Skessuhorn - 16.03.2016, Side 43
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2016 43
framkvæmda á næstu árum. Skiptir þá
mestu skýr sýn á verkefnin og harð-
fylgi sem dugir til árangurs.
Stöðugildum hefur ekki
fjölgað í tólf ár
Alltaf var gengið út frá því að göngin
yrðu greidd með veggjöldum og það
stendur. Sumir telja reyndar að Spöl-
ur sé skuldlaus nú þegar og safni veg-
gjöldum í sjóð! Ekki er það nú svo.
Í lok árs 2015 námu langtímaskuld-
ir félagsins tæplega 1.500 milljón-
um króna. Sú skuld verður greidd í
þrennu lagi, síðasti hlutinn í septem-
ber 2018.
Þegar langtímaskuldir hafa ver-
ið gerðar upp þarf Spölur að standa
við aðrar skuldbindingar, svo sem að
greiða út inneignir á viðskiptareikn-
ingum, ónotuð afsláttarkort, skila-
gjöld veglykla, tekjuskatt félagsins
og hluthöfum hlutafé sitt, uppfært til
verðlags.
Samningur Spalar við ríkið er ótví-
ræður um að þegar samningstím-
anum lýkur fellur heimild til gjald-
heimtu niður.
Stöðugildi Spalar eru jafnmörg
nú og fyrir tólf árum. Skrifstofu- og
stjórnunarkostnaður var vissulega
umtalsvert meiri í seinni tíð en áður
en það stafar fyrst og fremst af ýmiss-
konar sérfræðiþjónustu sem nauðsyn-
legt var að kaupa, einkum til að upp-
fylla kröfur reglugerðar frá 2007 um
öryggi og fleira í starfseminni. Fram-
kvæmdir vegna öryggismála á árun-
um 2007-2012 kostuðu á þeim tíma
375 milljónir króna.
Öryggi er ekki
sparnaðarmál
Margt í starfsemi Spalar er tilefni
skrifa og ummæla á opinberum vett-
vangi og ekkert nema gott um það að
segja að göngin veki athygli og um-
ræðu. Svo hefur verið allt frá árinu
1990 og verður ábyggilega áfram.
Sumir spyrja til dæmis hvers vegna
Spölur spari ekki í rekstrinum með
því að hafa sjálfvirka afgreiðslu í gjald-
hliðinu og mannlaust gjaldskýli?
Því er til að svara að sólarhrings-
vakt í gjaldskýlinu árið um kring er
fyrst og fremst í þágu öryggis vegfar-
enda og hefur margoft sannað gildi
sitt.
Vaktmennirnir eru reyndar drjúg-
ir líka við að svara fyrirspurnum er-
lendra ferðamanna og veita þeim
leiðsögn um landið en það er auka-
hlutverk sem þeir ganga í af ánægju
og er önnur saga. Því má reyndar
velta fyrir sér hvernig þessum málum
verði háttað þegar ríkið hefur tekið
við rekstri ganganna?
Staðfest er að öryggismál Hval-
fjarðarganga standast að ýmsu leyti
kröfur sem gerðar eru til vegganga
með mun meiri umferð. Öryggi til
framtíðar hlýtur áfram að verða mjög
mikilvæg rekstrarforsenda ganganna.
Spölur hefur ætíð gætt aðhalds í
rekstri en félagið sparar ekki við sig
mannahald og framkvæmdir sem
miða að auknu öryggi vegfarenda
og mun ekki gera, svo lengi sem það
hefur með göng undir Hvalfjörð að
gera.
Verkefnið er hins vegar ekki að
velta vöngum yfir fortíðinni held-
ur því sem gera þarf á komandi árum
þannig að öryggi vegfarenda um Kjal-
arnes og undir Hvalfjörð verði eins
og best verður á kosið.
Gísli Gíslason, formaður stjórnar
Spalar og Gylfa Þórðarson, fram-
kvæmdastjóra Spalarþ
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang-
ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu-
dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akra-
nesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi
á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum
lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessu-
horni.
43 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnin var: „Afþreying.“ Vinningshafi er: Sig-
urður Örn Búason, Dalsflöt 9, Akranesi.
mm
Ítreka
Tvístr-
un
Ólyfjan
Alda
Kátar
Tóm
Klafi
Haf
Býsn
Kantur
Hefur
Sérhlj.
Útvega
Spann
Festir
Ekki
heldur
Spil
Ætla
Glett-
inn
Dyggur Kopar
Eimur
Hæð
Arinn
Hvatn-
ing
Prúður
1 9 2
Skjögra
Kindur
Ras
18 7 Grind
Frumefn
Ílát
Nærast
Pípa
Gæfa
Sofa
Poka
Sonur
Skjóða
Nóa
Skjól
14 5 Elfur
Heiður
Rödd
þar til
Óreiða
Bindi
Sefa
Kostur
15 Espa
Gróða
Leðja
Á fæti
Hressar
17 Tanna
Furða
Leit
Fljótur
Þys
Lóðið
Nægtir
Húð
Yndi
Iðn
Hryggur
Tvíhlj.
