Skessuhorn - 10.08.2016, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 20168
Staða fram-
kvæmda við
Vesturgötu
AKRANES: Á fundi bæjarráðs
Akraneskaupstaðar í lok júlímán-
aðar fór Sigurður Páll Harðar-
son sviðsstjóri skipulags- og um-
hverfissviðs yfir stöðu malbikun-
arframkvæmda við Vesturgötu á
Akranesi. Gatan var fræst fyrr í
sumar og var talið nauðsynlegt að
meta ástand steypunnar og þá sér
í lagi undirlag hennar og grunn-
vatnsástand. Til þess var feng-
in verkfræðistofan Efla en Veit-
ur hafa einnig skoðað aðstæð-
ur enda stendur til að endurnýja
lagnir undir hluta götunnar. Í til-
kynningu frá Akraneskaupstað
segir Sigurður Páll að tvær leið-
ir séu til að byggja upp götuna að
nýju. Annars vegar með fljótandi
jarðfyllingu sem er um metri að
þykkt og þarf að standa í ein-
hverja mánuði til að ná fullu sigi,
þar sem ekki er burðarhæft efni
undir henni. Hægt er að malbika
yfir þegar fullu sigi er náð. Hins
vegar er hægt að grafa niður á
burðarhæfan botn og notast við
fyllingu sem er allt að 2,5 metr-
ar að þykkt og er hægt að mal-
bika strax yfir. Ekki hefur verið
ákveðið enn hvor aðferðin verð-
ur valin en valið ræðst af frekari
rannsóknum á grunnvatnsástandi
á svæðinu með tilliti til sighættu
á nærliggjandi húsum og lóð-
um. Niðurstaða um málið ætti að
liggja fyrir síðar í þessum mán-
uði. -grþ
Ónýtt gervigras í
Akraneshöll
AKRANES: Knattspyrnufélag ÍA
hefur óskað eftir því við Akranes-
kaupstað að gervigrasið í Akra-
neshöll verði endurnýjað. Í erindi
sínu, sem sent var bæjarráði í júlí-
mánuði, er vísað í úttekt sem sér-
fræðingur annaðist sl. haust. Þar
kemur fram að gervigrasið sem
nú er í Akraneshöllinni sé ónýtt.
Knattspyrnufélagið telur því að-
kallandi að skipt sé um gervigras í
höllinni sem fyrst en í haust verða
liðin tíu ár frá því grasið var tekið
í notkun. Í erindinu kemur jafn-
framt fram að áætlaður kostnað-
ur við nýtt gervigras, sem uppfyll-
ir nútímakröfur um öryggisstaðla
og kröfur FIFA/UEFA, sé um
45 milljónir króna. „Það er von
Knattspyrnufélags ÍA að hægt sé
að koma endurnýjun á gervigras-
inu á fjárhagsáætlun 2018. Til-
laga KFÍA er sú að stefnt verði að
því að verktaki leggi grasið í ágúst
2017,“ segir í erindinu. Bæjar-
ráð Akraneskaupstaðar vísaði er-
indinu til skipulags- og umhverf-
issviðs til frekari skoðunar.
-grþ
Drög lögð að
Sjávarútvegsráð-
stefnunni
LANDIÐ: Næsta Sjávarútvegs-
ráðstefna verður haldin dag-
ana 24.-25. nóvember í Hörpu.
Verða þar 14 málstofur og flutt
verða um 70 erindi. Hlutverk
ráðstefnunnar er stuðla að fag-
legri og fræðandi umfjöllun um
sjávarútveg og vera vettvangur
fyrir samskipti allra þeirra sem
koma að sjávarútvegi á Íslandi.
Áhugasömum er bent á að drög
að dagskrá hafa verið birt á sjav-
arutvegsradstefnan.is. Þar má
sjá vinnuheiti erinda, en endan-
leg heiti erindanna og nöfn fyr-
irlestra verða birt í september.
-kgk
Spjaldtölvur í
leikskólana
SNÆFELLSBÆR: Á fundi
bæjarstjórnar Snæfellsbæjar 2.
