Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2017, Side 4

Skessuhorn - 04.10.2017, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 20174 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Af flökkufé, Móra og línubrjótum Á hverju hausti er réttað, bændur heimta fé af fjalli, draga í dilka og reka hóp sinn heim. Hvort sem það er tilviljun, eða eitthað annað sem veldur, vill svo skemmtilega til að núorðið er jafn oft boðað til kosninga og slát- urtíð lýkur. Líkt og féð af fjalli eru stjórnmálamenn því að tínast til sinna heimkynna hver af öðrum, misjafnlega vel framgengnir. Það er alltaf gagn- legt þegar þeir, líkt og annar fénaður, leitar í réttu dilkana og lendir ekki á flækingi. Þegar rétt er dregið er svo miklu líklegra að féð þrífist vel þegar það kemst á hús og þiggur gjöfina sína. Löngum hefur það nefnilega ver- ið svo að heimaríkir forystusauðir gefa aðkomufé ekkert svigrúm til að éta fylli sína á garðanum og eru einfaldlega vondir við óboðna gesti. Það er því jafn mikilvægt að í þessum réttum, sem við köllum kosningar, verði ekki misdregið. Á liðnum dögum hefur ríkt talsvert rót í hinu pólitíska réttahaldi. Einn réttarveggur brast til dæmi um daginn með þeim skelfilegu afleiðingum að hópur ódæls mislits fjár, lagði á skipulagðan flótta frá bænum Hriflu með illskeyttan forystuhrút í broddi fylkingar. Töldu menn að ofvöxtur hefði orsakað svakalegt hornahlaup sem var að þjaka hrútinn í höfðinu. Eða þá að þetta væri afleiðingar þess að veturinn áður hafði hann orðið að lúta í gras eftir blóðugan bardaga við annan sauð. Nú, bóndinn á Hriflu lét sér fjár- missinn í léttu rúmi liggja og sagði brosandi við stallbræður sína í réttinni að þetta fé hefði hvort eð er aldrei þrifist almennilega og því ákvað hann að gera ekkert til að ná því aftur í aðhald. „Farið hefur fé betra,“ sagði hann, rumdi og ræskti sig. Þetta fyrrum Hriflufé var um tíma nokkuð ráðvillt eftir útgönguna og átti erfitt með að finna sitt rétta lén. Ekki síst þegar í ljós kom að Björn bóndi í Eyju hafði séð flóttann fyrir, galopnað dyr sínar fyrir flóttafénu að norðan og boðið því inn í hlýjuna til að þakka fyrir sig. Ekki vildi það þó inn til Eyjajarlsins, lét eins og það væri ekki samboðið honum sökum laskaðs orðspors, og kaus frekar að leita húsaskjóls á nýbýlinu Hrafnabjörgum. Nú svo bar við í göngum og réttum í annarri sveit nokkru sunnar að þar náðist að hreinsmala afréttinn. Slíkt hefur aldrei gerst áður. Engeyjar- bændur voru til dæmis svo ánægðir með heimturnar og afurðirnar af sínu fé að þeir ákváðu að láta allar fullorðnu kindurnar lifa og slátra gimbrunum, jafnvel þótt þær væru álitlegar til ásetnings. Í héraði nokkru austar mun svo hinn harðsnúni hópur Þistilfjarðarfjárins einnig hafa komið vel fram geng- inn og því spáð að frjósemi stofnsins verði með besta móti. Að vísu eru menn dálítið tvístígandi um ásetning á gömlum kollóttum hrúti, Móra, sem talinn er geta orsakað skyldleikaræktun verði hann notaður oftar. Menn vilja þó ekki farga honum þar sem enginn skárri finnst af ósýktu svæði. Fáum sögum fer af vel lukkuðum stofnunum nýbýla í haust, en þó ekki útilokað um eitt. Herma fregnir að landlitlir kotbændur, sem flæmst hafa frá jörðum sínum vegna illdeilna við fyrrum