Skessuhorn - 10.08.2016, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 29
Nýverið urðu mannabreytingar í
Húsasmiðjunni á Akranesi. Auglýst
var eftir nýjum rekstrarstjóra fyrr í
sumar og hefur Brynjólfur Jón Her-
mannsson nú verið ráðinn í starfið.
Blaðamaður Skessuhorns leit við
á skrifstofunni hjá Brynjólfi sem
hóf störf í síðustu viku og líst vel
á. „Þetta er mjög spennandi. Mér
hefur verið tekið mjög vel og ég er
mjög ánægður. Hér er gott starfs-
fólk,“ segir hann en alls starfa átta
manns í versluninni. Brynjólfur er
fæddur í Bolungarvík og hefur alið
manninn meiri hluta ævinnar í höf-
uðborginni. Hann hefur þó góða
tengingu við landshlutann og býr á
Galtarlæk II í Hvalfjarðarsveit. „Ég
er fóstursonur Guðmundar Andr-
éssonar, sem er elsti sonur Guð-
bjargar Guðmundsdóttur og Sæ-
mundar á Galtarlæk. Ég flyt svo
hingað ásamt eiginkonu minni og
þremur börnum árið 2013,“ segir
hann. Það má því segja að Brynjólf-
ur hafi flutt á heimaslóðir enda var
hann alltaf í sveit á Galtarlæk sem
barn.
Er tölvunar- og
búfræðingur
Brynjólfur er lærður tölvunarfræð-
ingur en áður en hann menntaði sig í
þeim geiranum var hann á sjó og rak
járnabindingarfyrirtæki. Þá er hann
einnig búfræðingur að mennt. „Ég
lauk barnaskólanum í Reykjavík en
fór ekki í framhaldsskóla eftir það,
heldur beint inn í Bændaskólann og
lauk þaðan búfræðinámi. Ég hafði
hug á því að gerast bóndi og starf-
aði um tíma sem afleysingabóndi
í Efsta - Dal á Suðurlandi og sem
fjósamaður. Eftir það fer ég á sjó-
inn og í járnabindingarnar,“ útskýrir
hann. Brynjólfur segist þó hafa orð-
ið slæmur í skrokknum eftir járna-
bindingarnar og því lokaði hann fyr-
irtæki sínu eftir tíu ára rekstur. Það-
an fór hann aftur í nám. „Ég kláraði
stúdentinn frá frumgreinadeild Há-
skólans í Reykjavík og fór í tölvunar-
fræðina þar. Ég lauk því námi 2014
en þá vorum við flutt hingað upp eft-
ir. Það er lítið um hugbúnaðarfyrir-
tæki hérna á svæðinu og mig langaði
ekki að keyra í bæinn, enda erum við
með börn á grunnskólaaldri.“
Kórdrengur
með græna fingur
Eftir að Brynjólfur lauk náminu við
Háskólann í Reykjavík segir hann að
það hafi dottið upp í hendurnar á sér
að sjá um timbursöluna í Húsasmiðj-
unni í Borgarnesi. „Ég var þar í þrjú
ár. Það hefur greinilega gengið það
vel með hana að þegar ég sæki um
rekstrarstjórastöðuna hér, þá fæ ég
hana,“ segir hann léttur í bragði. Að-
spurður um hvort breytingar verði
á rekstri Húsasmiðjunnar á kom-
andi misserum segir hann svo ekki
vera, enda sé nýverið búið að breyta
rekstrinum þegar verslunin Blóma-
val var tekin út. „ Markmið mitt er að
gera þetta að eftirsóknarverðri versl-
un fyrir fólk í heimabyggð og iðn-
aðarmenn og veita þeim framúrskar-
andi þjónustu. Ef mér, ásamt mínu
starfsfólki, tekst að skapa stemningu
þar sem fólki líður vel og lítur við í
kaffi og hittir nágranna þá verð ég
yfir mig ánægður.“
Aðspurður um áhugamálin segist
Brynjólfur hafa gaman af söng og er
hann einn af stofnendum Drengja-
kórs íslenska lýðveldisins, þar sem
hann syngur enn. „Þetta eru félagar
sem eru í kórum víðsvegar en við
vildum syngja meira og flytja öðru-
vísi tónlist. Við hittumst einu sinni
í viku og syngjum dægurlög í bland
við gamla standara. Það eru mikl-
ir grínistar innan um og við leyf-
um þeim að láta ljós sitt skína,“ seg-
ir hann. Þess má geta að kórinn kom
einmitt fram á Ólafsdalshátíð um
liðna helgi. Brynjólfur hefur þó ekki
einungis gaman af söng og nýtir sinn
frítíma einnig í garðinum heima á
Galtarlæk. „Ég er með græna fingur
og róta mikið í beðunum heima. Ég
hef mikið dálæti á náttúrunni í Hval-
firði og elska að horfa yfir fjörðinn.