ágúst síðastliðinn var afgreidd
ósk leikskólastjóra um kaup á
spjaldtölvum til handa leik-
skólum Snæfellsbæjar. Bæjar-
stjórn samþykkti samhljóða
að veita 500 þús. kr. aukafjár-
veitingu til kaupa á spjaldtölv-
um fyrir öll leikskólaútibúin í
Snæfellsbæ. Gert hafði verið
ráð fyrir ófyrirséðum fjárveit-
ingum sem þessari á fjárhags-
áætlun sveitarfélagsins. -kgk
Samfylkingin
heldur flokksval
NV-KJÖRD: Samfylking-
in hefur unnið að undirbún-
ingi alþingiskosninganna um
nokkurra mánaða skeið, segir í
tilkynningu. Flokksval verður
haldið í Reykjavík, Suðvestur-
kjördæmi og Norðvesturkjör-
dæmi 8.-10. september en í
Norðausturkjördæmi og Suð-
urkjördæmi verður beitt upp-
stillingu við val á framboðs-
lista. Þá kemur fram í tilkynn-
ingu frá flokksskrifstofunni að
búið er að ráða Bryndísi Ísfold
Hlöðversdóttir í starf kosn-
ingastjóra. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
30. júlí – 5. ágúst
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 12 bátar.
Heildarlöndun: 39.764 kg.
Mestur afli: Klettur MB:
31.949 kg. í fjórum löndun-
um.
Arnarstapi 8 bátar.
Heildarlöndun: 8.534 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 2.219
kg í einni löndun.
Grundarfjörður 13 bátar.
Heildarlöndun: 58.374 kg.
Mestur afli: Helgi SH: 42.979
kg í einni löndun.
Ólafsvík 39 bátar.
Heildarlöndun: 106.547 kg.
Mestur afli: Brynja II SH:
19.426 kg í fjórum löndunum.
Rif 22 bátar.
Heildarlöndun: 54.743 kg.
Mestur afli: Sæbliki SH:
17.939 kg í fjórum löndunum.
Stykkishólmur 14 bátar.
Heildarlöndun: 26.562 kg.
Mestur afli: Blíða SH: 12.100
kg í sjö löndunum
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Helgi SH – GRU:
42.979 kg 2. ágúst.
2. Klettur MB – AKR:
9.219 kg 4. ágúst.
3. Klettur MB – AKR:
8.941 kg 3. ágúst.
4. Klettur MB – AKR:
7.823 kg 2. ágúst.
5. Brynja II SH – ÓLA:
6.674 kg 2. ágúst.
Eins og greint var frá í síðasta tölu-
blaði Skessuhorns voru nýverið
undirritaðir samningar mennta-
og menningarmálaráðuneytisins
og Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands. Samningarnir gilda til
þriggja ára og kveða á um stóraukið
framlag íslenska ríkisins til afreks-
íþrótta á Íslandi. Framlagið mun
hækka í áföngum úr 100 milljónum
á fjárlögum síðasta árs í 400 millj-
ónir á næstu þremur árum.
„Þetta verður algjör bylting fyrir
okkur hjá ÍSÍ sem höfum haft úr allt
of litlu að spila til að aðstoða sér-
sambönd ÍSÍ og þá afreksfólkið til
að það geti helgað sig íþrótt sinni
og náð sem bestum árangri,“ segir
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ. Hann
segir margt afreksfólk hafa búið
við það að meiri tími fari í að fjár-
magna ferðir, þjálfun og uppihald
heldur en æfingar og undirbún-
ing fyrir keppnir. Kostnaður sem
fylgi keppnum, t.d. Ólympíuleik-
um, hafi oft og tíðum lent að tölu-
verðu leyti á keppandanum sjálfum.
„Það er allt of algengt að íslenskt
afreksíþróttafólk hætti of snemma
og samkvæmt því sem við höfum
kannað er það oftar en ekki vegna
erfiðleika við fjármögnun eða van-
líðan vegna fjárhagsáhyggja. Von-
andi mun þessi samningur koma í
veg fyrir mikið brottfall af fjárhags-
legum ástæðum,“ segir Lárus.
