Skessuhorn - 10.08.2016, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 201618
Unglingalandsmót UMFÍ sem
haldið var í Borgarnesi um versl-
unarmannahelgina var einstaklega
vel heppnað að sögn Evu Hlín-
ar Alfreðsdóttur verkefnastjóra
mótsins. „Við vorum heppin með
veður þó að borgfirska golan hafi
kannski farið aðeins of hratt yfir.
En það var sól og þurrt sem skiptir
mestu máli, fólk var í það minnsta
ekki blautt,“ segir Eva Hlín en hún
hafði lofað góðu veðri fyrir mót-
ið. „Ég held að ég hafi alveg stað-
ið við loforðið,“ segir hún og hlær.
Mótið hófst á fimmtudeginum, 28.
júlí, en formleg setning var á föstu-
dagskvöldinu. Þá komu gestir sam-
an við Skallagrímsvöll og þrátt fyr-
ir smá kulda og golu var mjög góð
stemning. Eftir að mótið var sett
gengu félagar ungmennafélaganna
á mótinu inn á völlinn við fögnuð
áhorfenda. Þá var sýningarhlaup
á vellinum þar sem spretthlaup-
ararnir Ari Bragi Kárason, Kol-
beinn Höður Gunnarsson, Dag-
ur Andri Einarsson, Trausti Stef-
ánsson og Patrekur Andrés Axels-
son, sem er blindur og hljóp með
fylgdarhlaupara, öttu kappi í 100
metra hlaupi. Þar hljóp Ari Bragi
hraðasta hlaup Íslandssögunnar
þegar hann hljóp á 10,38 sekúnd-
um. Hlaupið var þó ekki gilt sem
Íslandsmet því meðvindur var of
mikill. Kolbeinn á því enn Íslands-
metið sem hann setti á Akureyri
helgina áður.
Rútuakstur á móts-
svæðið alla helgina
Eftir setningarathöfnina söfnuðust
gestir mótsins saman á tjaldstæð-
inu og til að hlýja sér eftir kuldann
en þá sló rafmagnið út á tjaldstæð-
inu. „Það varð allt í einu svo mikil
notkun á rafmagni á tjaldstæðinu að
það toppaði notkunina í Borgarnesi.
Það hafa sjálfsagt allir farið beint að
kveikja á ofnum til að ná hita í kropp-
inn og þar sem allir voru að koma
upp á tjaldstæði á sama tíma var þetta
of mikið álag í einu. En þetta leyst-
ist allt og við biðluðum til fólks að
takmarka notkun á rafmagni eftir
fremsta megni og tóku allir vel í það.
Þetta var samt rafmagnskerfi sem
UMFÍ er með og hefur verið með
á síðustu mótum svo það var alveg
gert ráð fyrir töluvert mikilli notkun
á rafmagni. Þetta hefur sjálfsagt verið
því það voru allir að fara inn í tjöld á
sama tíma,“ segir Eva Hlín. „En eft-
ir þetta gekk allt smurt yfir helgina.
Það eina sem kannski hefði mátt bet-
ur fara voru bílastæðamál. Við vor-
um með stórt stæði þegar fólk kemur
inn í Borgarnes en það þarf að ganga
smá spotta þaðan svo fólk notaði það
ekki. Það var því töluvert um bíla um
allan bæ. Það er samt bara þannig að
við breytum ekki bænum okkar fyrir
svona mót og það bara eru ekki fleiri
stæði við íþróttasvæðið. Við reyndum
að koma til móts við fólk með rút-
um sem gengu á milli mótssvæðis og
tjaldstæðis alla helgina og var fólk
mjög ánægt með það. Rútuferðirnar
gengu mjög hratt fyrir sig og marg-
ir sem notuðu þær. Fyrir utan þetta
tvennt, með rafmagnsleysið og bíla-
stæðin, gekk mótið heilt yfir alveg
ofboðslega vel. Auðvitað eru alltaf
hlutir sem má gagnrýna og það er
bara gott, við lærum af því öllu en al-
mennt var fólk held ég mjög ánægt,“
bætir Eva Hlín við.
Íslandsmet sett
Tvö Íslandsmet voru sett á mótinu,
annars vegar var það Eva María
Baldursdóttir í HSH sem stökk 1,61
metra í hástökki 13 ára stúlkna og
bætti þar með fyrra met um einn
sentimetra. Þá setti sveit ÍBR Ís-
landsmet í 4x100 metra boðhlaupi
16-17 ára stúlkna þegar þær hlupu
brautina á 48,18 sekúndum. Í liðinu
voru þær Dagbjört Lilja Magnús-
dóttir, Tiana Ósk Whitworth, Helga
Margrét Haraldsdóttir og Guðbjörg
Jóna Bjarnadóttir. Einnig sást frá-
bær spilamennska á Hamarsvellin-
um þegar Björn Viktor Viktorsson,
kylfingur úr GL, náði holu í höggi.
