Skessuhorn - 10.08.2016, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2016 31
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir
sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á net-
fangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á
mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang
þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa að-
gang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn -
krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athug-
ið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstu-
degi). Dregið verður úr réttum innsendum lausn-
um og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessu-
horni; „Pétrísk íslensk orðabók með alfræðiívafi,“
eftir sr. Pétur Þorsteinsson.
Alls bárust 79 lausnir við krossgátunni í blaðinu í
síðustu viku. Lausnin var: „Tómstund.“ Vinnings-
hafi er: Kristfríður Björnsdóttir, Uppsölum í Hálsa-
sveit, 320 Reykholt.
Máls-
háttur
Píla
Flan
Fölnar
Mis-
takast
Fólk
Tvíhlj.
Árbækur
Röð
Reiðihlj
Misk-
unn
Hælir
Epjast
Tæp
Reykja Dreifa
Tvenna
Fugl
Ævin
Gler
Hönd
Flan
Skokk
Nudda
Árbítur
Ríku-
lega
Áhald
Tíndi
10 4 Áflog
Af-
kvæmi
Suddi
Korn
Þröng
2
Kjaftur
Brakaði
Missir
Kona
Elfur
Dót
Korn
8
Fyrir-
boði
Alda
Fæðir
Ilma
Beisk
Hætta
Kona
Leið-
sögn
6
Reisn
Sýl
Oddur
Sögn
Sam-
hljóðar
Afa
Mæða
Kæpan
Núna
51
Samhlj.
Arkar
Bára
Tölur
Sár
Botn
Herðar
Gorta
Dína-
mór
Aðstoð
Gabba
500
Tautar
Góð
9
Vorið
Dýra-
hljóð
Átt
Kjánar
Tæki
X
Fvíhlj.
Kisa
Slá
Vigtaði
Not
Sk.st.
Uggði
Rödd
Hluti
Iðja
7
Handar-
hald
Basla
Þó að
Ofnar
Venja
Skjól
Tekt
Tálbiti
Rölt
Eðli
Tók
Gaur-
ana
5 Mas
Samhlj.
LJá
Þegar
Glitr-
aði
3
Leiði
Líka
Máninn
1
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Sumarlesari
vikunnar
Þá er komið að síðasta sumarlestri
ársins á Bókasafni Akraness og eru
það systur að þessu sinni til að ljúka
þessu með stæl.
Hvað heitið þið og hvað eru þið
gamlar? Aníta Sif og Agnes Mist
Flosadætur. Aníta er 8 ára og Agnes
er 10 ára.
Í hvaða skóla eru þið? Við erum
í Brekkó.
Hvaða bók varstu/ertu að lesa?
Aníta var að lesa Benni og Lena
og kettlingurinn. Agnes er að lesa
Mörtu Smörtu.
Hvernig voru bækurnar? Benni og
Lena og kettlingurinn var skemmti-
leg. Marta Smarta er skemmtileg og
fyndin. Marta flytur til pabba síns
og braust óvart inn í hús.
Hvernig bækur finnst ykkur
skemmtilegastar? Aníta les fyndn-
ar bækur og Agnes les spennandi
bækur en ekki „krípí“ bækur.
Hvar er best að vera þegar mað-
ur er að lesa? Það er best að lesa
uppi í rúmi.
Eigið þið uppáhalds bók? Aníta
elskar Disney bækurnar. Uppáhalds
bækur Agnesar eru Þín eigin þjóð-
saga eftir Ævar Þór Benediktsson
og Dúkka eftir Gerði Kristnýju.
Hvað ætlið þið að verða þegar
þið verðið stórar? Aníta vill vinna
með dýr. Agnes veit það ekki en það
verður eitthvað skemmtilegt.