Forsvarsmenn ÍSÍ telja því að hér
sé um að ræða algera byltingu fyrir
afreksíþróttir á Íslandi. Segir hann
að nú færist Ísland nær því að geta
byggt upp umgjörð fyrir afreks-
íþróttafólk í líkingu við það sem
þekkist í nágrannalöndunum.
kgk
Framlög til afreksíþrótta fjórfaldast
Forsvarsmenn íþróttahreyfingarinnar ásamt ráðherrum við undirritun samning-
anna í Laugardalnum.
Bresk sprengivörpusprengja frá
því í seinni heimsstyrjöld fannst
skammt frá Kárastaðaflugvelli í
Borgarnesi um verslunarmanna-
helgina. Félagar í Björgunarsveit-
inni Brák rákust á sprengjuna þar
sem þeir voru að undirbúa flugelda-
sýningu fyrir gesti Unglingalands-
móts UMFÍ. Lögregla kallaði til
sérfræðinga úr sprengjusveit Land-
helgisgæslunnar sem mættu á svæð-
ið og gerðu sprengjuna óvirka. Tal-
ið er að sprengjan hafi verið neðan-
jarðar árum saman. Hún hafi síðan
smám saman komið upp á yfirborð-
ið í frostlyftingu sem varð til þess að
hún fannst.
Lögreglan á Vesturlandi vill árétta
að ef fólk finnur grunsamlega hluti á
víðavangi, hvort sem það er í fjöru,
eða á fjöllum, sem það telur að geti
verið einhvers konar sprengibún-
aður þá er öruggast að hreyfa ekk-
ert við þeim og halda sig fjarri. Taka
þarf niður staðsetningu, merkja
staðinn og hafa síðan samband við
112 eða viðkomandi lögreglu sem
að kallar síðan til rétta viðbragðs-
aðila hverju sinni.
Krafðist bóta vegna
æfinga hersins
Í tilefni frétta um sprengjufundinn
benti Heiðar Lind Hansson sagn-
fræðingur, sem vinnur nú við loka-
áfanga af ritun sögu Borgarness, á
að á skjalasafni Héraðsskjalasafns
sé að finna skjöl sem minna á veru
breska setuliðsins í landi Borg-
ar. Laugardaginn 12. júlí árið 1941
sendi sr. Björn Magnússon, prest-
ur á Borg á Mýrum, bréf stílað til
„brezka setuliðsins á Íslandi.“ Bréf-
ið var þó sent sýslumanni Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu, sem þá var Jón
Steingrímsson, en formleg sam-
skipti við stjórn breska hersins fóru
fram í gegnum sýslumann. Í bréf-
inu krefst sr. Björn bóta, samtals
600 króna, vegna spjalla á fugla-
tekju í Borgareyjum, skemmda á
girðingum veturinn 1940-1941 og
vegna vinnu og viðgerða við brotinn
hliðstöpul og fleiri smærri skemmd-
ir. „Þess má ennfremur geta, að
stungnir voru hnausar í Borgar-
landi, mörg bílhlöss, án leyfis eða
endurgjalds, ennfremur var mik-
ið ónæði allan veturinn vegna skot-
æfinga rétt við túnið, og er áskilinn
réttur til að krefjast bóta fyrir þetta,
ef ástæða þykir til,“ segir í bréfi sr.
Björns. Ekki kemur fram í skjölum
safnsins hvort presturinn á Borg
hafi haft erindi sem erfiði og feng-
ið greitt fyrir þann meinta skaða
sem hann taldi setuliðið hafa vald-
ið, meðal annars með æfingaspreng-
ingum í æðarvarpi. Sprengjan sem
fannst við flugvöllinn á Kárastöðum
var í það minnsta aldrei sprengd og
hefur nú verið eytt. kgk
Sprengja fannst í Borgarnesi
Sprengjan sem fannst við Kárastaða-
flugvöll í Borgarnesi um verslunar-
mannahelgina er bresk og úr síðari
heimsstyrjöldinni.
Ljósm. Lögreglan á Vesturlandi.
Skjalið sem sýnir reikninginn sem sr. Björn Magnússon, prestur á Borg á Mýrum,
sendi breska setuliðinu árið 1941 vegna meintra spjalla af völdum hersins. Það er
varðveitt á Héraðsskjalasafninu í Borgarnesi ásamt greinargerð frá Birni presti.