eftir það.
Hvenær hættirðu og hvað
var það síðasta sem þú gerð-
ir í vinnunni? Kirkjuskóli var
kl. 16.20. Sungum og sprelluð
um eins og alltaf í Kirkjuskólan
um. Frágangi var lokið stuttu eft
ir fimm.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Snöggsteikt grænmeti og
steikt hrísgrjón sem ég eldaði.
Hvernig var kvöldið? Notalegt og
rólegt.
Hvað stendur uppúr eftir dag-
inn? Allt yndislega unga fólkið
sem ég eyddi deginum með.
Umhverfisverkefni í Búðardal sem
höfðar til ferðamanna og heimafólks
Svavar Garðarsson.
Grunnmynd af fyrsta áningarstaðnum
við Standstíginn, útsýnispalli,
tröppum og stíg niður í fjöruna við
gamla læknishúsið.