Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2015, Síða 46

Skessuhorn - 18.03.2015, Síða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 Mikil umræða hefur átt sér stað um fjárhagslega stöðu Landbúnaðarhá­ skóla Íslands síðustu misserin. Lít­ ið hefur hins vegar verið fjallað um þá faglegu starfsemi sem fer fram á Hvanneyri; starfsemi sem stendur á mjög gömlum merg. Bændaskól­ inn á Hvanneyri, fyrirrennari LbhÍ, bauð fyrstur háskóla á Íslandi upp á kennslu í náttúrufræðigreinum með stofnun Búvísindadeildar árið 1947. Í dag er Landbúnaðarháskólinn enn sá eini í landinu sem menntar fólk í búvísindum en hefur einnig skot­ ið breiðari grunni og stoðum undir grænar greinar raunvísinda. Það er gert með því að bjóða upp á sérstaka námsbraut í náttúru­ og umhverfis­ fræðum. Anna Guðrún Þórhalls­ dóttir prófessor hefur verið náms­ brautarstjóri Náttúru­ og umhverf­ isbrautar frá upphafi og átt veg og vanda að uppbyggingu námsins við brautina. Í samtali við Skessuhorn sagði Anna Guðrún að fyrirmynd­ ir að námsbrautinni væri að finna bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum. Þar hefðu landbúnaðarháskólar al­ mennt á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar víkkað út námsfram­ boð sitt, frá hefðbundnum land­ búnaði í átt að almennri landnýt­ ingu, náttúrufræðum og umhverf­ ismálum. Það hefði verið gert í tak við þarfir samfélagsins á þeim tíma eins og núna í Íslandi í seinni tíð. Landnýting á Íslandi hefði breyst mikið síðustu árataugina, einkum vegna vaxandi atvinnugreina eins og ferðaþjónustunnar. Uppbygg­ ing náttúru­ og umhverfisfræða við Landbúnaðarháskólann hefði því verið eðlileg þróun gamla Bænda­ skólans á Hvanneyri. Kom með grænar áherslur í námið Anna Guðrún, sem ólst upp í Reykjavík, segist snemma hafa ver­ ið send í sveit og fengið þar áhuga á skepnum og búskap. Hún lauk bæði stúdentsprófi frá MH og búfræði­ prófi frá Bændaskólanum vorið 1977. Anna Guðrún hóf nám við landbúnaðarháskólann í Ási í Nor­ egi sama haust í náttúrunýtingu og náttúruvernd (naturforvaltning) og lauk þar meistaranámi vorið 1981. Eftir að hafa stundað doktorsnám við sama skóla í tvö ár ákvað hún að söðla um og hélt til Utah í Banda­ ríkjunum í ársbyrjun 1984. „Ég lauk þar fyrst meistaranámi í úthagavist­ fræði, með áherslu á beit og síðan doktorsnámi í sömu fræðum haust­ ið 1988. Ég starfaði svo við Land­ græðsluna í ár en hélt síðan til Bret­ lands og var þar við beitarrannsókn­ ir í beitarfræðum næstu tvö árin“, segir Anna Guðrún. Að Hvanneyri kom hún svo vorið 1992 og tók þá við stöðu aðalkennara í búfjárrækt við Búvísindadeild Bændaskólans. „Á þeim tíma var tekið inn í búvís­ indadeildina annað hvert ár og við vorum fjórir aðalkennararnir við deildina, hver á sínu sviði. Ég lagði áherslu á að færa „grænar áherslur“ inn í námið; með kennslu í vist­ fræði, landnýtingu og beitarfræði auk þess sem ég kom inn kennslu í heimspeki og siðfræði náttúr­ unnar. Landnýtingarbraut var síð­ an stofnuð árið 2000, við hliðina á Búvísindabrautinni og á sama tíma var einnig byrjað að kenna á Um­ hverfisskipulagsbraut. Þegar Land­ búnaðarháskóli Íslands var stofn­ aður árið 2005 var síðan ákveðið að breyta Landnýtingarbrautinni í Náttúru­ og umhverfisfræðibraut. Fyrirmyndin var í raun Náttúru­ nýtingar og náttúruverndarbrautin sem ég hafði sjálf numið við í Ási í Noregi á sínum tíma, aðlöguð að íslenskum aðstæðum.