Skessuhorn - 10.08.2016, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 27
Skipt var um glugga og gler í Brauð-
gerð Ólafsvíkur nú í sumar og um
leið fékk bakaríið örlítið breytt út-
lit. Settar voru skemmtilegar film-
ur með gömlum ljósmyndum á nýja
glerið. „Okkur þótti þetta ágætis
hugmynd og lögðumst í smá grúsk
til að finna réttu myndirnar. Þess-
ar heilluðu okkur, höfðum því sam-
band við eigendur þeirra og fengum
leyfi til að nota þær. Ferró skilta-
gerð sá svo um að útbúa þessar film-
ur og þær eru síðan límdar á glerið,“
segir Bjarney Jörgensen í samtali
við Skessuhorn, en hún á og rek-
ur Brauðgerðina ásamt eiginmanni
sínum, bakarameistaranum Jóni
Þór Lúðvíkssyni og fjölskyldu hans.
„Okkur langaði að hafa mynd-
ir af merkum stöðum bæjarins á
árum áður. Fyrsta myndin er af
Dagsbrún, gamla kaupfélaginu hér
í Ólafsvík. Sú næsta er af gömlu
kirkjunni sem stóð á Snoppunni. Á
þeirri þriðju má sjá húsaþyrpingu,
Símstöðin er þar í forgrunn og
gamla höfnin hér í Ólafsvík í bak-
sýn,“ segir Bjarney. „Fjórða myndin
sem stendur stök, er af Lúðvík Þór-
arinssyni tengdapabba mínum, en
hann stofnaði Brauðgerðina ásamt
eiginkonu sinni Sigríði Jónsdóttur,“
bætir Bjarney við.
arg/ Ljósm. tfk.
Brauðgerð Ólafsvíkur
fær nýtt útlit
Fiskvinnslufyrirtækið Guðmund-
ur Runólfsson hf lét smíða fyrir
sig líkan af togaranum Runólfi SH
135 á dögunum. Það var listamað-
urinn Grímur Karlsson sem sá um
smíðina en hann hafði lengi þráast
við að smíða eftirlíkingu af togar-
anum þar sem hann hafði einung-
is smíðað líkön af gömlum fiskibát-
um og seglskipum en aldrei togur-
um. Hann lét þó tilleiðast og hófst
handa við smíðina síðastliðinn vet-
ur. Líkanið var svo tilbúið í júlí og
það var Runólfur Guðmundsson
sem lengst af var skipstjóri á togar-
anum sem fór og sótti líkanið.
„Mér leið eins og smástrák á jól-
unum, slík var eftirvæntingin,“ sagði
Runni léttur í samtali við fréttarit-
ara. „Þetta er ótrúlega nákvæmt hjá
honum. Hvert smáatriði er lista-
smíði,“ hélt Runni áfram í aðdáun-
artón. Og það er alveg rétt hjá hon-
um. Líkanið er sannkallað listaverk
og sómir sér vel á skrifstofu Guð-
mundar Runólfssonar hf.
Grímur Karlsson hélt sýningu
í skipalíkönum sínum í kringum
sjómannadagshelgina fyrr í sum-
ar eins og kom fram í Skessuhorni
í júní. Þessi 81 árs listamaður eyddi
á milli 1750 og 1800 vinnustundum
í smíðina en hann vaknar klukkan
05:30 á hverjum morgni og vinnur
til 18:00 sjö daga vikunnar.
Runólfur SH 135 kom til Grund-
arfjarðar árið 1975 og var Runni
stýrimaður á honum í eitt og hálft
ár og svo skipstjóri allt þar til skipið
var selt til Rússlands 12. maí 1998
á afmælisdegi skipstjórans. „Já, það
vildi nú þannig til að skipið var selt
sama dag og ég fagnaði fimmtugs-
afmælinu mínu,“ sagði Runólfur á
meðan hann virðir líkanið fyrir sér
og hugsar til baka um skipið sem
var honum svo kært. tfk
Leið eins og smástrák á jólum þegar hann sótti líkanið
Líkanið er ótrúlega nákvæm eftirlíking af skipinu. Runólfur Guðmundsson stendur hér við líkan af skipinu sem að hann var lengst af
skipstjóri á.
