Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2015, Síða 54

Skessuhorn - 18.03.2015, Síða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 Skagamenn töpuðu sínum fyrsta leik í Lengjubikarn- um í knattspyrnu á fimmtu- dagskvöldið. Þeir mættu þá Valsmönnum í Egilshöll og töp- uðu 1:3. Valmenn skoruðu öll mörk sín í fyrri hálfleiknum en það var Albert Hafsteins- son sem minnkaði muninn fyrir ÍA um miðj- an seinni hálfleik. Þrátt fyrir tapið er ÍA enn í efsta sæti riðilsins með 12 stig. Skagamenn mæta í næstu umferð Keflvíkingum og fer leikurinn fram í Akraneshöllinni laugardag- inn 21. mars. þá Ferð þú í margar fermingarveislur í ár? Spurning vikunnar (Spurt á Akranesi) Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir: Ég fer í tvær fermingar í ár. Þetta eru ekki skemmtilegustu veislurnar. Sigríður Björk Kristjánsdóttir: Ég ætti að fara í tvær. Þetta eru skemmtilegar veislur. Ágúst Þór Guðsteinsson: Nei, engar fermingar. Mér leið­ ast veislur en fermingarveislur eru allt í lagi. Páll Guðmundsson: Jah, að minnsta kosti þrjár. Það er allt í lagi í fermingarveislum. Ragnheiður Hjálmarsdóttir: Þrjár sem ég man eftir. Alltaf ljúft og gaman að fara í ferming­ arveislur. Pistill „Nútíminn er trunta með tóman grautarhaus, hjartað það er hrímað því heilinn gengur laus,“ sagði eitt sinn verðandi sköllótt söngvaskáld sem kenndi sig við flokk af stórvöxn­ um verum. Hafa þessi orð sjaldan átt við eins vel líkt og núna. Nútím­ inn er skrýtin skepna, það geta all­ ir verið sammála um. Nýjar tiktúr­ ur í samskipta­ og afþreyingariðnaði hafa verið mér hugleiknar allt síð­ an ég sá Ericsson hlunk í heimsókn minni ásamt foreldrum mínum til vinafólks í Svíþjóð. Nú þarf engum orðum að eyða í hversu mikið þetta samskiptatæki okkar hefur breyst en ég má til með að koma með smá hugleiðingu. Snjallsíminn getur sagt okkur hve­ nær við eigum að vakna, hvernig við eigum að hreyfa okkur og hvort við séum að gera það rétt, hvað við gæt­ um haft áhuga á að skoða (sugges­ ted posts). Nú er einnig svo kom­ ið að fólk er að eyða fleiri tugum þúsunda til að geta hlaupið á mal­ bikinu. Það þarf nýja skó, öryggis­ vesti, hlaupabuxur, en það eru bux­ ur sem ættu einungis að vera notað­ ar á veturna þegar myrkrið er sem mest, til að hlífa ökumönnum sjáðu til. Reyndar dáist ég að sjálftrausti íklæðara þessara buxna, sniðið fel­ ur akkúrat ekki neitt. Svo til að deila öllu þessu saman með áhugasöm­ um er notaður snjallsíminn og/eða snjallúrið, sem er frábær uppfinning sem þarf að hlaða á hverjum degi, hver er ekki til í það? Svo til að toppa vitleysuna alger­ lega er komið app fyrir nánast hvað sem er. Til dæmis get ég fengið mér skrefamæli í símann. Ég hef alltaf átt erfitt með að sjá tilganginn fyrir skrefmæli því ég kannski er tvístíg­ andi sem þykir ekki gott í dag. Svo fyrir salernisferð er komið app sem kallast Toilet Time. Tilgangi þess hef ég ekki velt mikið fyrir mér en ef ég ætti að geta mér til, þá er líklegt að þetta hafi eitthvað með að gera á hvaða hluta fatnaðarins sem not­ andi þessa snjallforrits skal byrja á, því maður man ekki neitt þessa dag­ ana. Buxurnar niður fyrst eða belt­ ið losað á undan, eða var það öf­ ugt? Kannski sitja