Tíma-
bil
Juð
Kveiki-
efni
Þrek
Fis
Kættir
Tár
Mó-
lendi
8 4 Staup
Eykst
Stafur
Mæliein
Fugl
Glöð
Logi
Blæs
6
Um-
vherfis
Tegund
Hanki
Spons
3 Núna
Sk.st
Dýpi
Gista
Egna
12 Kona
Sk.st.
Skæði
Hús-
leifar
Dreifa
Hnoðað
Mettur
Samhlj.
16
Spýta
Reipi
13 Lína
Óreiða
Naum
Leið-
beina
Pár
11
Reimin
Rusl
Slá
10 19
Fum
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17 18 19
Pennagrein
Hratt flýgur stund og nú blasir við
að eftir ríflega hálft þriðja ár kem-
ur að því að Spölur afhendi ríkinu
Hvalfjarðargöng skuldlaus, fyrir árs-
lok 2018. Það er í samræmi við samn-
inga og lög frá Alþingi og verða skil
ganganna reyndar nokkru fyrr en
fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir. Yngri
kynslóðir muna tæplega aðdraganda
ganganna og þekkja ekki aðstæð-
ur árið 1988 þegar áhugahópur um
verkefnið ákvað að leggja af stað í
þann leiðangur að freista fjárfesta til
að leggja fjármuni í holu undir hafs-
botni norður í Dumbshafi. Þótt ein-
hverjir telji nú að veggjaldið sé þrösk-
uldur þá var opnun Hvalfjarðarganga
upphaf að verulegum og breytingum
á Vesturlandi og jákvæðri byggðaþró-
un.
Göngin eru ekki greidd af skattfé
landsmanna heldur borga vegfar-
endur mannvirkið með veggjöldum.
Engin lán til gangagerðarinnar voru
tekin með ríkisábyrgð, heldur bar
verktakinn alla ábyrgð á fjármögnun-
inni á framkvæmdatímanum. Hvorki
í ríkisstjórnum né á Alþingi var áhugi
fyrir því að ríkið ábyrgðist lán Spalar
vegna ganganna, enda framkvæmdin
umdeild og talin nokkuð áhættusöm,
bæði fjárhagslega og tæknilega.
Þegar göngin voru tilbúin til notk-
unar komu bandarískt líftrygginga-
fyrirtæki, fimmtán íslenskir lífeyris-
sjóðir og fleiri að langtímafjármögn-
uninni.
Þetta voru fyrstu fjármögnunar-
samningar sinnar tegundar á Norð-
urlöndum og fyrsta fjárfesting lífeyr-
issjóðanna í einkaframkvæmd – og
það í skuldabréfum sem hvorki voru
með ríkisábyrgð né tryggð með veði
í fasteignum.
Spölur var líka látinn
borga vegagerð
Ríkið (Vegagerðin) átti að sjá um
að leggja vegi að göngunum beggja
vegna og halda þeim við en Spöl-
ur að annast allt viðhald í göngun-
um sjálfum. Það gekk ekki eftir nema
að hluta því Spölur borgaði helming
kostnaðar við 20 km langa tengivegi
að göngunum til að unnt yrði að ná
endum saman í fjármögnun verkefn-
isins í heild sinni. Þingmönnum Vest-
urlands- og Reykjaneskjördæma þótti
það nefnilega of stór pólitískur biti
að kyngja ef öll vegtenging, beggja
vegna Hvalfjarðar, yrði kostuð af
vegafé kjördæma sinna.
Því skal sömuleiðis haldið til haga
að árið 2002 tók Spölur á sig kostn-
að vegna nýrrar akreinar frá suður-
munna upp að gatnamótum Hval-
fjarðarvegar ásamt tilheyrandi lýs-
ingu akbrautarinnar. Ríkisstjórnin
mæltist til þessa og stjórn Spalar sá
sér ekki annað fært en að samþykkja
erindið þótt framkvæmdin tilheyrði
ekki göngunum sjálfum.
Þúsundkallinn ætti að
vera 2.335 krónur!
Umferð í Hvalfjarðargöngum varð
fljótlega meiri en upphaflega var
reiknað með og þess hafa vegfarend-
ur notið í lægri veggjöldum en ella.
Gjaldskrá ganganna hefur átta
sinnum verið breytt frá því göng-
in voru opnuð í júlí 1998, þrisvar til
hækkunar en fimm sinnum til lækk-
unar. Gjaldskráin kom meðal annars
við sögu 2005 við endurfjármögn-
un Spalar. Þá var ákveðið að lækka
veggjaldið verulega í stað þess að
stytta rekstrartímann, sem mæltist vel
fyrir.