Pennagrein
Samgöngukerfi okkar Íslendinga hef-
ur mikið látið á sjá síðustu ár og hafa
Samtök ferðaþjónustunnar lýst veru-
legum áhyggjum af bagalegu ástandi
samgöngumannvirkja, ekki síst veg-
anna. Ástandið er slæmt á landsvísu,
en þó eru landshlutarnir misvel settir
í samgöngumálum. Staðan er verst í
Norðvesturkjördæmi, einkum á Vest-
fjörðum og Vesturlandi.
Nýútkominn Hagvísir varpar skýru
ljósi á stöðu samgöngumála í Norð-
vesturkjördæmi, ekki síst á Vestur-
landi. Er þar byggt á staðtölum frá
Vegagerðinni og skoðanakönnun-
um meðal íbúa og fyrirtækja á svæð-
inu um umferð og ástand vega á Vest-
urlandi. Eins og vænta mátti staðfest-
ir Hagvísirinn að samgöngur hafa sí-
vaxandi þýðingu fyrir byggð og at-
vinnuþróun á Vesturlandi enda hefur
ferðamannafjölgun verið mikill und-
anfarin ár með þeim umferðarþunga
sem henni fylgir. Á sama tíma hefur
vegakerfinu hrakað, eins og íbúar og
fyritæki á Vesturlandi hafa áþreifan-
lega orðið vör við.
Norðvesturhornið og
Vesturland reka lestina
Meðal þess sem Hagvísirinn leiðir
í ljós er að Norðurvesturhornið og
Vesturland reka lestina þegar kem-
ur að fjölda vega með bundnu slit-
lagi. Á norðvestanverðu landinu er
um þriðjungur vega með bundið slit-
lag en Vesturland sem er í næstneðsta
sæti með bundið sllitlag á 39% vega
innan svæðis. Til samanburðar má
nefna að á Suðurnesjum voru 84%
vega með bundnu slitlagi árið 2014.
Þó hefur umferð frá 1980 aukist
hlutfallslega mest til Vesturlands frá
árinu 1980 í samanburði við Reykja-
nes og Suðurland. Hefur aukningin
orðið hlutfallslega mest til Borgar-
fjarðar, þá Snæfellsness og Akraness
en síst til Dalanna. Sem dæmi má
nefna að umferð ferðamanna jókst
um 40% við Svörtuloft á Snæfellsnesi
á milli áranna 2014 og 2015 en um
36% við Hraunfossa í Borgarfirði. Á
sama tíma jókst umferðin um 32% í
Haukadal við Gullfoss.
Aukinni umferð hefur fylgt vax-
andi slysatíðni. Fyrir utan höfuð-
borgarsvæðið og Suðurnes, þar sem
umferð er þyngst, var slysatíðni mest
á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norð-
urlandi vestra en minnst á Norður-
landi eystra og Suðurlandi. Innan
Vesturlands er slysatíðnin hins vegar
mest í Dalabyggð sem hefur fimmta
hættulegasta vegakerfið meðal ís-
lenskra sveitarfélaga samkvæmt sömu
gögnum.
Ekkert bólar á Sunda-
braut né framkvæmdum
við Hvalfjarðargöng
Þrátt fyrir þetta hefur Vegagerð-
in lagt minnst til Vesturlandsveg-
ar af þeim þremur aðalumferðaræð-
um sem eru til og frá höfuðborgar-
svæðinu þ.e. Vesturlandsvegi, Suð-
urlandsvegi og Reykjanesbraut. Er
það umhugsunarefni, ekki síst í ljósi
þess hver þróunin hefur verið á þess-
um vegum undanfarin ár. Breikk-
un nyrðri hluta Vesturlandsveg-
ar og tvöföldun Hvalfjarðarganga
eru löngu tímabærar framkvæmd-
ir, líkt og Sundabrautin í Reykjavík
sem þyrfti að verða að veruleika sem
fyrst og tengjast samgönguneti Vest-
urlands.