tímafrekar kló­ settferðir þungt á sálinni hjá mörg­ um og gott að geta dreift hugan­ um með nammileik en það er ein­ mitt tíminn til að kanna handverk múrarans eða smiðsins, telja flísarn­ ar og athuga ástand skápahurðanna. Ég þekki hvern krók og kima salern­ is míns og kann að meta gott hand­ verk eins og hver annar, en þekking mín er einungis afrakstur af einarðri setu minni á salerninu. Snjallsíminn hefur dregið úr þess­ ari athygli okkar að smáu hlutunum sem við getum séð og snert. Nú er allt sem við þurfum á skjá og í fullri háskerpu. Buxnavasarnir eru að verða of litlir fyrir þessi smáskrímsli sem heltaka viðkomandi og segja honum hvað hann á mörg skref eftir af deginum. En aftur á móti má líta á mig sem hræsnara að skrifa þetta því ég stunda grímulausa notkun á mínum snjallsíma til að sinna mín­ um vettvöngum. Kannski þarf að búa til app sem segir manni hvenær maður á að leggja símann frá sér og líta upp? Með kveðju, Axel Freyr Eiríksson, Borgarfirði. Háskerpa lífshætta Vesturlandsviðureign í blakinu Ungmennafélag Grundarfjarð­ ar tók á móti Bresa frá Akranesi í 1. deild kvenna í blaki fimmtudag­ inn 12. mars. Grundarfjörður sat í fjórða sæti deildarinnar á meðan Bresastúlkur voru neðstar í deild­ inni. Heimamenn höfðu þónokkra yfirburði í leiknum en grundfirsku stúlkurnar sigruðu fyrstu hrinuna 25­13 og tóku 1­0 forystu. Í ann­ arri hrinu var það sama upp á ten­ ingnum en yfirburðir heimamanna voru þónokkrir og endaði sú hrina 25­8 og staðan því orðin 2­0 heima­ mönnum í vil. Engin breyting varð í þriðju hrinu en hún fór 25­9 og sannfærandi 3­0 sigur Grundar­ fjarðra staðreynd. Með þessu fór Grundarfjörður upp í þriðja sæt­ ið upp fyrir Ými sem á þó leik til góða. Lið Grundarfjarðar spilar svo sinn síðasta leik í Íslandsmótinu miðvikudaginn 25. mars þegar þær sækja Aftureldingu B heim. Bresi leikur sinn síðasta leik 29. mars næstkomandi þegar þær taka á móti Fylki á Akranesi. tfk Stefnir í harða keppni í síðasta Flandrasprettinum Mikil spenna er í stigakeppni Flandrasprettanna í Borgarnesi, en síðasti sprettur vetrarins verður hlaupinn annað kvöld, fimmtudag­ inn 19. mars. Flandrasprettirnir eru mánaðarleg hlaupakeppni sem fram fer þriðja fimmtudagskvöld í hverj­ um mánuði frá því í október og fram í mars. Spretturinn hefst jafn­ an við íþróttamiðstöðina í Borgar­ nesi kl. 20:00 og eru hlaupnir 5 km um götur bæjarins. Hlaupahópur­ inn Flandri stendur fyrir sprettin­ um og að spretti loknum fá stiga­ hæstu einstaklingarnir í hverjum aldursflokki afhent verðlaun fyr­ ir frammistöðu vetrarins. Þá verð­ ur einnig afhentur fjöldi veglegra útdráttarverðlauna sem fyrirtæki á svæðinu og víðar hafa gefið. Í nokkrum flokkum er enn barist hart um sigurlaunin. Í karlaflokki hafa úrslit fimm fyrstu sprettanna reyndar verið öll á sama veg sé að­ eins litið á fyrstu menn, því að þar hefur Íslandsmeistarinn í maraþon­ hlaupi, Arnar Pétursson úr ÍR, sigr­ að í öllum fimm sprettunum það sem af er vetri og Jósep Magnús­ son í Borgarnesi verið í öðru sæti. Sigurvegarinn fær 10 stig fyrir hvert hlaup, næsti maður 9 stig o.s.fv., þannig að fyrir lokahlaupið er Arn­ ar með 50 stig og Jósep 45. Telja má víst að Arnar vinni stigakeppnina ef