Skessuhorn - 10.08.2016, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 201610
Rannsóknarskipið Dröfn strand-
aði í Þorskafirði í Reykhólahreppi
miðvikudaginn 27. júlí síðastlið-
inn. Landhelgisgæslunni barst til-
kynning þess efnis um þrjúleytið
og þyrla var send á staðinn. Gæsl-
an mat aðstæður á vettvangi góð-
ar. Dröfn virtist óskemmd og eng-
in mengun var á strandstað. Einn-
ig mat gæslan aðstæður þannig að
engin hætta væri mönnum búin.
Áhöfn Drafnar hófst því handa við
að reyna að losa skipið og hugðist
koma því á flot á næsta háflóði, sem
var skömmu eftir miðnætti. Björg-
unarsveitarmenn frá björgunarsveit-
inni Heimamönnum sigldu að skip-
inu og voru skipverjum innan hand-
ar, en Landhelgisgæslan fylgdist náið
með gangi mála.
Vel gekk að ná Dröfn af strandstað
á flóðinu og komst skipið á flot klukk-
an 1:18 aðfararnótt fimmtudagsins
28. júlí, samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni. Togvír af spili
Drafnar hafði verið komið í kletta
undir háspennumastrinu í Þorska-
firði. Um leið og aðstæður leyfðu var
spilið sett í gang og Dröfn dró sjálfa
sig af strandstað með aðstoð björg-
unarsveitarmanna, sem ýttu við skip-
inu á gúmmíbátum.
Skipið virtist þá lítið sem ekkert
skemmt. Eftir að Dröfn losnaði var
henni siglt aðeins út fjörðinn. Þar var
ankerum kastað og mun áhöfn skips-
ins halda rannsóknum sínum áfram.
kgk/ Ljósm. Jón Trausti
Markússon.
Dröfn strandaði í Þorskafirði
Síðdegis miðvikudaginn 27. júlí,
varð árekstur á Útnesvegi á Snæfells-
nesi nálægt afleggjaranum að Írskra-
brunni þegar tvær fólksbifreiðar
skullu saman. Virðist sem ökumað-
ur annarrar bifreiðarinnar hafi misst
af afleggjaranum og verið að snúa við
þegar áreksturinn varð.
Að sögn lögreglunnar var árekst-
urinn nokkuð harður en afleyðing-
arnar ekki jafn alvarlega og óttast var
í fyrstu. Ökumenn og farþegar, þar
af tvö börn, voru flutt á heilsugæslu-
stöðina í Ólafsvík til skoðunar og
farþegi annarrar bifreiðarinnar var
fluttur á Akranes til frekari skoðun-
ar. Báðar bifreiðarnar eru óökuhæfar
eftir áreksturinn. kgk/ Ljósm. tfk.
Harður árekstur
á Snæfellsnesi
Eftirlitsstofnun EFTA hefur sam-
þykkt ívilnanasamning íslenska rík-
isins við Silicor Materials vegna
byggingar sólarkísilverksmiðju fyr-
irtækisins á Grundartanga. Samn-
ingurinn kveður á um skattahag-
ræði, það er að segja afslátt á skött-
um og opinberum gjöldum, og
ívilnanir á reglum um leigu og fyrn-
ingu. Þetta kemur fram á heima-
síðu ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA.
Samningurinn gildir til tíu ára og
andvirði hans á því tímabili, í formi
ívilnana og skattahagræðis, er 4,6
milljarðar króna en heildarfjárfest-
ing Silicor á Grundartanga verður
um 120 milljarðar króna.
Samkvæmt leiðbeiningarreglu-
gerðum EFTA við gerð slíkra íviln-
anasamninga verður viðkomandi
ríki að sýna fram á að fyrirhuguð
aðstoð sé viðeigandi. Enn fremur
þarf ríkið að tryggja að aðstoðin sé
hófstillt og hagræði af henni vegi
þyngra en möguleg samkeppnis-
röskun. „Aðstoðin til Silicor Ma-
terials á Vesturlandi er byggð á
uppbyggingarstefnu, sem hef-
ur í för með sér ávinning fyrir allt
svæðið og því hefur ESA samþykkt
hana,“ segir forseti ESA, Sven Erik
Svedman. Þá segir auk þess að ESA
hafi komist að þeirri niðurstöðu að
fyrirhuguð aðstoð hafi hvatningar-
áhrif þar sem ekki hefði verið ráðist
í framkvæmdir án fyrirheita um rík-
isaðstoð. Aðstoðin stuðli þar með
að atvinnusköpun, laði til sín fyrir-
tæki, auki efnahagslega fjölbreytni
og búi til störf. „Þetta er mikilvæg-
ur áfangi í undirbúningi verkefn-
isins. ESA staðfestir með þessu að
stuðningurinn sé í samræmi við þau
viðmið sem stofnunin setur. Næstu
áfangar eru að ljúka síðari hluta
fjármögnunar og ganga frá samn-
ingum um orkuafhendingu,“ segir
Davíð Stefánsson, fulltrúi Silicor á
Íslandi, í samtali við Skessuhorn.
Reynt að flýta
afhendingu raforku
Samið var við Orku náttúrunnar
um afhendingu á 40 MW af raf-
orku síðasta haust og geta þau kom-
ið til afhendingar árið 2018. Náðst
hafa samningar um helstu skilmála
að orkusamningi við Landsvirkj-
un upp á afhendingu á 40 MW til
viðbótar, en frá árinu 2020. Dav-
íð segir að nú sé reynt að flýta af-
hendingu á orku frá Landsvirkjun
til 2018. „Þessa dagana erum við
að reyna að fá afhendingu orkunn-
ar flýtt til ársins 2018 eða 2019 til
að starfsemi geti hafist sem fyrst,“
segir hann.
Síðastliðið haust var einnig
gengið frá fyrsta áfanga fjármögn-
unar vegna byggingar sólarkísil-
verksmiðju Silicor. Nam sá áfangi
14 milljörðum króna en heildar-
kostnaður vegna framkvæmdarinn-
ar er áætlaður 120 milljarðar króna,
eins og áður segir. Lánsfjármögnun
undir forystu Þróunarbanka Þýska-
lands KfW kemur til með að standa
undir um 60% af heildarkostnaði.
Davíð segir að fjármögnun verk-
efnisins gangi vel. „Þetta tekur allt
saman sinn tíma, bæði viðræður um
að flýta afhendingu raforkunnar og
vinna við fjármögnun framkvæmd-
arinnar. En þessu miðar hægt og
örugglega áfram,“ segir hann.
kgk
Samningur ríkisins og Silicor hóflegur að mati ESA
Teikning að fyrirhugaðri sólarkísilverksmiðju Silicor á Grundartanga.
Davíð Stefánsson, fulltrúi Silicor á
Íslandi.