nágranna sína og ungmenna- félaga, hyggi á stofnun félagsbús í Sælandi. Á langbylgjurás Sagnaþings heyrði því þó fleygt að helsta vandamálið væri að erfiðlega gangi að kaupa nógu stóran hóp af hreinræktuðu fé svo hægt væri að hefja búskap. Það fé þyrfti skilyrðislaust að vera laust við bresti sem gjarnan fylgi framandi stofnum flökkufjár, ekki dökkt á hörund eða skáeygt, heldur feitlagið, bæri sig vel og jarmaði einungis á íslensku. Á Sælandi hyggjast karlarnir og ráðs- kona þeirra þó ekki leggja árar í bát og hafa ráðið til lags við sig hagfræðing, prest, sýslumann og sérfræðing í sjóorrustum til að finna út hvernig koma megi hreinu flóttafé yfir sauðfjárveikivarnarlínur alla leið til Sælands, án þess að verða skotið. Magnús Magnússon. Leiðari Tvö verkalýðsfélög; Verkalýðs- félag Akraness og Verslunarmanna- félag Reykjavíkur, hafa ákveðið að boða í sameiningu til opins fundar í Háskólabíói í Reykjavík næstkom- andi laugardag klukkan 14:00. „Á fundinum verður fjallað um okur- vexti og verðtryggingu en þar munu flytja erindi, auk formanna VR og VLFA, fulltrúi frá Hagsmunasam- tökum heimilanna, Már Guðmunds- son seðlabankastjóri og Ólafur Mar- geirsson doktor í hagfræði. Einnig mun öllum framboðum til Alþingis verða gefinn kostur á að kynna stefnu og áherslur flokka sinna í vaxta- og verðtryggingarmálum,“ segir Vil- hjálmur Birgisson formaður VLFA. Í tilkynningu vegna fundarins seg- ir að hann sé meðal annars haldinn vegna níu ára afmælis hrunsins hér á landi og að rétt rúmar þrjár vikur verða þá til kosninga til Alþingis. Yf- irskrift fundarins verður: „Guð blessi heimilin - Okurvextir og verðtrygg- ing, mesta böl þjóðarinnar.“ mm Baráttufundurinn „Guð blessi heimilin“ haldinn í Háskólabíói Ragnar Ingólfsson og Vilhjálmur Birgisson boða til baráttufundar. Samsett mynd: miðjan.is Samkvæmt samantekt Hagstofunn- ar er vísitala neysluverðs í septem- ber á þessu ári 444,6 stig og hækkar um 0,14% frá fyrr mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðisliðar er hins vegar 383,7 stig og lækkar um 0,21% frá ágúst 2017. Þetta þýðir að lán heimila og fyrirtækja hækka vegna þess að húsnæði í landinu hefur hækkað í verði. Kostnaður vegna búsetu í eig- in húsnæði hækkar um 1,2% milli mánaða, samkvæmt samantekt Hagstofunnar, og hefur áhrif til hækkunar vísitölunnar um 0,24 prósentustig og föt og skór hækka um 6%. Flugfargjöld til útlanda lækka hins vegar um 18,8% milli mánaða og matur og drykkjarvörur um 1,3%. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,4% en vísitalan án húsnæðis- þáttarins hefur lækkað um 3,1%. „Ofbeldi gegn heimilum“ Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness er sá ein- staklingur sem harðast hefur gagn- rýnt þessa reikniaðferð stjórnvalda að hafa húsnæðisliðinn inn í verð- grunni neysluvísitölu. Segir hann Íslendinga vera einu þjóðina í Evrópu sem geri slíkt og eru það einkum skuldsett heimili og ein- staklingar sem tapa, en fjármags- eigendur græði. Vilhjálmur skrif- aði um þetta í síðustu viku: „Jæja, ofbeldið gegn íslenskum heimil- um og almenningi heldur áfram af fullum þunga og þetta ofbeldi er með fullri vitneskju þeirra sem starfa á Alþingi. Ég hef í mörg ár fjallað um það að það er ekki bara að við Íslendingar séum nánast