Skessuhorn - 10.08.2016, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 201622
Byggðarráði Borgarbyggðar barst
erindi frá Trausta Eiríkssyni í Lækj-
arkoti á dögunum. Erindið varðaði
tafir skipulags- og byggingarfull-
trúa sveitarfélagsins á endurnýj-
un á rekstrarleyfi fyrir gistiheim-
ilið Lækjarkot Rooms and Cotta-
ges, sem er í eigu Trausta. Í rekstr-
arleyfinu sem skipulags- og bygg-
ingarfulltrúi gaf út eru fyrirvarar
um að Trausti afhendi aftur teikn-
ingar af herbergjum gistiheim-
ilsins og vill sveitarfélagið aftur-
kalla leyfið ef þær teikningar skila
sér ekki á ný. Trausti er óánægður
með vinnubrögð sveitarfélagsins.
„Fyrirvararnir sem settir eru fram
eru ástæðulausir með öllu. Það er
enginn fótur fyrir þessum fyrirvör-
um,“ segir Trausti.
Nú segir Trausti að sveitarfé-
lagið hafi kostað sig töluverða fjár-
muni. „Ég tel að sveitarfélagið hafi
í hugsunarleysi sínu kostað mig um
12 milljónir króna. Ég segi í hugs-
unarleysi því ég tel að það sé eng-
inn að reyna að klekkja á mér vís-
vitandi, heldur virðast menn bara
ekki vera að hugsa. Í fyrsta skipt-
ið sem ég sótti um rekstrarleyfi tók
það um tvö ár að fá það í gegn. Nú
var ég að sækja um endurnýjun og
það tók fjóra mánuði að ganga frá
því. Ef allt væri eðlilegt tæki þetta
ferli tvær til þrjár vikur. Það er
gríðarlega blóðugt að verða fyrir
þessu, maður er að reyna að reka
fyrirtæki og svona hlutir hafa ekki
góð áhrif. Við erum að selja gist-
ingu í gegnum erlenda söluaðila
og þegar við getum ekki sýnt fram
á fullgilt rekstrarleyfi vilja söluað-
ilarnir ekki starfa með okkur,“ seg-
ir hann.
Trausti sendi Borgarbyggð
reikning með erindi sínu til sveit-
arstjórnar sem hljóðaði upp á rúm-
ar sjö milljónir króna. Hann seg-
ist ekki vilja koma af stað illindum
milli sín og sveitarfélagsins. „Ég
vil ekki koma af stað einhverjum
deilum, ég sendi þennan reikning
fyrst og fremst í því skyni að ýta
við sveitarfélaginu og sýna stjórn-
endum þar hvernig staðan væri.
Við vildum sýna hvað svona seina-
gangur kostar okkur. Við viljum
líka reyna að koma sveitarfélaginu
í skilning um það að því meiri tjóni
sem það veldur okkur því minni
peningur kemur inn í sveitarfé-
lagið. Þetta eru óboðleg vinnu-
brögð. Ég er loksins kominn með
endurnýjun á rekstrarleyfi á gisti-
heimilið en sveitarfélagið setti þau
skilyrði að við myndum skila aftur
inn teikningum af herbergjunum
en þau voru byggð fyrir nokkrum
árum og núna er bara um endur-
nýjun á rekstrarleyfi að ræða. Við
munum skila þessum teikningum,
þó svo ég skilji ekki alveg ástæð-
una því hingað hafa komið aðilar
frá slökkviliðinu, heilbrigðiseftir-
liti og vinnueftirlitinu og tekið allt
út án athugasemda.
Óánægður með hug-
myndir um skotbraut
Trausti segist vera svekktur með
það að sveitarfélagið skuli vera að
vinna að því að koma upp skotæf-
ingasvæði nálægt gistiheimili hans.
„Á meðan ég beið eftir því að fá
endurnýjun á rekstrarleyfið á gisti-
heimilið mitt var sveitarstjórn að
vinna í því að koma í gegn að búin
yrði til skotbraut rétt hjá gisti-
heimilinu mínu. Það hafa fjölmarg-
ir einstaklingar og samtök sett sig
upp á móti þeirri aðgerð og einnig
hefur verið haldinn íbúafundur um
málið. Flestir virðast vera sammála
um að svæðið eigi ekki að vera
svona nálægt byggð og á þessu fal-
lega og góða útivistarlandi. Þessi
skotbraut getur haft töluverð nei-
kvæð áhrif á reksturinn minn. Það
þarf ekki að gerast nema einu sinni
að fólk vakni upp við skothvell til
þess að það hafi áhrif. Umsagn-
ir ferðamanna á netinu um það að
þeir hafi vaknað upp við skothvell
á gistiheimilinu er ekki beint góð
auglýsing fyrir okkur. Erlendis eru
svona skotbrautir og svæði langt
frá mannabyggðum eða að það er
byggt yfir þær hús. Ég efast stór-
lega um að það verði gert hérna.