Þröstur Albertsson sjómaður og ljósmyndari í Ólafsvík var á veiðum í síðustu viku þegar rita ein gerði sig heimakomna í
bátnum hjá honum. Þröstur skar handa bita af makríl og bauð henni. Settist hún á hendi hans og át og tók Þröstur með-
fylgjandi mynd með hinni hendinni á símann. mm/ Ljósm. þa.
Þáði makríl úr útréttri hönd
Kríuvarp virðist hafa
gengið vel í Rifi í sum-
ar ef marka má fjölda
unga sem nú eru í veg-
köntunum. Greinileg
framför er í vexti og
viðgangi kríunnar og
víst að æti hefur ver-
ið betra en undanfar-
in ár þegar fáir ungar
komust á legg. Í sumar
hefur farið fram rann-
sókn á því hvort hægt
sé að halda ungunum
frá veginum með því
að mála yfirborð veg-
arins í ákveðnum lit-
um. Hvort það hef-
ur haft áhrif skal ósagt
látið en gaman verð-
ur að sjá niðurstöður
úr rannsókninni. Eitt-
hvað er þó samt um að
kríur verði fyrir bílum
og mikilvægt að fara
varlega á svæði varps-
ins í Rifi.
þa
Kríuvarpið gekk vel í Rifi
Á lokadegi júlí lauk mánaðarlöng-
um leiðangri rannsóknaskipsins Árna
Friðrikssonar. Leiðangurinn hafði
það meginmarkmið að meta magn og
útbreiðslu makríls umhverfis Ísland.
Verkefnið er hluti af sameiginleg-
um rannsóknum Íslendinga, Norð-
manna, Færeyinga og Grænlendinga
á dreifingu og magni helstu uppsjáv-
artegunda í Norðaustur-Atlantshafi
ásamt athugunum á magni átu og
umhverfisþáttum.
Makríl var að finna úti fyrir Aust-
urlandi, með suðurströndinni og upp
með Vesturlandi en lítið sem ekkert
varð vart við hann norður af land-
inu. Bráðbirgðaniðurstöður sýna ívið
meira magn og vestlægari útbreiðslu
makríls við Ísland en í fyrra, sem er
jafnframt hæsta gildi síðan athugan-
irnar hófust árið 2009. Síld fannst
nokkuð víða á rannsóknasvæðinu,
norsk-íslensk síld austur og norður af
Íslandi og íslensk sumargotssíld fyr-
ir sunnan og vestan. Norður af Ís-
landi varð vart við töluvert af norsk-
íslenskri síld allt að Vestfjarðamiðum.
Skörun á útbreiðslu síldar og mak-
ríls var mest austan við land en einnig
töluverð á grunnslóð sunnan og vest-
an lands þar sem makríll var í bland
við íslenska sumargotssíld. Ágæt-
is upplýsingar um útbreiðslu hrogn-
kelsa í úthafinu fengust í leiðangrin-
um og líkt og fyrri ár veiddust hrogn-
kelsi víðast hvar á rannsóknarsvæð-
inu. Þá var kolmunna að finna á haf-
svæðinu á milli Íslands og Færeyja
sem og suður og vestur af landgrunni
Íslands.
Alls voru teknar 82 fyrirfram
ákveðnar rannsóknastöðvar þar sem
tekin voru stöðluð tog í efstu lögum
sjávar með flottrolli til að meta magn
makríls. Jafnframt yfirborðstogum
voru umhverfisþættir mældir og átu-
sýnum safnað með háfum. Í ár var ell-
efu sinnum togað dýpra þar sem kol-
munna varð vart og á fimm stöðvum
voru framkvæmd samanburðartog.
Bergmálsgögnum var safnað á milli
rannsóknarstöðva til að meta magn
síldar og kolmunna. Framundan hjá
Hafró er frekari úrvinnsla á gögn-
um sem safnað var í leiðangrinum
og munu helstu niðurstöður verða
kynntar undir lok mánaðarins í sam-
eiginlegri skýrslu þeirra aðila sem að
leiðangrinum stóðu.
mm
Makrílleiðangri Árna Friðrikssonar lokið
Makríll veginn og mældur í leiðangri Árna Friðrikssonar. Ljósm. Hafró.