Skessuhorn - 10.08.2016, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 201630
Vísnahorn
Það munu nú rúm 60
ár síðan Lárus Jónsson
læknir á Skagaströnd
hélt upp á sextugsafmæli
sitt og hefur án efa gert það rösklega sem
og margt fleira. Fékk hann vin sinn Lúðvík
Kemp til að semja fyrir sig boðsbréf sem jafn-
framt var matseðill kvöldsins og birtist hann
hér:
BOÐSBRÉF
í sextugsafmæli Lárusar Jónssonar læknis
þann 23. mars 1956.
Undirritaður afmæli
á og heldur með vinum bráðum.
Ætla ég það verði einsdæmi
enda er Kemp þar með í ráðum.
Tuttugasta og þriðja þá
þessa mánaðar hef ég lifað
sextíu ár og seggjum hjá
sjúka læknað og resept skrifað.
Sprautur gefið og mæðast mátt.
Margt hef ég stigið örðugt þrepið.
Meðul blandað, við meiðsli átt,
marga læknað en fáa drepið.
Áfengi miðlað ýmsum hér
aðeins til prýði og heilsubóta,
Landphysikus er ljúfur mér,
lætur mig jafnan þessa njóta.
MATSEÐILL
Hef ég á borðum hákarl, lax,
hangiket, rikling, skötu, kola.
Brennivín öllum boðið strax
bitunum til að niður skola.
Kál verður þarna og kúasmjör,
kæfa, rúgbrauð og þeyttar flautir.
Selspik framreiði og sauðamör
seggir þá gerast innanblautir.
Garðávöxtum og grænmeti
gnægð verður af og sviðahausum,
hangnum sperðlum og spaðketi
spikfeitu og berjum makalausum.
Ávaxtamauk og íslenskt skyr
í öskum framreitt á skutil manna.
Allt saman þetta áður fyr
uppáhaldsréttir forfeðranna.
Bjarndýraket og bolaspað,
baunum, harðfisk og súrmat nægum
og æðarfuglum skal úthlutað
í eggjasósu með kokkteil frægum.
Framreidd þá verður í síðsta sinn
soðin og harðsteikt fjallarjúpa.
Eftirmaturinn ákveðinn:
englabolla og fiskisúpa.
ÖLFÖNG
Menn eiga þarna á whisky völ,
vermouth og sherry engan skortir,
karfalýsi, kaffi og öl,
kampavín, mjólk og fleiri sortir.
Verður framborið vodka og gin,
vatn og koníak, mjöð og landi,
það skulu bragða þessi og hin
sem þora ekki að drekka áberandi.
Og að sjálfsögðu alltaf veitt
ekta brennivín frómum sálum.
Rommblanda, te og toddy heitt
en templarar drekka mysu úr skálum.
Ákavíti og enskur bjór
ætlast er til að verði á borðum
engu minni en hjá Ása Þór
í Útgarða Loka höllu forðum.
Lúðvík Rúdolf Kemp
Eitthvað er minnst þarna á bjór sem mörg-
um þykir heppilegur drykkur og þótti það líka
áður en til kom aðflutningsbann á áfengi sem
var sett á 1915 ef ég man rétt. Eitthvað fyr-
ir þann tíma kom skáldið Einar Benediktsson
á bæ ölkenndur nokkuð og þáði veitingar hjá
húsfreyju sem síðan gekk með honum til hests
og hélt í ístaðið meðan skáldið ámeraðist. Að
launum vildi húsfreyja fá vísu og kom þá þessi
gáta um bjórinn:
Í gleði og sút hef ég gildi tvenn.
Til gagns er ég eltur en skaði er að njóta.
Hafður í reiða, um hálsa ég renn,
til höfuðs ég stíg en er bundinn til fóta.