Í upphaflegum samningi Spalar
við lánveitendur var kveðið á um að
veggjaldið skyldi fylgja verðlagsþróun
í landinu og taka mið af breytingum á
vísitölu neysluverðs. Það hefur aldrei
gengið eftir, langt frá því. Stök ferð
kostaði þúsund krónur sumarið 1998
og kostar enn þúsundkall en gjald-
ið ætti að vera 2.335 krónur ef það
fylgdi vísitölunni. Hverfandi líkur eru
á að hægt sé að finna aðra gjaldskrá á
Íslandi sem hægt er að segja um svip-
aða sögu!
Virðisaukaskattur hefur frá upphafi
verið lagður á veggjaldið í samræmi
við lög og úrskurð ríkisskattstjóra frá
1990. Þar af leiðandi kemur innskatt-
ur á móti rekstrarkostnaði og fjárfest-
ingum. Spölur óskaði aldrei eftir því
að skatturinn félli niður af veggja-
ldinu sjálfu, enda ekki að búast við því
að slík beiðni fengi undirtektir. Ósk-
að var eftir að skatturinn næði ekki til
veglyklanna en því var hafnað.
Auðvitað hefði verið gott ef rík-
ið hefði fellt niður virðisaukaskatt-
inn af byggingu mannvirkisins og ef
ekki hefði þurft að leggja skattinn á
veggjaldið. Hvorki fyrr eða síðar stóð
slíkt til boða og því hafa lög um virð-
isaukaskatt gilt um Spöl sem önn-
ur fyrirtæki. Hins vegar er rétt að
halda því til haga að þrátt fyrir hækk-
un skattsins á árinu 2015 var gjaldskrá
Spalar haldið óbreyttri og hefur svo
verið allt frá árinu 2011.
Tryggingar ganganna kosta sitt og
náðu hæstu hæðum eftir hryðjuver-
kaárásirnar í Bandaríkjunum í septem-
ber 2001. Aldrei kom til álita að ríkið
tryggði göngin, enda voru trygging-
ar fjölþættar, umfangsmiklar og dýrar
vegna eðlis fjármögnunar mannvirk-
isins og samkvæmt samningum við þá
sem lánuðu fé í verkefnið. Umfang
trygginganna var upphaflega að kröfu
stærsta lánveitandans, John Hancock
Mutual Life Insurance Inc. og skil-
yrði lánveitingar í verkefnið. Þeg-
ar lán Spalar voru endurfjármögn-
uð árið 2005 tókst að lækka kostnað
vegna trygginga, ekki síst í ljósi þess
að verkefnið gekk betur en bjartsýn-
ustu menn þorðu að vona.
Hrunið setti strik í
reikninginn
Á árinu 2007, þegar umferð hafði vax-
ið hratt árin þar á undan, blasti tvennt
við forystusveit Spalar, sem á og rekur
Hvalfjarðargöng.
Félagið hefði að óbreyttu orðið 1.
skuldlaust þegar leið á árið 2015
og þar með unnt að afhenda rík-
inu göngin mun fyrr en sam-
komulag og lög kváðu á um.
Efnahagshrunið setti hins vegar
stórt strik í þann reikning.
Útlit var fyrir að á rekstrartíma 2.
Spalar færi umferðin upp fyrir til-
tekið hámark í reglugerð þar að
lútandi.
Spölur og Vegagerðin hófu ákveðna
undirbúnings- og rannsóknarvinnu
vegna „tvöföldunar“ undir Hval-
firði, þ.e. nýrra ganga. Enda var óhjá-
kvæmilegt að bregðast við þróun
mála þá en hrunið títtnefnda breytti
mörgu, þar á meðal umferðartölum
í göngunum og í öllu íslenska vega-
kerfinu. Umferð í göngunum minnk-
aði verulega og tekjur af veggjöldum
drógust að sama skapi saman.
Af sjálfu leiddi að áform um Hval-
fjarðargöng II voru lögð til hlið-
ar. Það kemur hins vegar í hlut rík-
isins að fjalla um hvernig og hvenær
brugðist skuli við umferð sem eykst
nú stöðugt og stefnir „upp úr þaki“
reglugerðarinnar innan fárra ára.
Augljós er sá fjárhagslegi ávinning-
ur, sem ríkið hefur haft af Hvalfjarð-
argöngum. Sá ávinningur hlýtur að
verða kjörnum fulltrúum á Vestur-
landi hvatning og verkfæri til að ná
fjárveitingum til nauðsynlegra vega-
Spölur á lokaspretti
Gjaldskýli Spalar og norðurmunni Hvalfjarðarganga. Mynd: Hreinn Magnússon.