Skessuhorn - 10.08.2016, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 201628
Hverjir sigra ensku
úrvalsdeildina í vetur?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Tryggvi Hrafn Haraldsson:
„Liverpool.“
Guðlaugur Þór Brandsson:
„Leicester City. Þeir eru lang-
bestir.“
Auðun Ingi Hrólfsson:
„Manchester United.“
Sigþóra Ársælsdóttir:
„Ég hélt alltaf með Arsenal í
gamla daga svo ég segi að þeir
vinni í ár.“
Valdís Inga Valgarðsdóttir
„Það verður annað hvort Manc-
hester United eða Real Madrid.
Hörð barátta.“
Skíðadeild UMFG í Grundarfirði
hlaut framfaraverðlaun Eyrbyggja á
bæjarhátíðinni Á góðri stundu sem
haldin var í lok júlí. Viðurkenninguna
fékk skíðadeildin fyrir mikið og gott
uppbyggingarstarf á skíðasvæði Snæ-
fellinga í Grundarfirði með aðstoð
heimamanna en deildin stóð fyr-
ir opnun gamla skíðasvæðisins fyrir
ofan Grundarfjörð síðastliðinn vet-
ur og safnaði fyrir nýjum diskum á
skíðalyftuna sem var orðin ónothæf.
Á hátíðinni voru einnig veittar við-
urkenningar fyrir fyrirmyndargarða í
Grundarfjarðarbæ árið 2016. Hjónin
Jón Snorrason og Selma Friðfinns-
dóttir hlutu viðurkenninguna í flokki
heimila og í flokki fyrirtækja hlaut
Bjargarsteinn Mathús viðurkenn-
ingu. grþ / Ljósm. tfk.
Viðurkenningar veittar í Grundarfirði
Það var Rósa Guðmundsdóttir formaður skíðadeildarinnar sem tók við viðurkenn-
ingunni úr höndum Höllu Halldórsdóttur formanns Eyrbyggja.
Þorsteinn Steinsson bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar veitti viðurkenningar fyrir
fyrirmyndargarða ársins.
Veitingahúsið Bjargarsteinn Mathús hlaut viðurkenningu í flokki fyrirtækja. Garður Jóns Snorrasonar og Selmu Friðfinnsdóttur við Fossahlíð hlaut viðurkenn-
ingu sem fyrirmyndargarður í Grundarfjarðarbæ 2016.
Eins og Skessuhorn greindi frá í
júnímánuði hefur verið ákveðið að
reisa reiðskemmu á svæði hesteig-
endafélagsins Hrings í Ólafsvík.
Fyrsta skóflustungan að skemm-
unni var tekin þriðjudaginn 2. ágúst
síðastliðinn af þeim Kristmanni
Arnkelssyni og Trausta Magnús-
syni, heiðurs- og stofnfélögum
hesteigendafélagsins. Framkvæmd-
ir hófust sama dag. Að sögn Stefáns
Smára Kristóferssonar, formanns
hesteigendafélagsins Hrings, er
stefnt að því að ljúka framkvæmd-
um að stórum hluta í haust. „Það á
að reyna að klára í haust að stórum
hluta þannig að það verði hægt að
nota skemmuna í vetur,“ segir hann
en bætir því við að félagsaðstaðan
verði ef til vill ekki tilbúin fyrr en
á næsta ári.
Skemman verður staðsett á svæði
hesteigendafélagsins við Fossá og
kemur frá Límtré-Vírneti. Stærð
hennar er 18 sinnum 38 metr-
ar. Hesteigendafélagið stendur að
verkefninu með styrk frá sveitarfé-
laginu Snæfellsbæ. Heildarkostn-
aður við byggingu reiðskemmunn-
ar er áætlaður 24 til 26 milljón-
ir króna, að sögn Stefáns Smára.
Hann segir að skemman komi til
með að bæta aðstöðu félagsmanna
til mikilla muna. „Hingað til höf-
um við ekki haft neina inniaðstöðu.
Þetta er því lífsspursmál fyrir allt
okkar vetrarstarf; námskeiðahald
fyrir börn og fullorðna og fleira
slíkt,“ segir hann.
kgk
Gítarleikarinn Reynir Hauksson
heldur tónleika á Hvanneyri Pub
föstudaginn 12. ágúst næstkom-
andi. Reynir, sem búsettur er í
Noregi, er alinn upp á Hvanneyri
og hefur dvalið hérlendis í sumar.
Hann kom fram á Hvanneyrarhátíð
í júlímánuði síðastliðnum en heldur
nú aðra tónleika áður en hann held-
ur af landi brott.
Á efnisskrá tónleikanna á föstu-
daginn verður stiklað á stóru í
klassískum gítarleik, en einnig mun
Reynir flytja þjóðlög og jafnvel
nokkur suður-amerísk lög.
Áhugasömum er bent á að tón-
leikarnir hefjast klukkan 20 og að-
gangseyrir er kr. 1.000. Ekki verður
posi í miðasölunni.
kgk
Tónleikar á Hvanneyri
á föstudag
Reynir Hauksson gítarleikari.
Mikill fjöldi fólks á öllum aldri hef-
ur undanfarna daga safnast saman á
bryggjunum í Ólafsvík og í Rifi til
þess að veiða makríl sem gengur inn
í hafnirnar.
Mikill stemning hefur myndast
þar að undanförnu, enda margt um
manninn á hafnarsvæðinu og marg-
ir við veiðar hverju sinni. Sumir hafa
verið að veiða í matinn á meðan aðrir
hafa veitt makrílinn sér til gamans og
síðan sleppt honum. af
Mokveiði af makríl í höfninni
Þrír krókar á færinu og fiskur á þeim
öllum.
Þessir kátu bræður veiddu makríl sem
átti að grilla og snæða.
Fyrsta skóflustungan tekin að nýrri reiðskemmu
Kristmann Arnkelsson og Trausti Magnússon, heiðurs- og stofnfélagar hesteig-
endafélagsins Hrings, tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri reiðskemmu félagsins.
Ljósm. þa.