Skessuhorn - 10.08.2016, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 201620
Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa gef-
ið það út að þau líta stöðu lögregl-
unnar á Vesturlandi alvarlegum aug-
um. Í sumar þurfti lögreglan á Vest-
urlandi að skera niður vegna fjár-
skorts og hallareksturs. Hluti af nið-
urskurðinum felst í því að lögreglu-
menn á Akranesi og í Borgarnesi
eigi nú að skiptast á um að hafa eftir-
lit með byggðarlögunum tveimur að
næturlagi en áður höfðu verið sólar-
hringsvaktir á báðum stöðum. Úlfar
Lúðvíksson lögreglustjóri á Vest-
urlandi sagði nýverið í samtali við
Skessuhorn að embætti hans sitji
uppi með hallarekstur sem vinna
þurfi á. Segir hann að meðal ann-
ars verði brugðist við með því að
ráða ekki í störf sem losna, en ekki
verði um beinar uppsagnir að ræða.
Þetta muni m.a. leiða til þess að
sólarhringsvaktir verði ekki í bæj-
arfélögunum í vetur þar sem fyrir-
hugað er nýtt vaktakerfi sem gerir
ráð fyrir færri mönnum á svæðinu.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
á Akranesi segir að svör sem ráða-
menn hafi gefið Akraneskaupstað
við sameiningu lögregluembætta
árið 2014 hafi falið í sér að við sam-
einingu myndi löggæsla á Akranesi
styrkjast, m.a. með tilkomu sólar-
hringsvakta sem höfðu þá legið niðri
um tíma. Hún segir að nú sé ljóst að
þessi fyrirheit muni ekki ganga eft-
ir. Yfirvöld á Akranesi líta því mál-
ið alvarlegum augum og var Lög-
reglustjórinn á Vesturlandi boðaður
á síðasta bæjarráðsfund á Akranesi.
Ólafur Adolfsson formaður bæjar-
ráðs segir að á fundinum hafi bæjar-
yfirvöld farið yfir stöðu mála og lýst
áhyggjum þeirra vegna naumra fjár-
veitinga til löggæslu á svæðinu. „Ef
við lítum bara á Akranes þá er þetta
7000 manna bæjarfélag og því væri
mjög eðlilegt að hér séu sólarhrings-
vaktir hjá lögreglunni. Við teljum að
það sé afar mikilvægt,“ segir Ólaf-
ur í samtali við Skessuhorn. Á fundi
bæjarráðs var óskað eftir yfirliti um
þróun á starfsemi lögreglunnar á
Akranesi, svo sem fjölda stöðugilda,
vaktaskipulag og fjölda mála á tíma-
bilinu 2013-2016.
Borgfirðingar deila
áhyggjum Skagamanna
Gunnlaugur A. Júlíusson, sveitar-
stjóri Borgarbyggðar tekur í sama
streng og Regína og Ólafur. „
Við höfum vitanlega, rétt eins og
Akraneskaupstaður, sömu áhyggj-
ur af stöðu mála vegna skerts fjár-
magns til lögreglunnar á svæðinu.
Okkur finnst þetta ekki samræm-
ast þeirri þróun sem á sér stað í
sveitarfélaginu þar sem hér fjölg-
ar bæði ferðamönnum og íbúum
en á sama tíma er skorið niður hjá
lögreglunni á svæðinu. Við viljum
halda sólarhringsvakt á svæðinu,
samfélagið hættir ekki að snúast á
nóttunni og hér er mikið af fólki
og margir sem fara hérna um.
Innan Borgarbyggðar eru rúmlega
þúsund sumarbústaðir og einn-
ig er mikill fjöldi af sumarbústöð-
um í Skorradal. Það má því búast
við því að íbúafjöldi héraðsins tvö-
faldist á góðviðrishelgum,“ segir
Gunnlaugur.
bþb
Segja mikilvægt að lögregla hafi sólarhringsvakt
Á dögunum var lögð lokahönd
á lagfæringar Setbergskirkju við
Grundarfjörð þetta árið, en sam-
kvæmt upplýsingum frá formanni
sóknarnefndar er um reglubundið
viðhald að ræða.
Setbergskirkja er önnur kirkna
Setbergsprestakalls ásamt Grund-
arfjarðarkirkju, sem varð einmitt 50
ára lokadegi júlímánaðar og sagt er
frá í annarri frétt hér til hliðar.
Setbergskirkja var kirkja Set-
bergsprestakalls allt þar til Grund-
arfjarðarkirkja var vígð fyrir hálfri
öld. Hún var byggð 1892 en á Set-
bergi hefur verið prestssetur síðan
á 12. öld.
kgk/ Ljósm. sk.
Lagfæringar á
Setbergskirkju
Í veðurblíðunni síðastliðinn sunnu-
dag lá skemmtiferðaskip við ankeri
á Grundarfirði. Farþegar úr skip-
inu voru selfluttir í land þar sem
þeir ýmist stigu um borð í rútur og
fóru í skoðunarferð um nesið, eða
spígsporuðu um bæinn. Veðrið um
helgina gat vart verið betra og fal-
legra, eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd sem ljósmyndari Skessu-
horns tók yst af bryggjunni. Á hafn-
arbakkanum biðu margar rútur eft-
ir að fólkið kæmi í land en fjörður-
inn, fjöllin og fólkið skörtuðu sínu
fegursta.
mm/ Ljósm. gj.
Ekið með ferðafólk úr
skemmtiferðaskipum
Sunnudaginn 31. júlí fögnuðu
Grundfirðingar því að 50 ár voru
liðin síðan Grundarfjarðarkirkja var
vígð. Af þessu tilefni predikaði séra
Agnes M. Sigurðardóttir biskup Ís-
lands ásamt nokkrum fyrrverandi
prestum kirkjunnar. Þá voru nokkr-
ir einstaklingar heiðraðir af sóknar-
nefndinni fyrir dygga þjónustu við
Grundarfjarðrakirkju frá upphafi.
Þétt setið var í kirkjunni en marg-
ir lögðu leið sína til Grundarfjarð-
ar til að fagna þessum tímamótum.
Eftir athöfn var boðið til kaffisam-
sætis í sal Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga.
tfk
Grundarfjarðarkirkja 50 ára
Þétt setið var í kirkjunni enda margir sem lögðu leið sína til messu þennan sunnudag.
Biskup Íslands gengur í broddi fylkingar en séra Jón Þorsteinsson fyrrverandi
sóknarprestur í Grundarfirði og Aðalsteinn Þorvaldsson núverandi sóknarprestur
koma næstir á eftir.
Prestarnir og biskupinn heilsa kirkjugestum eftir athöfnina.
Linda María Nielsen sópransöngkona flutti nokkur lög við
undirleik Friðriks Stefánssonar í sal Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga.
Hér má sjá frá vinstri Guðna Gústafsson, Pál Cecilsson og Sal-
björgu Nóadóttur sem voru í hópi þeirra sem voru heiðraðir.