Ég tel það vera forréttindi að búa
þar,“ segir rekstrarstjórinn að lok-
um.
grþ
Nýr rekstrarstjóri
Húsasmiðjunnar á Akranesi
Brynjólfur Jón Hermannsson er nýr rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar á Akranesi.
Pennagrein
Pennagrein
Á næstunni fer fram forval Vg í
Norðvesturkjördæmi. Ég hef gef-
ið kost á mér í forystu hreyfingar-
innar í kjördæminu. Undanfarin ár
hef ég verið varaþingmaður Vg.
Af hverju gef ég kost á mér og
hver er mín sýn á verkefnin?
Að hafa alist upp í litlu sjávar-
þorpi, tekið þátt í samfélaginu frá
mörgum hliðum og að vera að ala
upp börn á sama stað hefur mótað
mig og mínar skoðanir til stjórn-
mála og ekki síst til stöðu lands-
byggðarinnar. Endalaus varnar-
barátta um möguleika á þjónustu
og uppbyggingu er slítandi fyrir
þá sem í því standa og íbúa sam-
félaganna. Íbúum fækkar, þjónusta
minnkar, laun lækka (að meðaltali)
og það sem verst er: sjálfsmynd
íbúanna gagnvart samfélaginu
lækkar, eðlilega. Snúum þessu við.
Finnum leiðir og leyfum svæðun-
um að njóta sinna styrkleika og efla
sín sterku sérkenni. Það á að vera
góður valkostur fyrir ungt fólk að
setjast að á landsbyggðinni.
Undanfarin ár hafa einkennst af
átökum og óvæginni pólitík sem
fælir almenning frá því að taka þátt
og minnkar traust á stjórnmál-
um. Greinileg hagsmunagæsla og
spilling hefur ekki aukið tiltrúna.
Þessu þarf að breyta. Við þurf-
um breytta nálgun. Fólk verður
að fá aftur tiltrú á stjórnmálin og
vera tilbúið að taka þátt, því hvort
sem okkur líkar betur eða verr þá
byggist okkar tilvera að miklu leyti
á hvernig hér er haldið um hina
pólitísku tauma.
Til að svo geti orðið verða taum-
arnir að liggja til fólksins og að
fyrst og fremst verði þeirra hags-
muna gætt. Öll þjónusta kostar
peninga og því verðum við saman
að fá meiri tekjur af okkar auðlind-
um hvort heldur við erum að tala
um raforkufram-
leiðslu, sjávar-
útveg eða ferða-
þjónustu.
Möguleikarnir eru miklir sem
við höfum í okkar gjöfula og ótrú-
lega fallega landi. Fólkið er dug-
mikið og vill sínu samfélagi vel.
Nálgumst verkefnin saman, ver-
um kurteis, lausnamiðuð og leyf-
um svæðum að vaxa.
Það er bjart yfir, nýkjörinn for-
seti gefur frá sér mildan tón um-
burðarlyndis og sátta. Flykkjumst
saman á þann góða vagn, það mun
gagnast okkur vel.
Ég hvet alla áhugasama að taka
þátt í forvali Vg í Norðvestukjör-
dæmi og hafa áhrif.
Bestu kveðjur,
Lárus Ástmar Hannesson, Stykk-
ishólmi.
Breytt nálgun
Framsóknarþingmenn og fleiri telja
nú að það bjargi efnahag heimil-
anna að banna vísitölutengd lán.
Fleira er vísitölutengt en lán, t.d.
lífeyrisgreiðslur gamla fólksins. Ef
svo hefði ekki verið í hruninu, þá
hefði fjárhagslegur skellur þess fólks
orðið mun verri en hann varð.
Lausnin felst ekki í banni við
vísitölutengingu lána eins og Fram-
sóknarþingmenn halda. Niðurstaða
þess verður aðeins að færri fjöl-
skyldur geta fjárfest í mannsæm-
andi íbúðarhúsnæði, vegna mun
hærri vaxta og þá um leið þyngri
greiðslubyrði óverðtryggðra lána.
Vandinn er ónýt mynt, sem þarf
belti, axlabönd og bleyju sér til halds
og trausts í formi gjaldeyrishafta og
annarra varúðar-
tækja Seðlabank-
ans, sem og lang-
varandi efnahagslegri óstjórn.
