Skessuhorn - 10.08.2016, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 21
HEYRNARMÆLING - RÁÐGJÖF - HEYRNARTÆKI AÐSTOÐ OG STILLINGAR
Nánari upplýsingar og tímabókanir í síma 581-3855 - www.hti.is
Móttaka heyrnarfræðinga HTÍ verður í BÚÐARDAL
föstudaginn 19. ágúst klukkan 9-12
Staðsetning: v/HEILBRIGÐISSTOFNUN - Tímabókanir í síma 581-3855
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Á golfvellinum að Hamri ofan
Borgarness gerðist það í lok júlí
að höggfastur en óheppinn golfari
sló golfboltann í stein og fékk hann
til baka í höfuðið af miklum krafti.
Féll maðurinn við og lá eftir í gras-
inu. Var hann fluttur á sjúkrahús til
aðhlynningar, en meiðsl hans voru
minniháttar.
kgk
„Búmerang“ högg á Hamarsvelli
Sigurður Ólafsson hótelstjóri á Hamri slær upphafshögg fyrr í sumar. Myndin
tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Ljósm. GB.
Ekkert lát virðist ætla að verða á
því að kylfingar fari holu í höggi
á Garðavelli á Akranesi í sumar.
Skessuhorn greindi frá því 20. júlí
síðastliðinn að þrír kylfingar hefðu
farið holu í höggi í mánuðinum.
Föstudaginn 29. júlí síðastlið-
inn bættist Ingveldur Bragadótt-
ir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar
síðan í hóp hinna lánssömu þeg-
ar hún fór holu í höggi á 8. braut
Garðavallar. Hún sló upphafs-
höggið með 7-járni, boltinn lenti
töluvert fyrir framan flötina og
rúllaði beint ofan í holuna, að því
er segir á heimasíðu Golfklúbbs-
ins Leynis. Fóru því hvorki fleiri
né færri en fjórir kylfingar holu
í höggi á Garðavelli í júlímánuði
svo staðfest sé.
kgk
Fjórði kylfingurinn
fór holu í höggi
Ingveldur Bragadóttir úr GM varð
fjórði kylfingurinn til að fara holu í
höggi á Garðavelli í júlímánuði.
Ljósm. GL.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is