Einhver góður og gegn gleðimaður kvað
að morgni dags fyrir margt löngu og hefur
greinilega legið heldur vel á honum. Mætti
segja mér að bjór hafi komið eitthvað við
sögu og jafnvel að ort hafi verið um Verslun-
armannahelgina:
Hefjum gæjar söngvaseið,
suður á bæi afi reið,
með sínu lagi á sónarskeið
syfjuð pæja úr bóli skreið.
Rósberg Snædal hefur án efa þekkt langan
vinnudag meira en af afspurn einni:
Dofnar skinn og daprast trú,
dvín að sinni bragur,
læknir minn og líkn ert þú
langi vinnudagur.
Íslenskur landbúnaður hefur oft átt í vök
að verjast á undanförnum árum og afkoma
bænda ekki alltaf uppá marga fiska. Kvótinn
þrengir að og kröfur aukast en aðföng halda
sínu verði enda orti Sigfús Jónsson:
Flestir bændur finna og sjá
að fjölgar gráum hárum.
Búskapurinn byggist á
blóði, svita og tárum.
Þó verður nú stöðugt eitthvað oss til glaðn-
ingar eins og fleirum enda jarðlífið full stutt
til að eyða því í eintóm leiðindi. Vegagerðar-
menn hafa löngum verið frekar léttlyndir og
reynt að hafa gaman af lífinu enda var kveðið:
Á Norðurlandi sérhver sála
söng i moll og dúr
í Vaðlaheiðarvegamála-
verkfærageymsluskúr.
Á tímabili handverkfæra í vegagerð var al-
gengt hópakkorð og þá ekki vinsælir í flokkn-
um menn sem ekki lögðu sig alla fram til
verksins. Einu sinni var kveðið um vegavinnu-
mann, sem þótti duglegri við matborðið en í
vinnunni enda trúlega félagsútgerð á matvæl-
unum líka:
Á honum finn ég engan blett,
sem æruna megi skaða.
Hann juðar þetta jafnt og þétt,
en étur með akkorðshraða.
Á stríðsárunum orti Jón nokkur Pétursson
um vinnufélaga sinn og sýnist sem maðurinn
hafi verið í fullri þörf fyrir andlega huggun:
Hans er sundrað sálarflak,
syndir í dánum vonum.
Það þarf hundrað tonna tak
til að bjarga honum.
Ætli við látum þetta ekki duga sem andlega
huggun að sinni og bið ég lesendum mínum
blessunar með þökk fyrir lesturinn.
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Í Vaðlaheiðarvegamálaverkfærageymsluskúr
Eftirspurn eftir athafnaþjónustu
Siðmenntar hefur vaxið verulega
undanfarin ár og aldrei meiri en
á þessu ári. Eru þær þegar orðn-
ar fleiri nú á miðju ári en allt árið
2015. Búið er að framkvæma eða
panta 200 athafnir en það eru nafn-
gjafir, giftingar og útfarir.
Aukin eftirspurn er aðallega eft-
ir giftingum og hefur fjöldi þeirra
næstum þrefaldast frá 2013. Það ár
voru þær 36 talsins en eru orðn-
ar 135 í ár. Aukning hefur orð-
ið í giftingum Íslendinga en einn-
ig erlendra para sem leita til félags-
ins beint eða gegnum fyrirtæki sem
sérhæfa sig í slíkum ferðum til Ís-
lands.
Til þess að mæta eftirspurninni
hefur Siðmennt þjálfað 16 nýja at-
hafnastjóra á árinu en fyrir voru
þeir 25. Með þessari fjölgun hefur
Siðmennt tekist að byggja upp net
athafnastjóra um landið til þess að
gefa fleirum möguleika á að hafa
val þegar kemur að mikilvægum
athöfnum í lífinu. Fyrir utan höf-
uðborgarsvæðið eru athafnastjór-
ar starfandi á Vesturlandi, Ísafirði,
Dalvík, Akureyri, Húsavík, Höfn í
Hornafirði og á Suðurlandi.
