Skessuhorn - 18.03.2015, Blaðsíða 49
49MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
Félagar í Golfklúbbnum Leyni á
Akranesi héldu upp á 50 ára afmæli
klúbbsins í golfskálanum síðastlið
inn sunnudag. Félagsmenn fögn
uðu tímamótunum með veislu í
golfskálanum við Garðavöll. Við
þetta tilefni voru tveir félags
menn útnefndir heiðursfélagar,
þeir Reynir Þorsteinsson og Guð
mundur Valdimarsson. Þórður
Emil Ólafsson formaður Leynis
afhenti heiðursviðurkenningarn
ar en Guðmundur Sigurbjörns
son tók við viðurkenningunni fyr
ir hönd afa síns sem var ekki á
landinu. Í ræðu Þórðar Emils kom
meðal annars fram að Reynir hefur
lagt mikið á vogarskálarnar í starfi
Leynis allt frá því hann gerðist
félagi árið 1976. Hann var lengi
formaður klúbbsins, sat í fram
kvæmdanefnd um stækkun vallar
ins í 18 holur og var drifkraftur í
barna og unglingastarfi klúbbsins
eftir að hann hætti stjórnarstörf
um. Þórður Emil sagði einnig frá
því að Guðmundur hefur verið fé
lagi í Leyni frá árinu 1979 og af
rek hans í öldungakeppnum at
hyglisverð. Haukur Örn Birgisson
forseti Golfsambands Íslands var
meðal gesta í afmælisfagnaðinum
ásamt Herði Þorsteinssyni fram
kvæmdastjóra GSÍ. Haukur sendi
Leynismönnum góðar kveðjur í
ræðu sinni og afhenti klúbbnum
gjöf í tilefni afmælisins. Haukur
sagði meðal annars að það væri til
hlökkun í herbúðum GSÍ að starfa
með Leynismönnum á afmælis
árinu þar sem hápunktur keppnis
tímabilsins færi fram á Garðavelli
í júlí, sjálft Íslandsmótið í högg
leik.
Framkvæmdasamningur
vegna Íslandsmótsins
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
Akraness og Guðmundur Sigvalda
son framkvæmdastjóri Leynis skrif
uðu við þetta tilefni undir fram
kvæmdasamning vegna Íslandsmóts
ins í golfi. Akraneskaupstaður mun
styrkja Leyni á ýmsum sviðum vegna
mótsins. Jón Þór Þórðarson, fram
kvæmdastjóri ÍA flutti einnig góðar
kveðjur fyrir hönd Íþróttabandalags
Akraness og færði klúbbnum gjöf.
Í afmælisfagnaðinum kom fram að
það stendur ýmislegt til á afmælis
árinu hjá Leyni. Á meðal þeirra við
burða sem verða á dagskrá er afmæl
ismót sem verður væntanlega fyrsta
mót tímabilsins fyrir klúbbmeðlimi.
Veglegt afmælisblað verður gefið út í
maí. Afmælismót fer fram fyrir sam
starfsaðila klúbbsins, forsvarsmenn
klúbba og styrktaraðila þegar líður
á sumarið en Íslandsmótið í högg
leik verður hápunkturinn á afmæl
isárinu.
Það skal leiðrétt frá frétt í síð
ustu viku, þar sem farið var yfir brot
úr sögu klúbbsins, að fyrsta land
ið sem golfklúbburinn fékk fyrir
völl var fengið frá Garðaprestakalli,
ekki Akranesbæ, eins og sagt var. Þá
var Sveinn Hálfdánarson fyrsti for
maður klúbbsins.
þá/ Ljósm. Sigurður Elvar
Þórólfsson.
Fjölmenni í 50 ára afmælisveislu golfklúbbsins Leynis
Reynir Þorsteinsson heiðursfélagi og Þórður Emil Ólafsson formaður Leynis. Haukur Örn Birgisson forseti Golfsambands Íslands var meðal gesta.
Regína Ásvaldsdóttir og Guðmundur Sigvaldason framkvæmdastjóri Leynis hand-
sala samstarfssamning.
Guðmundur Sigurbjörnsson tók við heiðursverðlaunum fyrir hönd afa síns Guð-
mundar Valdimarssonar.
