Skessuhorn - 10.08.2016, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 20162
Íþróttaveisla Íslendinga heldur áfram.
Nú eru komnir í gang Ólympíuleikarn-
ir sem að þessu sinni eru haldnir í Rio de
Janeiro. Skessuhorn hvetur lesendur til
að fylgjast með íslensku íþróttamönnun-
um. Seinnipartinn í dag keppir Hrafnhild-
ur Lúthersdóttir í 200 metra bringusundi,
en um helgina keppa síðan Eygló Ósk í
sundi, Guðni Valur í kringlukasti og Þor-
móður Árni í júdó.
Á morgun verður austan- og suðaust-
an 8-15 m/s. Víða rigning og hiti 10 til
17 stig. Á föstudag; austlæg eða breyti-
leg átt og súld eða rigning með köflum.
Milt veður. Á laugardag verður suðvest-
læg átt og víða væta. Fremur hlýtt í veðri.
Á sunnudag og mánudag má búast við
suðaustanátt og rigningu.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns
„Hvort ertu meiri sprellari eða grínari?“
Lesendur Skessuhorns virðast almennt
vera meiri grínarar en 40% svöruðu því,
29% sögðust hvorki vera grínarar né
sprellarar, 23% sögðust vera bæði grínar-
ar og sprellarar en einungis 8% sögðust
vera meiri sprellarar.
Í næstu viku er spurt:
Ætlar þú að fylgjast með
Ólympíuleikunum?
Aðstandendur listahátíðarinnar Plan B
sem fram fer í Borgarnesi og nágrenni
dagana 12.-14. ágúst eru Vestlending-
ar vikunnar. Hátíðin býður upp á fjöl-
breytta nútímalist og eru slíkar hátíð-
ir ekki algengar á Vesturlandi. Það er því
ekki annað hægt en að fagna þessari
viðbót í menningarflóru Vesturlands og
hvetja íbúa til að kíkja til listafólksins, þar
er frítt á allar sýningar. Sjá nánar í Skessu-
horni í dag.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Regnbogafánan-
um flaggað
AKRANES: Regnbogafánar voru
dregnir að húni fyrir utan bæjar-
skrifstofur Akraneskaupstaðar að
morgni fimmtudagsins 4. ágúst í
tilefni af Hinsegin dögum sem þá
stóðu yfir og náðu hápunkti sín-
um með Gleðigöngunni í Reykja-
vík á laugardag. Með því að flagga
Regnbogafánanum vildu bæjar-
yfirvöld sína hinsegin fólki sam-
stöðu í mannréttindabaráttu
sinni, sem og að óska þeim gleði-
legrar hátíðar. -kgk
Sigríður Júlía
ráðin sviðsstjóri
L A N D I Ð :
Fyrr í vikunni
var ráðið í þrjár
stjórnunarstöð-
ur hjá Skóg-
ræktinni, nýrri
og sameinaðri
stofnun ríkisins.
Aðalsteinn Sigurgeirsson var ráð-
inn fagmálastjóri, Hreinn Ósk-
arsson sviðsstjóri samhæfingar-
sviðs og loks var Sigríður Júlía
Brynleifsdóttir ráðin sviðsstjóri
skógarauðlindasviðs. Sigríður
Júlía hefur undanfarin ár starf-
að sem framkvæmdastjóri Vest-
urlandsskóga. Hún lauk meist-
araprófi skógfræði frá Ási í Nor-
egi og hóf fyrst störf hjá Vestur-
landsskógum árið 2003 en tók við
framkvæmdastjórastarfinu árið
2013. Starf sviðsstjóra skógar-
auðlindasviðs felst meðal annars í
því að bera ábyrgð á rekstri þjóð-
skóganna og hafa yfirumsjón með
framlögum til skógræktar á lög-
býlum auk þess að vinna að sam-
þættingu þessara tveggja verkefna
eftir því sem þurfa þykir.
-bþb
Nýr bæklingur
um Einkunnir
BORGARBYGGÐ: Á dögun-
um var gefinn út nýr bækling-
ur um fólkvanginn Einkunn-
ir í Borgarfirði. Í honum er að
finna upplýsingar um tilurð
fólkvangsins og einkenni, skipu-
lag og nýtingu. Kort af svæð-
inu ásamt gönguleiðakorti er að
finna á bakhlið. Bæklinginn er
hægt að nálgast í ráðhúsi Borg-
arbyggðar og á upplýsingamið-
stöðvum. -kgk
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Á fundi umhverfis-, skipulags-
og náttúruverndarnefndar Hval-
fjarðarsveitar 4. ágúst síðastliðinn
var tekin fyrir umsókn um fram-
kvæmdaleyfi fyrir fjölgun súráls-
lagna í jörðu frá lóð Norðuráls á
hafnarsvæði Grundartangahafn-
ar. Fyrr í sumar hafði afgreiðslu
málsins verið frestað þar sem beð-
ið var eftir umsögnum frá Faxa-
flóahöfnum, Elkem Ísland, Meitli,
Klafa, Vegagerðinni, RARIK, Mílu
og Fjarskiptum. Nefndinni bárust
engar athugasemdir frá umsagn-
araðilum. Því lagði nefndin til við
sveitarstjórn að gefið verði út fram-
kvæmdaleyfi fyrir fjölgun súráls-
lagna í jörðu.