hann mætir á svæðið á fimmtudag, enda verður hann að teljast einn af þremur bestu langhlaupurum Ís­ lands um þessar mundir. Að öðrum kosti er Jósep með pálmann í hönd­ unum. Í kvennaflokki er Hrafnhild­ ur Tryggvadóttir hins vegar búin að tryggja sér sigurinn. Í þremur aldursflokkum er staðan í stigakeppninni hnífjöfn fyrir síð­ asta sprett og í þeim fjórða munar aðeins einu stigi. Því er ljóst að ekk­ ert verður gefið eftir í keppninni á fimmtudag. Mikið þarf þó að ganga á til að brautarmetin falli, en þau eiga Arnar Pétursson í karlaflokki (16:06 mín) og Arndís Ýr Haf­ þórsdóttir úr Fjölni í kvennaflokki (19:20 mín). Flandrasprettirnir setja svip á bæjarbraginn í Borgarnesi kvöldin sem þeir fara fram. Full ástæða er til að hvetja fólk til að fara út á götur, fylgjast með og hvetja hlauparana til dáða. Síðasti hluti hlaupsins fer meðfram aðalgötunni í bænum ofan úr Bjargslandi og stystu leið nið­ ur í íþróttamiðstöð. Von er á fyrsta manni þangað upp úr kl. 20:16. Flandraspretturinn hefst sem fyrr segir kl. 20:00, en sala þátttökuseðla hefst hálftíma fyrr í anddyri íþrótta­ miðstöðvarinnar. Seðillinn kostar 500 kr. Þátttakendur fylla út seðil­ inn, hlaupa með hann og skila hon­ um svo þegar þeir koma í mark. Nauðsynlegt er að skila seðlinum til að fá hlaupatímann skráðan. Hægt er að nýta búningsaðstöðu í íþrótta­ miðstöðinni, og þar er upplagt að fara í heita pottinn að hlaupi loknu. Gjaldið í pottinn er ekki innifalið í þátttökugjaldi. Nánari upplýsingar um Flandra­ sprettina er að finna á hlaup.is. sg Úr síðasta Flandrasprettinum á síðasta vetri. Ljósm. Kristín Gísladóttir. Fyrsta tap Skagamanna í Lengjubikar Skagamenn fóru með tvö stig í skottinu yfir Hellisheiðina á fimmtudagskvöldið eftir drama- tískan sigur á FSu í leik liðanna í fyrstu deild- inni í körfubolta á Selfossi. Leikurinn einkennd- ist af sveiflum og eftir að Skagamenn höfðu náð góðu forskoti í þriðja fjórðungi sóttu Sunnlend- ingarnir mjög á í lokafjórðungnum. Háspenna var á lokamínútunni en ÍA sigraði í leiknum með tveggja stiga mun 83:81. Við sigurinn stökk ÍA úr fimmta sætinu í það þriðja. Liðin í öðru til fimmta sætinu eru nú öll með 24 stig. Það eru þau sem keppa í úrslitakeppninni um eitt sæti í úrvalsdeild, en Höttur sigurvegarinn í deildinni fær hitt. Hamar og Valur hafa þó betri stöðu en ÍA og FSu þar sem þau eiga leik til góða. Heimamenn byrjuðu betur í leiknum á Sel- fossi og voru fjórum stigum yfir eftir fyrsta leik- hluta. Gestirnir snéru leiknum sér í vil í öðr- um leikhluta og voru fjórum stigum yfir í hálf- leik 45:41. Skagamenn komu síðan grimmir til seinni hálfleiks og höfðu 13 stiga forskot fyrir lokafjóðunginn. Það virtist ekki ætla að duga þar sem heimamenn sóttu stöðugt á í loka- fjórðungnum. En Skagamenn stóðust pressuna í blálokin og sætur sigur var staðreynd. Jam- arco Warren skoraði 28 stig í leiknum, Ómar Örn Helgason kom næstur með 19, Fannar Freyr Helgason 18, Áskell Jónsson 10, Magnús Bjarki Guðmundsson 6 og Þorleifur Baldvinsson 2. ÍA á einn leik eftir í deildarkeppninni. Hann verður gegn Hetti í íþróttahúsinu við Vestur- götu föstudagskvöldið 20. mars. þá Skagamenn unnu FSu

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.