“ Samspil manns, náttúru og umhverfis En af hverju Náttúru­ og Umhverf­ isfræði? Anna Guðrún segir að námið við Náttúru­ og umhverfis­ fræðibrautina sé mjög þverfaglegt. Tekið sé ekki einungis á hinum líf­ ræna þætti, það er líffræðinni, held­ ur einnig þeim þáttum sem hafa áhrif á lífríkið svo sem jarðfræði, veðurfræði og landnýtingu. Þann­ ig sé lagður skilningur á samspili manns, náttúru og umhverfis og þar með íslenskra vistkerfa. Þessi breiða nálgun hafi sýnt sig að vera kjörin fyrir þá sem hyggjast afla sér kennsluréttinda í náttúrufræð­ um á grunn­ og framhaldsskóla­ stigi og einnig góð undirstaða fyrir allt framhaldsnám í náttúruvísind­ um. Námið henti vel fyrir marg­ vísleg störf sem krefjast sérþekk­ ingar á íslenskri náttúru, s.s. um­ sjón, stjórn og skipulagi umhverf­ ismála og landnýtingar, sjálfbærri nýtingu náttúrunnar, eftirliti og umsjón með náttúruverndarsvæð­ um og við gerð mats á umhverfisá­ hrifum. Anna Guðrún bendir á að ásókn í íslenska náttúru hafi marg­ faldast. Það kalli á betri og almenn­ ari þekkingu á náttúrunni, verð­ mætum hennar og verndargildum og áhrifum mismunandi nýtingar. Með þetta í huga geti nemendur valið á milli fjögurra áherslna innan Náttúru­ og umhverfisfræðibraut­ ar. Það eru almenn náttúrufræði, náttúrunýting, þjóðgarðar­vernd­ arsvæði og náttúra og saga. Frek­ ari upplýsingar er að finna á heima­ síðu Landbúnaðarháskólans (www. lbhi.is). Verðum að geta lesið náttúruna Anna Guðrún segir að vandað sé til kennslunnar á Náttúru­ og um­ hverfisbraut eins og frekast er kost­ ur. Námið hafi fengið fulla viður­ kenningu menntamálaráðuneytis­ ins, eftir úttekt erlendra aðila sam­ kvæmt alþjóðlegum stöðlum. „Við höfum sérfræðinga innan dyra svo sem í plöntum, jarðvegi, land­ nýtingu og umhverfismálum. Við erum með samstarfssamninga við Náttúrufræðistofnun, Háskóla Ís­ lands, Veiðimálastofnun og Nátt­ úrustofurnar út um allt land um tiltekna kennslu og leiðbeiningar í verkefnum við nemendur. Þetta samstarf er mjög gott og gefandi. Í öllu þessu leggjum við áherslu á íslenska náttúru, sérstöðu henn­ ar og fáum til kennslu sérfræðinga sem eru að vinna í rannsóknum. Við leggjum mikla áherslu á sum­ arkúrsa og útiverkefni, enda ómet­ anlegt að vera staðsett þar sem við „Sóum minna – nýtum meira“ er yfirskrift ráðstefnu um lífræn­ an úrgang sem haldin verður í Gunnarsholti á Rangárvöllum föstudaginn 20. mars kl. 10­17. „Fjallað verður á margvíslegan hátt um þá möguleika sem fel­ ast í nýtingu lífræns úrgangs, meðal annars til skógræktar og landgræðslu. Í hádegishléi verð­ ur í boði léttur málsverður,“ seg­ ir í tilkynningu frá Landgræðsl­ unni. Viðfangsefni ráðstefnunnar er nýting þeirra verðmæta sem fel­ ast í lífrænum úrgangi. Fjallað verður um hugtökin úrgang og hráefni og farið yfir stöðuna hér­ lendis, hvaða farvegir eru fyrir líf­ rænan úrgang og um lausnir sem notaðar eru á ýmsum stöðum á landinu. Rætt verður um lög og reglugerðir, þróun vinnslutækni og nýtingar, stefnumótun hjá ríki og sveitarfélögum og hver skuli draga vagninn í þessum efnum. Sömuleiðis verða sagð­ ar reynslusögur af ræktun með hjálp lífræns úrgangs, lífrænni ræktun í Skaftholti í Skeiða­ og Gnúpverjahreppi, notkun kjöt­ mjöls í Hekluskógum og land­ græðslu með kjötmjöli og gor. Aðstandendur ráðstefnunn­ ar eru Sorpurðun Vesturlands, Molta ehf. Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök sunn­ lenskra sveitarfélaga ásamt Landgræðslu ríkisins og Skóg­ rækt ríkisins. Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, verður ráðstefnustjóri. mm Matvæli. Ljósm. Magnús Jóhannsson. Ráðstefna um lífrænan úrgang Aukin ásókn í náttúruna kallar á meiri þekkingu Spjallað við Önnu Guðrúnu Þórhallsdóttur um Náttúru- og umhverfisbrautina á Hvanneyri erum, á Hvanneyri ,“ segir Anna Guðrún. „Við verðum að geta les­ ið náttúruna, þar á meðal að gera greinarmun á mosum og fléttum sem Ísland er jú þakið. Hér á landi er mjög umfangsmikil landnýting. Þekking er forsendan fyrir því að við getum stundað hana til lang­ frama. Það er að við höfum fólk sem hefur góða þekkingu á nátt­ úrunni, áhrifum nýtingarinnar og skilji mikilvægi sjálfbærrar nýtingar fyrir framtíðina.