Liður í framleiðslu-
aukningu
Súráli er skipað upp með leiðslum
í stóra geymslutanka og þaðan er
því dælt beint í kerin. Mannshöndin
kemur því hvergi nærri með beinum
hætti. Ágúst Hafberg, framkvæmda-
stjóri viðskiptaþróunar og samskipta
hjá Norðuráli, segir að lagnirnar sem
nú stendur til að fjölga séu þær sem
liggja frá geymslutönkunum og í
kerin í kerskálum. Er fjölgun súráls-
lagnanna liður í framleiðsluaukningu
Norðuráls. Verið er að auka afkasta-
getu hvers kers með straumhækkun
og því þurfi meira súrál í hvert ker.
Samkvæmt upplýsingum frá fyrir-
tækinu er ekki á dagskránni að reisa
nýjan kerskála. Aðeins er verið að
auka heildarframleiðsluna án þess
að bæta við. Hins vegar eru uppi
áform um nýjan steypuskála Norð-
uráls, eins og Skessuhorn greindi frá
fyrr í sumar, því steypuskálinn þarf
jú að geta annað framleiðslu kerskál-
anna. Ekkert hefur þó verið ákveðið
í þeim efnum enn sem komið er að
sögn Ágústs.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Fjölga súrálslögnum til álvers Norðuráls
Eins og Skessuhorn greindi frá
fyrr í sumar munu senn rísa íbúða-
blokkir á Akranesi við Asparskóga
27 og 29. Það er fyrirtækið Upp-
bygging ehf., í eigu Engilberts
Runólfssonar byggingaverktaka,
sem byggir. Í hvoru húsi um sig
verða tólf íbúðir, þriggja og fjög-
urra herbergja, 100-125 fermetrar
með geymslum. Verða þær seldar
fullbúnar með gólfefnum og áætl-
að er að þær munu kosta milli 300
og 320 þúsund krónur á hvern fer-
metra. Framkvæmdin sjálf er lík-
lega ein stærsta einstaka fram-
kvæmd í íbúðabyggingum á Akra-
nesi frá hruni, en áætlað er að hún
komi til með að kosta um 700 millj-
ónir króna.
Fyrst verður hafist handa við að
reisa fjölbýlishúsið að Asparskóg-
um 27 og að sögn Engilberts ganga
framkvæmdir vel „Þetta geng-
ur fínt. Það eru komnir sökklar og
lagnir og allt saman tilbúið undir
einingar,“ segir Engilbert í samtali
við Skessuhorn fyrir helgi. „Fyrsta
hæðin verður reist í næstu viku og
svo munu hlutirnir gerast hratt eft-
ir það,“ bætir hann við.
Engilberg telur að íbúðirnar
verði settar á sölu eftir hálfan mán-
uð eða svo og hefur fulla trú á því
að þær seljist hratt og örugglega.
„Þetta verður glæsilegt hús og ég
hef fulla trú á því að íbúðirnar selj-
ist mjög fljótt eftir að þær verða
settar á sölu. Miðað við fyrirspurn-
ir og eftirvæntingu reikna ég ekki
með að þær verði lengi að seljast,“
segir hann.
Ein blokk til viðbótar
við hinar tvær
Að sögn Engilberts munu fram-
kvæmdir við Asparskóga 29 hefj-
ast eftir þrjár til fjórar vikur. Þar að
auki hyggur Engilbert að um svip-
að leyti geti hafist framkvæmd-
ir við fjölbýlishús við Asparskóga
24, einnig á vegum Uppbygging-
ar ehf. Hann kveðst hafa mikla
trú á svæðinu. „Það er íbúðaskort-
ur, bæði á nýjum íbúðum í sölu og
leiguíbúðum. Ég hef gríðarlega
trú á svæðinu og það verður mik-
il uppbygging á Akranesi á næstu
árum,“ segir Engilbert. „Það er ár
síðan uppsveiflan byrjaði í Reykja-
vík. Nú er hún að síast út í hlið-
arbyggðirnar við höfuðborgar-
svæðið. Fasteignaverð á Akranesi
fer hækkandi eins og annars staðar
og ég held að það verði byggt mik-
ið á svæðinu á næstu árum,“ segir
hann og bætir því við að ýmislegt
fleira sé í kortunum hjá Uppbygg-
ingu ehf, en vill þó ekkert gefa upp
um þær áætlanir að svo stöddu.
„Það er fleira komið á kortið hjá
okkur og margt spennandi á Akra-
nesi. Ég flutti sjálfur hingað fyrir
ári síðan og þetta er frábært samfé-
lag, barnvænt og gott að búa hér,“
segir Engilbert.
kgk
Brátt rís fyrsta blokk af
þremur við Asparskóga
Asparskógar 27 eins og þeir litu út fyrir helgi.
Þannig mun blokkin koma til með að líta út. Teikning fengin af facebook-síðu
Uppbyggingar ehf. Þar er hægt að sjá fleiri þrívíddarteikningar af húsinu.