Börnin á leikskólanum Sólvöllum
í Grundarfirði og gæslufólk þeirra
nýttu sér það síðasta fimmtudag að
veðrið var þá nægjanlega gott til að
bregða sér í gönguferð. Lítið hef
ur verið um útiveru síðustu misser
in sökum rysjóttrar tíðar og því var
þessi tilbreyting kærkomin. Þeim
munaði ekkert um að stilla sér upp
og brosa fyrir ljósmyndara Skessu
horns, þegar eftir því var leitað,
enda einstaklega bóngóðir krakkar
og starfsmenn á ferð.
tfk
Nýta hvert tækifæri til útiveru
Markahrókurinn Hjörtur Hjart
arson var um helgina tekinn inn í
frægðarhöll, Hall of Fame, í Aub
urn háskólanum í Alabama. Hjörtur
var við nám í Albama fyrir nokkr
um árum og var þá afar marksæk
inn með fótboltaliði skólans eins
og hann hefur reyndar verið með
öllum þeim liðum sem hann hef
ur leikið með um tíðina. ,,Þetta var
nokkuð skemmtilegt. 31. íþrótta
maðurinn og fyrsti Íslendingurinn
sem tekinn er inn í Hall of Fame
hjá skólanum,“ sagði Hjörtur á In
stagram og vefurinn fotbolti.net
skýrir frá. ,,Flutti tíu mínútna hjart
næma ræðu, það var klappað,“ bæt
ir Hjörtur við á Instagram. Þessi
fertugi framherji ætlar ekki að leika
áfram með Skagamönnum í sumar
eins og síðasta sumar en hann spil
aði með Augnabliki í Cdeild Fót
bolta.net mótsins á dögunum.
þá
Hjörtur tekinn inn í frægðar-
höll í Alabama
Ríkissjóður fær víða að sínar tekjur.
Býsna drjúg tekjulind eru ökusekt
ir sem mældar eru með myndvélum
við þjóðvegi landsins. Um þessar
mundir eru komnar á fimmta þús
und slíkar myndatökur á myndavél
arnar við þjóðvegi landsins frá ára
mótum. Sem þýðir að tekjur ríkisins
í formi sekta frá myndavélum skipta
orðið mörgum tugum milljóna á
þessum ársfjórðungi. Myndavélarn
ar við Vesturlandsveg hafa þann
ig útvegað ríkissjóði umtalsverð
ar tekjur og því mikilvægt að hafa
þessar „sjóðsvélar“ í lagi. Þær gegna
líka því mikilvæga hlutverki að halda
niður umferðarhraðanum og varla
er nokkur vafi á því að þær hafa um
tíðina gert mikið gagn í því að auka
umferðaröryggi. Verktaki sem hef
ur það verkefni að halda myndavél
unum í lagi var einmitt að huga að
búnaði myndavélarinnar við Mela
hverfið í Hvalfjarðarsveit í liðinni
viku þegar blaðamaður Skessuhorns
átti þar leið um. þá
Hugað að sjóðsvélinni
Vorið 2104 var stofnaður mynd
listarhópur í Mosfellsbæ sem fékk
nafnið Mosi. Hópinn skipa ellefu
manns en allir hafa numið mynd
list í Myndlistarskóla Reykjavíkur
og Myndlistarskóla Mosfellsbæjar
til margra ára. Tilgangur hópsins
er að mála saman eitt kvöld í viku,
sækja myndlistarviðburði og fá til
sín myndlistarkennara á vinnustofu
a.m.k. tvisvar á hverju starfsári. Fé
lagar í hópnum hafa m.a. tekið þátt
í samsýningum hjá félagi frístundar
málara og nemendasýningum í skól
unum sem þeir lærðu í, síðast vor
ið 2014 í Listasal Mosfellsbæjar.
Núna er verið að undirbúa mynd
listarsýningu á Akranesi sem opnuð
verður laugadaginn 28. mars klukk
an 14 í Safnahúsi Akraness í Görð
um. Karlakórinn Mosfellsbræður
mun syngja við opnunina. „Allir eru
velkomnir á opnunina, en sýningin
stendur út aprílmánuð,“ segir í til
kynningu. mm
Mosi opnar sýningu í Görðum á Akranesi
Frá vinstri: Smári Jónsson, Ólafur Stefánsson, Hólmfríður Jóhannesdóttir, Anna
Kristín Einarsdóttir, Gurli Geirsson, Nína Kolbrún Guðmundsdóttir; Elísabet
Guðmundsdóttir,Sigríður Hjartardóttir og Þorgerður Guðmundsdóttir. Á myndina
vantar Jóhönnu M. Thorlacius og Baldvin Viðarsson.
Samsett mynd úr nokkrum verka
Mosa.