Það eru um 70-80 manns sem tala
fyrir þessari skotbraut og ég held
að það væri best að fólk sameinist
frekar Akranesi í þessum málum og
reyni að byggja upp betri aðstöðu
þar og nýta sér hana. Það er alls
ekki langt að fara þangað til þess
að stunda slíkt sport. Ég er einn-
ig óánægður með að það standi til
að búa til mótorkrossbraut hér í
grenndinni. Ég kalla eftir skilningi
sveitarstjórnar á starfsemi okkar,“
segir Trausti að endingu.
Unnið eftir lögum og
reglugerðum
Gunnlaugur A Júlíusson sveitar-
stjóri Borgarbyggðar segir að skipu-
lags- og byggingafulltrúi Borgar-
byggðar vinni eftir lögum og reglu-
gerðum þegar kemur að svona mál-
um. „Hvað varðar samskipti skipu-
lags- og byggingafulltrúa Borgar-
byggðar og Trausta Eiríkssonar f.h.
Lækjarkots ehf. þá vinnur nefnd-
ur starfsmaður eftir þeim lögum
og reglugerðum sem skipulags- og
byggingamál byggja á. Ef skipu-
lags- og byggingafulltrúi hefur beð-
ið um teikningar vegna endurnýjun-
ar á rekstrarleyfi þá byggir sú beiðni
á þeirri formfestu sem hafa verður
við vinnslu og afgreiðslu mála sem
þessara. Byggðarráð Borgarbyggð-
ar hafnaði á fundi sínum þann 4.
ágúst sl. greiðsluskyldu reiknings
frá Lækjarkoti ehf upp á rúmar sjö
milljónir króna í þessu sambandi,“
segir Gunnlaugur.
Sveitarstjórinn telur að mótor-
krossbraut muni ekki hafa áhrif
á starfsemi Lækjarkots og bendir
einnig á að reynt verði að draga úr
þeirri truflun sem skotbrautin kunni
að hafa. „Hvað hugmyndir um skot-
braut og mótorkrossbraut varðar
þá hefur Skotfélag Vesturlands sótt
um leyfi til að setja upp skotæfinga-
svæði norðan Borgarness. Í mál-
flutningi félagsins hafa verið uppi
fyrirætlanir um að setja upp skothús
við enda brautarinnar til að draga úr
hávaða ef skotæfingasvæðið verður
sett þarna niður. Einnig er algengt
að setja reglur um hvenær heimilt
sé að nota skotbrautina ef möguleiki
er á að notkun hennar valdi ónæði
á vissum tímum svo sem að nætur-
lagi. Hljóðmælingar fóru fram síð-
astliðið vor á svæðinu en að öðru
leyti hefur ekki verið tekin ákvörð-
un um hver framvinda málsins verð-
ur. Sama gildir um beiðni frá Mót-
orsportfélagi Borgarfjarðar um að
setja niður mótorkrossbraut norð-
an Borgarness. Hún er reyndar í
það mikilli fjarlægð frá Lækjarkoti
að líklegt er að meira verði vart við
umferðarnið frá þjóðveginum heim
að Lækjarkoti en hávaða frá mótor-
krossbrautinni ef hún yrði sett nið-
ur á því svæði sem umsóknin bein-
ist að. Umsóknin um brautina er í
sömu stöðu og umsóknin um skot-
svæðið. Hljóðmælingar fóru þar
fram síðastliðið vor en að öðru leyti
hefur afgreiðsla málsins verið í bið-
stöðu,“ segir Gunnlaugur.
bþb
Óánægður með vinnubrögð Borgarbyggðar
Trausti Eiríksson segir að seinagangur skipulags- og byggingafulltrúa Borgarbyggðar hafi kostað sig um tólf milljónir króna.
Séð yfir gistirými Lækjarkots/ Ljósm. laekjarkot.is
Mikill fjöldi strandveiðibáta er gerð-
ur út frá Snæfellsnesi í sumar og
myndast oft skemmtileg stemning
í höfnunum þegar bátarnir koma
að landi. Ferðamenn hafa komið
að spjalla við trillukarlana og sýnt
veiðunum mikinn áhuga. Hafa þeir
fylgst með löndun og skoðað aflann,
eins og sjá má á meðfylgjandi mynd-
um sem teknar voru í Ólafsvík.
Aflabrögð jafnt sem tíðarfar hef-
ur verið mjög gott í sumar og eru
menn sáttir með árangurinn. Flest-
um sem gera út strandveiðibáta
finnst þó að þeir fái alltof fáa daga
til veiðanna. Áætlað var að í gær,
þriðjudag, lyki veiðunum á svæð-
inu frá Snæfellsnesi og vestur um
til Súðavíkur.
af
Strandveiðin hleypur
lífi í bæjarfélögin
Þröstur Albertsson á Stefaníu SH bíður eftir að röðin komi að sér að landa.
Jóhannes Kristjánsson gerir út strand-
veiðibátinn Krók SH. Hér heldur hann
stoltur á einum þorski í stærra lagi.
Laxi RE að landa og ferðamenn fylgjast vel með.
Þegar margir koma að landi á
sama tíma þarf jafnan að bíða
eftir löndun.