Betra væri að hér væri nothæf al-
þjóðleg mynt fyrir allan almenning,
mynt eins og formaður Framsókn-
arflokksins geymdi sínar eignir í og
hafði sínar tekjur af á Tortola, laus
frá vandamálum krónunnar.
Það myndi leiða til lægri vaxta
og bættrar afkomu almennings og
fyrirtækja en er ekki „hokus pokus“
lausn byggð á pólitískri tækifæris-
mennsku.
Borgarnesi, 8. ágúst 2016
Guðsteinn Einarsson
Sjálfsblekking
Framsóknarþingmanna!
Pennagrein
Um verslunarmannahelgina fór
fram Unglingalandsmót UMFÍ
í Borgarnesi og voru það UMSB
og aðildarfélög þess ásamt Borg-
arbyggð sem voru mótshaldarar.
Talsverður undirbúningur er á bak-
við viðburð af þessari stærðargráðu
þar sem tæplega 1500 keppend-
ur mæta til leiks og 10-15 þúsund
gestir heimsækja Borgarbyggð á
einni helgi. Frá byrjun árs 2016 hef-
ur verið starfandi Unglingalands-
mótsnefnd sem skipuð er fulltrú-
um úr stjórn UMSB, stjórn UMFÍ
ásamt starfsmönnum og íbúum
Borgarbyggðar. Hlutverk nefndar-
innar er að undirbúa og skipuleggja
viðburðinn og sjá til þess að keppn-
isgreinar, afþreying og allur aðbún-
aður sé eins og best verður á kos-
ið. Einnig hafa starfsmenn áhalda-
húss Borgarbyggðar og nemendur
vinnuskólans unnið frábært starf í
sumar við að koma bænum í „spari-
fötin“ og getum við öll verið stolt
af bænum okkar sem heillaði gesti
alla helgina.
Mótið hófst á fimmtudegi með
keppni í golfi og körfubolta, þegar
leið á helgina bættust fleiri grein-
ar við en alls var keppt í 14 grein-
um frá fimmtudegi til sunnudags.
Tókst mótahaldið mjög vel og voru
margir að bæta árangur sinn veru-
lega. Sett voru tvö Íslandsmet í
frjálsum, í hástökki stúlkna 13 ára
og í boðhlaupi stúlkna 16-17 ára.
Fjöldi landsmótsmeta var sleginn
og ungur kylfingur náði drauma-
högginu og fór holu í höggi á 14.
braut á Hamarsvelli.
Fjölbreytt afþreying var fyrir alla
aldurshópa frá fimmtudegi fram
á sunnudagskvöld og má þar m.a.
nefna kvöldvökur öll kvöldin þar
sem fram komu nokkrir af vinsæl-
ustu tónlistarmönnum Íslands í dag,
en þar má t.d. nefna; Friðrik Dór,
Úlfur Úlfur, Dikta, Amabadama
o.fl. Hoppukastalar voru bæði á
tjaldstæðinu og í Skallagrímsgarði,
boðið var upp á kennslu í „street“
fótbolta, fótboltakeppni var fyrir
yngstu gestina, kvikmyndasýning-
ar, andlitsmálning o.fl. En það var
almennt mikil ánægja gesta með
fjölbreytt úrval afþreyingar fyrir
alla aldurshópa og fengu mótshald-
arar almennt mikið hrós fyrir.
Umgengni gesta var til fyrir-
myndar og þó veðrið hafi verið gott
frá fyrsta degi mótsins þá batnaði
það með hverjum deginum sem
leið og á sunnudeginum var kom-
ið glampandi sólskin, logn og bros
á hverju andliti.
Mótið tókst einfaldlega frábær-
lega og er það ekki síst að þakka
þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum
sem stóðu vaktina með sóma, íbú-
um Borgarbyggðar sem tóku á móti
gestum með brosi á vör og öllum
þeim keppendum og gestum sem
tóku þátt í mótinu og þeirri afþrey-
ingu sem var í boði.
Takk fyrir hjálpina íbúar Borgar-
byggðar og sjálfboðaliðar, og takk
fyrir komuna góðir gestir og kepp-
endur!
Sjáumst á næsta Unglingalands-
móti í Fljótsdalshéraði 2017!
F.h. Stjórnar UMSB
Pálmi Blængsson framkvæmda-
stjóri UMSB
Kveðja frá stjórn UMSB
- Takk fyrir okkur!