Að sögn Jóns Aðalsteins Bergsveins-
sonar, kynningarfulltrúa UMFÍ, var
mótið í heild alveg einstaklega vel
heppnað og keppendur sem og aðrir
gestir ánægðir. „Það sem mér finnst
helst standa uppúr varðandi mótið
sjálft var samstaða krakkanna alveg
óháð liðum, þá sérstaklega í körfu-
boltanum og frjálsum. Þarna sýndu
krakkarnir mikla samstöðu sem var
mjög gaman að sjá. Þeir sem ég hef
heyrt í fannst öllum mjög gaman
að koma á mótið og við erum mjög
ánægð,“ segir Jón Aðalsteinn í sam-
tali við Skessuhorn.
Fjölskyldudagskráin
heppnaðist vel
Á milli þess sem keppendur öttu
kappi í hinum ýmsu íþróttagrein-
um var fjölbreytt afþreyingardagskrá
í boði fyrir alla fjölskylduna. „Fjöl-
skyldudagskráin gekk öll mjög vel og
voru gestir að ég held almennt mjög
ánægðir með það sem var í boði.
Við fengum konur frá „Andlitsmál-
un - Brosum“ til vera með andlits-
málun sem vakti mikla lukku með-
al barnanna, enda miklar listakon-
ur á ferð. Kvöldvökurnar voru vel
sóttar, bæði af gestum á tjaldstæð-
inu og öðrum gestum, sem var mjög
ánægjulegt að sjá. Ég held að flestir
hafi skemmt sér vel þar. Yngri systk-
ini keppanda og aðrir gestir tíu ára
eða yngri fengu líka að spreyta sig
bæði í sundi og fótbolta. Það var þó
ekki beint keppni heldur fengu all-
ir viðurkenningar en þau fengu smá
forsmekk af því sem koma skal ef þau
skrá sig á landsmót þegar þau hafa
aldur til,“ segir Eva Hlín. Í Englend-
ingavík komu margir gestir saman og
nutu þess að sóla sig í skjóli frá gol-
unni. „Þar var fullt af fólki og krakk-
arnir margir hverjir að vaða í sjónum
og að hafa gaman. Svo kíktu margir á
Bjössaróló og almennt var fólk dug-
legt að taka þátt í því sem var í boði,“
bætir Eva Hlín við.
Gengur stolt
frá verkefninu
Til að halda svona mót þarf margt
fólk og flest er unnið í sjálfboða-
starfi. Mönnun gekk ágætlega en þó
hefðu fleiri hendur verið vel þegn-
ar, að sögn Evu Hlínar. „Það mæddi
mikið á sumum en við erum líka
mjög þakklát þeim sem lögðu hönd
á plóg. Það var eitthvað um forföll
sjálfboðaliða þegar nær dró móti og
á tímabili leit þetta ekki nógu vel út
en þetta hafðist allt. Við hefðum al-
veg þegið fleiri hendur en sem betur
fer voru margir tilbúnir að bæta við
sig endalaust af vöktum og marg-
ir mjög liðlegir,“ segir Eva Hlín.
„Heilt yfir erum við öll að ég held
mjög ánægð með mótið og ég geng
mjög stolt frá þessu verkefni. Ég er
þakklát fyrir alla þá sem lögðu hönd
á plóg og ég upplifði mikla gleði og
jákvæð viðbrögð við mótinu,“ segir
Eva Hlín að endingu.
arg/ Ljósm. UMFÍ
Vel heppnað Unglingalandsmót í Borgarnesi
Þessar vösku stúlkur úr ÍBR slóu Íslandsmet í 4x100 metra boðhlaupi 16-17 ára
stúlkna.
Drónamynd sem tekin er yfir glæsilegan Skallagrímsvöllinn, Borgarnes og Hafnarfjall í baksýn. Ljósm. þa.
Keppnin í motocrossi fór fram í Akrabraut, æfinga- og keppnissvæði
VÍFA á Akranesi.
Mikil einbeiting í lyftingum. Tilþrif í hástökki.
Flott tilþrif í spjótkasti. Flottir taktar í sundi. Einnig var keppt í upplestri.