Skessuhorn - 17.02.2016, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2016 25
Akranes- og Borgarfjarðardeild Rauða kross Íslands fékk
í gær afhenta neyðarkerru sem deildirnar keyptu saman. Í
kerrunni er allt sem þarf til að setja upp fjöldahjálparstöð
hvar sem er á svæðinu með skömmum fyrirvara. Verður
kerran geymd á slökkvistöðinni við Sólbakka í Borgarnesi,
þar sem hægt verður að ná í hana ef þörf krefur.
Margt fleira var gert í tilefni 112 dagsins í Borgarbyggð.
Byrjað var á því að viðbragðsaðilar fóru í heimsókn á leik-
skólana í héraðinu. Tóku leikskólabörn vel á móti gestunum
og voru þau áhugasöm um öll störf gestanna. Börnin höfðu
undirbúið heimsóknina vel, voru búin að teikna myndir sem
tengdust 112 númerinu og voru vel upplýst um gagnsemi
þess að muna símanúmerið sem nú hefur verið neyðarnúm-
er allra landsmanna í rétt 20 ár.
Eftir leikskólaheimsóknirnar var sýning í Hyrnutorgi í
Borgarnesi þar sem ýmislegt var að sjá. Utan dyra voru sýnd
björgunartæki, svo sem lögreglu- og sjúkrabifreiðar, fjór-
hjól, slökkviliðsbílar og fleira. Inni var kynning á fjallabjörg-
unarbúnaði og fleiru sem snýr m.a. að skyndihjálp.
mm/ Ljósm. mm & viðbragðsaðilar.
Fjölbreytt dagskrá á 112 deginum í Borgarbyggð
Björgunarsveitafólk framtíðarinnar fékk að máta fjórhjólin. Sjúkraflutningamenn sýndu hvernig hjartahnoðtækið Lúkas
vinnur.
Gert klárt til að sýna gestum hvernig slösuðum er komið fyrir í
sjúkrabörum.
Magnús í Straumfirði sýndi innihald þriggja daga matarskammts
og viðlegubúnaðar.
Tæki viðbragðsaðila voru til sýnis. Þessi ungi piltur varð eiginlega hálf feiminn þegar hann fékk að
setjast í bílstjórasætið á lögreglubílnum.
Sexhjól Björgunarsveitarinnar Heiðars. Börn á leikskólunum í Borgarbyggð gerðu teikningar þar sem
þemað var 112.
Nýja fjöldahjálparkerran var til sýnis við Hyrnutorg.
Gamli sjúkrabíllinn og sá nýjasti í Borgarnesi. Sjúkrabeddi settur saman, en hann er meðal búnaðar í fjölda-
hjálparkerrunni.
Leikskólabörnum þótti afar mikið til þess koma að fá að skoða
útbúnað og klæðnað björgunarsveitarmanna.
Farið yfir lífsnauðsynleg atriði skyndihjálpar með leikskólabörnum.