“ Umræðan reynst skólanum erfið Anna Guðrún segir að umræð­ an síðustu árin hafi reynst Land­ búnaðarháskólanum mjög erfið, Náttúru­ og umhverfisdeildinni sem og öðrum deildum skólans. Hún hafi ótvírætt komið niður á aðsókn í skólann. „Við hefðum gjarnan viljað fá til okkar fleiri nemendur og vonumst til að þeim fjölgi. Að jafnaði hafa verið teknir inn í deildina um tólf nem­ endur á ári. Af þeim sem hafa út­ skrifast hafa 53% farið í fram­ haldsnám. Það er ótrúlega hátt hlutfall. Ég held það sýni best að okkar nám er gott og hvetur fólk til að halda áfram og bæta enn við í þekkingar­ og reynslubankann,“ segir Anna Guðrún Þórhallsdótt­ ir. þá Anna Guðrún Þórhallsdóttir prófessor er námsbrautarstjóri Náttúru- og um- hverfisbrautar Landbúnaðarháskóla Íslands. Sumarkúrs í plöntugreiningum á fyrsta ári, þar sem nemendur læra að þekkja einstakar plöntur. Það gefur mikilvægan grunn fyrir námið við Náttúru- og um- hverfisfræðibraut. Bæjarstarfsmenn til Malmö AKRANES: Dagana 14. – 17. maí næstkomandi fara 25 starfs­ menn Akranesbæjar í fræðslu­ ferð til borgarinnar Malmö í Svíþjóð. Regína Ásvaldsdóttir bæjastjóri lagði fram tillögu á bæjarráðsfundi Akraness í síð­ ustu viku að starfsmönnunum sem fara í ferðina yrði veitt leyfi föstudaginn 15. maí. Samkvæmt tillögunni er tilgangur ferðar­ innar „að auka hæfni og þekk­ ingu starfsmanna bæjarskrif­ stofunnar og veita þeim inn­ sýn í hvernig sambærileg störf eru unnin í öðru landi og um leið afla nýrra hugmynda sem bætt geta starfsemina.“ Starfs­ fólk Akranesbæjar greiðir all­ an kostnað af ferðinni sjálft, bæði úr eigin vasa en einnig með framlögum úr fræðslusjóði stéttarfélaganna. Tillagan var samþykkt. –mþh Svipað atvinnu- leysi milli mánaða LANDIÐ: Skráð atvinnu­ leysi í liðnum febrúar var 3,6% að meðaltali í landinu og voru 5.842 atvinnulausir í mán­ uðinum. Fjölgaði atvinnulaus­ um um 115 að meðaltali frá janúar en hlutfallstala atvinnu­ leysis breyttist ekki milli mán­ aða. Í febrúar fjölgaði atvinnu­ lausum körlum um 19 frá janú­ ar en að meðaltali voru 2.840 karlar á atvinnuleysisskrá og var atvinnuleysi 3,2% meðal karla. Atvinnulausum konum fjölg­ aði um 96 frá janúar og voru 3.002 konur á atvinnuleysisskrá og var atvinnuleysi 4,1% með­ al kvenna. Þetta kemur fram í mánaðarlegu yfirliti Vinnu­ málastofnunar um atvinnu­ ástandið í landinu. Atvinnulaus­ um fjölgaði að meðaltali um 102 á höfuðborgarsvæðinu og var atvinnuleysi þar 3,6% í febrúar. Á landsbyggðinni fjölgaði at­ vinnulausum um 13 frá janúar. Mest var atvinnuleysið á Suð­ urnesjum 5,7%. Fæstir voru án atvinnu á Norðurlandi vestra, 2,6%, á Vesturlandi 2,7% og 2,8% á Austurlandi. –þá Betri afkoma Faxafóhafna en áætlað var SV-LAND: Afkoma Faxaflóa­ hafna sf. árið 2014 var betri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætl­ un. Þetta kemur fram í nýbirt­ um ársreikningi hafnasamlags­ ins fyrir síðasta ár. Tekjur voru 220,9 milljónum króna umfram áætlun en rekstrarútgjöld voru 56,2 milljónum króna undir áætluðum útgjöldum. Þá voru fjármagnsliðir undir því sem áætlað var í fjárhagsáætlun og skýrist það af lækkun lána og óverulegri verðbólgu. Rekstr­ arhagnaður fyrir fjármagnsliði varð því meiri en áætlað hafði verið, eða sem nemur 277 millj­ ónum króna. Gjaldamegin skýr­ ast frávikin af minni eignagjöld­ um og lægri afskriftum eigna en gert var ráð fyrir. Í greinargerð Gísla Gíslasonar hafnarstjóra með ársreikningnum segir að þegar á heildina sé litið er af­ koma Faxaflóahafna sf. vel við­ unandi og í aðalatriðum nokkru betri en sú fjárhagsáætlun sem lagt var upp með. –þá

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.