eina þjóðin í heiminum sem þarf að þola það að skuldir almenn- ings og heimila séu verðtryggð- ar heldur þurfum við líka að þola það að verðbólgan hér á landi er mæld með öðrum hætti en í þeim löndum sem við viljum bera okk- ur saman við en hér er ég að tala um að við erum með svokallaðan húsnæðislið inni í mælingunni á hækkun á neysluvísitölunni,“ skrif- ar Vilhjálmur. mm Vísitala neysluverðs hækkar þar sem húsnæðisliðurinn er hafður með Í lok síðasta mánaðar fór formanna- fundur Krabbameinsfélags Íslands fram á Hótel Hamri við Borgarnes. Þangað mættu fulltrúar víðsvegar að af landinu. Á þessum fundi bera fé- lögin jafnan saman bækur sínar um helstu áherslumál, en samvinna og samstarf er félagsstarfinu til fram- dráttar. Gestur á fundinum var Þröst- ur Emilsson frá Almannaheillum. Hann velti upp spurningunni: „Skipt- ir þetta félagsstarf einhverju máli?“ Fram kom í erindi hans að svarið er tvímælalaust „já,“ að félagsstörf skipti máli. Krabbameinsfélagið og önn- ur félög hafa komið mörgum góðum málum á skrið og verið öflugur mál- svari ýmissa sjúklingahópa, veitt að- hald og beitt þrýstingi við stjórnvöld. Bleika slaufan til stuðnings Ráðgjafa- þjónustunni Eitt af því sem Krabbameinsfélögin hafa unnið að í sívaxandi mæli er ráð- gjöf og stuðningur. Ráðgjafaþjónusta KÍ er tíu ára á þessu ári og hefur fyr- ir löngu sannað gildi sitt. Þar starfar fagfólk svo sem hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar og sálfræðingar. Til Ráðgjafaþjónustunnar geta einstak- lingar og fjölskyldur þeirra leitað sér aðstoðar og upplýsinga, bæði fyrir og eftir greiningu og meðferð, sér að kostnaðarlausu. Nú hefur verið ákveðið að allur ágóði af söluátaki Bleiku slaufunnar nú í haust mun renna til Ráðgjafa- þjónustunnar. Krabbameinsfélag Borgarfjarðar tók þátt í fyrsta sölu- degi Bleiku slaufunnar föstudaginn 28. september og nældi slaufu í boð- unginn á Önnu Dröfn Sigurjónsdótt- ur hvunndagshetju. Þess má geta að í Skessuhorni í dag er ítarlegt viðtal við Önnu Dröfn um baráttuna henn- ar við illvígt krabbamein. Kallar eftir áhugasömum í stjórn Sigríður Helga Skúladóttir í Borg- arnesi hefur til fjölda ára verið í for- mennsku fyrir Krabbameinsfélag Borgarfjarðar. Hún tilkynnti á að- alfundi Krabbameinsfélags Borgar- fjarðar á síðasta ári að hún gæfi ekki kost á sér til áframhaldandi starfa. Fyrirhugað er að halda aðalfund þessa árs nú um miðjan nóvember og því leitar félagið út í samfélagið og kallar eftir þátttöku frá áhuga- sömu fólki sem er tilbúið að ganga til liðs við Krabbameinsfélagið og starfa í stjórn þess. „Kæru sveitung- ar; starf í krabbameinsfélagi sem og öðrum félögum er gefandi, fræðandi og skemmtilegt. Ég hvet ykkur til að styðja við bakið á félaginu og styrkja starfsemi þess,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn Krabbameinsfélags Borgar- fjarðar. mm Fréttir frá Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar Þegar söluátaki Bleiku slaufunnar var hrundið af stað fyrir helgi nældi Sigríður Helga Skúladóttir formaður Krabba- meinsfélags Borgarfjarðar einni af fyrstu slaufunum í barm Önnu Drafnar Sigurjónsdóttur hvunndagshetju. Anna Dröfn og Hjörleifur Stefánsson með börnin sín þrjú.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.