Í þeirri tillögu að Samgönguáætlun
sem nú liggur fyrir Alþingi, en óvíst
er hvort verður samþykkt fyrir þing-
lok, er ekki gert ráð fyrir fjárveiting-
um til Sundabrautar en rætt um að
„skoða kosti þess að gera Sundabraut
í einkaframkvæmd“. Hvalfjarðar-
göngin eru varla nefnd á nafn í áætl-
uninni, og má þó öllum ljóst vera að
þau bera varla meiri umferð en orð-
in er í núverandi ástandi. Samningur
Spalar og ríkisins fer að renna út, en
ekki eru greinanleg nein merki um
frekari framkvæmdir hvorki af hálfu
Spalar né hins opinbera ef marka má
fréttir að undanförnu. Það er vitan-
lega áhyggjuefni í ljósi þess sívaxandi
umferðarþunga sem nú þegar er far-
inn að ganga nærri helstu stofnbraut-
um að og frá höfuðborginni og um
Hvalfjarðargöng.
Ekkert bendir til annars en að
ferðamönnum eigi enn eftir að fjölga
á næstu árum og umferðin aukast að
sama skapi, ekki síst á Vesturlandi. Í
því ljósi hlýtur sú tillaga sem nú ligg-
ur fyrir að Samgönguáætlun að telj-
ast metnaðarlítið plagg. Það er sjálf-
stætt áhyggjuefni.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir,
alþingismaður.
Metnaðarlítil samgönguáætlun
Laugardaginn 20. ágúst næstkom-
andi fer fram á Reykhólum skák-
mót til minningar um Birnu E.
Norðdahl. Búast má við skemmti-
legu móti en meðal þeirra sem
hafa boðað komu sína eru Frið-
rik Ólafsson og Jóhann Hjartarson
en báðir eru þeir stórmeistarar en
Friðrik var fyrsti Íslendingurinn
til að ná þeim titli. Einnig munu
skákmeistararnir Guðlaug Þor-
steinsdóttir, Áslaug Kristinsdóttir
og Sigurlaug Friðþjófsdóttir tefla
á mótinu.
Landslið kvenna mun taka
þátt í mótinu áður en það held-
ur til keppni á Ólympíumótinu
í Bakú í Aserbaídsjan í septem-
ber. Landsliðið skipa áðurnefnd
Guðlaug Þorsteinsdóttir, Lenka
Ptacnikova, Tinna
Kristín Finnboga-
dóttir, Hrund
Hauksdóttir og
Verónika Stein-
unn Magnúsdótt-
ir. Einnig mun
l a n d s l i ð s e i n -
valdur kvenna,
Björn Ívar Karls-
son, taka þátt í
mótinu sem og
Jón L. Árnason
stórmeistari.
Birna E.
Norðdahl var
bæði skák-
meistari og
frumkvöðull í
kvennaskák á
Íslandi. Hún
lærði ung að
tefla og fyrsta
mótið sem hún
tók þátt í var
á Skákþingi
R e y k j a v í k u r
árið 1940, þá
21 árs göm-
ul, en í þá daga
vakti þátttaka kvenna í skákmót-
um athygli. Birna var einn stof-
enda kvennadeildar innan Tafl-
félags Reykjavíkur. Hún átti mjög
stóran þátt í því að íslenskar skák-
konur tóku þátt í sínu fyrsta Ól-
ympíuskákmóti en það var haldið
í Argentínu árið 1978 en Birna fór
á mótið og einnig á Ólympíuskák-
mótið sem haldið var í Möltu árið
1980, þá orðin langamma. Birna
var auk þess skákmeistari en hún
var Íslandsmeistari í tvígang; fyrst
árið 1976 og svo aftur árið 1980.
Í tilkynningu, sem aðstandend-
ur mótsins sendu frá sér segir að
ástæða þess að mótið verður hald-
ið á Reykhólum sé sú að Birna átti
heima þar síðasta áratug ævi sinn-
ar. bþb
Skákmót til minningar
um Birnu E. Norðdahl
Birna E. Norðdahl. Ljósm. hrokurinn.is