Skessuhorn - 16.03.2016, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 201628
„Hvað langar þig að fá í
fermingargjöf?“
(Spurt í Dalabyggð)
Hilmar Jón Ásgeirsson:
„Pening til að kaupa tölvu.“
Finnur Þórðarson:
„Tölvu, pening og boxpúða.“
Unnur Theodóra Indriðadóttir:
„MacBook Air, þráðlaus rauð
„Beats“ heyrnartól, reiðföt og
Canon DSLR myndavél. Og
svo langar mig að fá systur
mína í veisluna.“
Marta Lind Jörgensdóttir:
„Pening og heyrnartól.“
Spurningin Svipmyndir úr fermingarfræðslu á
Vesturlandi 2016
Þessi myndarlegi stúlknahópur frá Akranesi var í Vatnaskógi í vetur.
Ljósm. Þráinn Haraldsson.
Hópmynd frá fermingarbarnamóti að Laugum í Sælingsdal. Þar hittust fermingar-
börn frá Snæfellsnesi og Dölum. Þarna er hópurinn fyrir framan Hjarðarholts-
kirkju. Ljósm. Aðalsteinn Þorvaldsson.
Dalamenn á leið til Reykjavíkur. Ljósm. Anna Eiríksdóttir. Fermingarbörn ásamt sr. Páli Ágústi Ólafssyni, sr. Geir Waage og sr. Þorbirni Hlyni
Árnasyni í Reykholti. Ljósm. Dagný Emilsdótir.
Það er siður hjá sr. Aðalsteini Þorvaldssyni og eiginkonu hans að bjóða fermingar-
börnum í heitt súkkulaði heima eftir að þau hafa gengið í hús í Grundarfirði og
safnað fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Ljósm. Dagný Emilsdótir.
Svipmynd frá fermingarbarnamóti í Reykholti. Ljósm. Dagný Emilsdótir.
Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson ásamt fermingarbörnum á fermingarbarnamóti í
Reykholti.
Grundfirðingar á fermingarbarnamóti að Laugum í Sælingsdal.
Ljósm. Aðalsteinn Þorvaldsson.
Fermingarfræðsla hjá Siðmennt er með heimspekilegu ívafi. Fermingarfræðsla á Reykhólum. Þarna er verið að borða köku, ræða um hið
raunverulega þakklæti og skrifa þakkarbréf. Í fermingarfræðslu má ræða allt milli
himins og jarðar, reyna nýja hluti, efla sjálfsþekkingu og sjálfstraust.