Skessuhorn - 10.08.2016, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 25
Nýjar haustvörur
streyma inn
Foreldrar eru bestir í
for
vö
rn
um
.
Forvarnarhópur
Borgarbyggðar
Saman í sundi, saman í tjaldi, saman að ganga,
saman að grilla, saman að veiða, saman að spila,
saman að syngja, saman í sportinu, saman á hestbaki.
Samver
a foreldra og
ung
linga er
besta forvörnin
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
NORÐURÁLSVÖLLUR
Allir á völlinn
ÍA-Víkingur Ó.
Mánudaginn 15. ágúst kl. 18:00
Mætum öll gul og glöð
Aðalstyrktaraðili leiksins er:
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
PEPSIDEILD KARLA:
Okkar kæri
Bjarni Vilmundarson
Mófellsstöðum í Skorradal
lést 1. ágúst síðastliðinn. Útför hans verður gerð frá
Reykholtskirkju föstudaginn 12. ágúst kl. 14:00.
Jarðsett verður í Hvanneyrarkirkjugarði.
Karólína Sif Ísleifsdóttir
Kristján Ottó Hreiðarsson
og aðstandendur.
Ólafsdalshátíð var haldin níunda sinni
laugardaginn 6. ágúst síðastiðinn í
Ólafsdal við Gilsfjörð. Að sögn Rögn-
valdar Guðmundssonar, formanns
Ólafsdalsfélagsins, sóttu um 500 gest-
ir Ólafsdal heim á meðan hátíðinni
stóð. „Mæting var með mesta móti
og veðrið lék við okkur allan tím-
ann,“ segir Rögnvaldur og bætir því
við að töluvert margt fólk hafi ákveð-
ið að dvelja í Ólafsdal um tíma. Hann
segir að dagskráin hafi mælst vel fyr-
ir meðal gesta. Ómar Ragnarsson hafi
vakið lukku og ekki síður Lína Lang-
sokkur, leikin af Ágústu Evu Erlends-
dóttur. „Lína var mjög öflug. Söng
fyrir krakkana og lék síðan við þá. Þá
tók hún sig til og lyfti nokkrum körl-
um sem eru vel yfir hundrað kílóin
og hélt þeim í bóndabeygju,“ segir
Rögnvaldur, en Lína er sem kunnugt
er sterkasta stelpa í heimi.
„Rútuferðin með Soffíu II kring-
um Gilsfjörð, þar sem Sveinn Ragn-
arsson á Svarfhóli var leiðsögumað-
ur, sló í gegn. Farin var ein ferð með
fulla rútu um morguninn og síð-
an auka ferð með starfsfólk síðar um
daginn,“ segir Rögnvaldur. „Sú sem
gerði upp rútuna, Elínborg Kristins-
dóttir, ólst einmitt upp í Ólafsdal að
hluta, þó rútan hafi upphaflega ver-
ið smíðuð í Reykholti í Borgarfirði,“
segir hann. „En þetta gekk allt sam-
an alveg ljómandi vel og hátíðin var
mjög vel heppnuð í alla staði,“ segir
Rögnvaldur að lokum.
kgk/ Ljósm. Steinþór Logi Arnarsson.
Mjög vel heppnuð Ólafsdalshátíð
Ómar Ragnarsson fór með gamanmál.
Soffía II í tröðinni heima við skólahúsið í Ólafsdal.
Lína Langsokkur skemmti börnum á milli þess sem hún hélt fullorðnum
karlmönnum í bóndabeygju.
Á markaðnum var meðal annars lífrænt ræktað grænmæti úr matjurtagarðinum
í Ólafsdal.
Hestar teymdir undir börnum. Mæting var með mesta móti, en um 500 gestir sóttu Ólafsdal
heim á meðan hátíðinni stóð.
Skemmtiatriðin mældust vel fyrir meðal gesta.