Athafnir Siðmenntar eru verald-
legar og eru því valkostur sem kemur
í stað trúarlegra athafna. Siðmennt
hóf að bjóða upp á þær árið 2008 og
hefur þeim fjölgað stöðugt síðan en
verulega hratt síðan 2013, þegar fé-
lagið hlaut skráningu sem veraldlegt
lífsskoðunarfélag. Athafnirnar eru
persónulegar, hátíðlegar og falleg-
ar þar sem áherslan er lögð á fólkið
sem verið er að þjónusta.
Frá árinu 2008 hafa athafnastjórar
Siðmennt framkvæmt 705 athafn-
ir, gift 800 einstaklinga, gefið 240
börnum nafn og séð um útfarir 50
einstaklinga.
-fréttatilkynning
Eftirspurn eftir athöfn-
um SiðmenntarDanskir dagar verða haldnir í 22. sinn í Stykkishólmi um næstu helgi
en hátíðin er ein af elstu bæjarhá-
tíðum landsins. Að sögn Önnu
Margrétar Sigurðardóttur, fram-
kvæmdastýru Danskra daga, hef-
ur verið sett saman fjölbreytt dag-
skrá þar sem nóg verður í boði fyr-
ir alla. „Hátíðin er fjölskylduhátíð
og dagskráin eftir því, allir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“
segir Anna Margrét í samtali við
Skessuhorn.
Meðal þess sem boðið verður
upp á er Stubbahlaup, markaðs-
tjöld og fjölbreytt dagskrá á sviði
á hátíðarsvæðinu. Dagskráin sjálf
hefst klukkan tvö á föstudaginn
með Loppemarked í tónlistarskól-
anum en þar getur fólk selt notaðar
gersemar úr geymslunni. „Á föstu-
dagskvöldinu er dagskráin mest í
höndum veitingastaða bæjarins en
við sem stöndum að hátíðinni erum
sjálf að einblína frekar á laugardag-
inn. Hin árlegu hverfagrill verða
þó á sínum stað á föstudagskvöld-
inu,“ segir Anna Margrét. Eftir
gott morgunjóga sem boðið verður
upp á á laugardagsmorgninum ættu
allir hátíðargestir að vera tilbúnir í
dagskrá dagsins. „Það verður mikið
fjör á laugardeginum, Brúðubíllinn
og Heiðar og Haraldur úr Polla-
pönki verða ásamt fleirum á hátíð-
arsvæðinu og svo verður m.a. boð-
ið upp á froðurennibraut og dorg-
veiðikeppni. Í fyrra var haldin fyrir-
tækjakeppni í loftbolta og sló það al-
veg í gegn svo við ákváðum að hafa
keppnina aftur í ár og hvetjum við
fyrirtæki og aðra hópa til að skrá sig
til leiks,“ segir Anna Margrét. Um
kvöldið verður síðan fjölbreytt dag-
skrá á sviðinu og koma fram með-
al annars Alda Dís og Páll Ósk-
ar ásamt tónlistarfólki úr Hólmin-
um. Brekkusöngurinn og flugelda-
sýningin verða svo að sjálfsögðu á
sínum stað og dagskráin endar svo
með stórdansleik með Páli Óskari
í íþróttamiðstöðinni. Fyrir þá sem
vilja kynna sér dagskrána nánar er
hægt að nálgast hana á Facebook
síðu Danskra daga og á heimasíðu
hátíðarinnar, www.danskirdagar.
stykkisholmur.is.
„Við hvetjum alla til að skreyta
í dönsku fánalitunum og að mæta
í hátíðarskapi því það verður mik-
il stemning í bænum þessa helgi,“
segir Anna Margrét að lokum.
arg
Danskir dagar framundan í Stykkishólmi
Svipmynd frá hátíðinni í fyrra.
Anna Margrét Sigurðardóttir er
framkvæmdastýra Danskra daga.