Heimsmynd - 01.10.1991, Page 34

Heimsmynd - 01.10.1991, Page 34
kaupa sér samloku en kom auga á flygilinn í búðarglugga og ákvað að láta slag standa og kaupa hann í leiðinni. Ur stofunni er opið inn í borðstofu sem er búin fallegum húsgögnum úr svörtum við í stíl við húsgögnin í stofunni. Þaðan er gengið niður í garðstofu þar sem stóru gasgrilli hefur verið komið fyrir og síðan út í garð. Á efri hæðinni eru svefnherbergi fjölskyldunnar. Á gólfi hjónaherbergisins hefur verið slegið upp tjaldi þar sem Hildur hefur komið sér fyrir með leikföngin sín. Öll eru herbergin rúmgóð að bandarískum sið og inn af hjónaherberginu er sér- stakt baðherbergi. Kjallarinn er stór og úr honum er einnig hægt að ganga út í garðinn. I einu horni kjallarans er að finna heilmikinn bar sem þau Grétar og Dóra segja þó að sé lítið notaður. Þar hafa þau einnig komið fyrir þrekhjóli og róðrar- tæki sem Grétar notar mikið. „Það er margt ólíkt með því að búa á íslandi og í Bandaríkj- unum. Sennilega var það erfiðast fyrir Margréti að skipta um umhverfi því hér þekkti hún engan nema okkur og málið var framandi. En hún var fljót að aðlagast og nú er hún hæst ánægð. Margrét lítur samt á ísland sem sitt heimaland og talar alltaf um að fara heim til íslands. Sú yngri þekkir hins vegar ekkert annað en að búa hér.“ Hildur er mjög skrafhreifin þótt hún sé ekki nema rúmlega tveggja ára og segir sögur af öllu milli himins og jarðar. Hún bendir síðan pent á að hún tali líka ensku og segir nokkur orð því til sönnunar. „Við höfum ekki áhyggjur af stelpunum hvað menntun þeirra varðar. Það er mikils virði fyrir börn að læra önnur tungumál auk þess sem bandarískir barnaskólar er mjög góðir,“ segir Grétar. Dóra bendir á að strax í upphafi skólagöngu Margrétar hafi verið lögð rík áhersla á það við foreldra að þeir gerðu börnum sín- um grein fyrir því að þau væru ekki í skólanum til að læra fyrir kennarana eða foreldrana heldur væru þau með náminu að leggja grunn að eigin framtíð. „Þessi afstaða til námsins skilar sér því börnin eru mjög metnaðarfull og áhugasöm um að standa sig,“ segir Grétar. „Hins vegar virðist heldur síga á ógæfuhliðina þegar lengra er komið, því námi á unglingsárum, í svokölluðum high school er oft æði ábótavant. Þá er gott að geta treyst á íslensku menntaskólana." Vinna Grétars sem sendiráðsritara er æði fjölbreytileg. „Ég sinni ýmiss konar upplýsingastarfsemi og síðan er heilmikil vinna tengd Sameinuðu þjóðunum, aðallega þó þann tíma ársins sem Allsherjar- þingið situr. Þann tíma stendur líka mesta samkvæmislífshrot- an en þá er fulltrúum sendiráðsins boðið í fjölmörg samkvæmi og móttökur.“ Dóra lifir hins vegar lífi hinnar hefðbundnu bandarísku húsmóður. „Það kann að hljóma ótrúlega en mik- ill hluti tímans fer í að aka fjölskyldumeðlimum milli staða. Ég ek Grétari á morgnana og sæki hann þegar lestin kemur á kvöldin. Síðan þarf að aka Margréti allt það sem hún þarf að fara því vegalengdir hér eru miklar og ekki ætlast til þess að börn ferðist upp á eigin spýtur. Þetta getur verið heilmikil vinna en ég er afskaplega ánægð og þakklát fyrir að geta verið heima með stelpunum, þótt auðvitað komi þeir tímar að ég verð þreytt og leið á því að vera „bara“ heima. Eins og flestar íslenskar konur hafði ég alltaf unnið úti.“ Dóra vann áður hjá aulýsingastofunni GBB sem nú heitir Hvítahúsið. Fjölskyldan hefur notað tímann til að ferðast um á austur- strönd Bandaríkjanna, allt frá Flórída og norður til Kanada. Þau hafa það hins vegar fyrir reglu að eyða sumarfríinu heima á Islandi. „Ég vil ekki að börnin mín missi af því að vera Is- lendingar og því að eiga einhvers staðar heima, því vissulega er sú hætta fyrir hendi þegar fjölskyldan flyst stað úr stað að börnin verði rótlaus,“ segir Grétar. „Helsti gallinn við starfið er það óöryggi sem fylgir því að vita ekki hvar maður kemur til með að búa næst. Sjálf höfum við í raun ekkert um það að segja hvert við verðum send næst eða hvenær.“ Þau hjónin eru engu að síður sammála um að þetta sé vel þess virði og að það verði gaman að flytja á nýjan stað. „Það væri til dæmis spenn- andi að kynnast því að búa í Moskvu,“ segja þau. „En það er hins vegar ómögulegt að vera að spá nokkru um hvað verður, við verðum bara að bíða og sjá hverju vindur fram.Við stefn- um hins vegar að því að vera komin heim aftur til Islands þeg- ar stelpurnar fara í menntaskóla." Grétar bregður á sig svuntu og grillar bandarískar stórsteik- ur í kvöldmatinn. Það er notaleg tilfinning að sitja við borð á þessu alíslenska heimili í úthverfi stórborgarinnar.Kvöldið líð- ur og fyrr en varir er kominn tími til að yfirgefa kyrrðina og halda til baka í skarkala heimsborgarinnar.D 0f+4/h64/h0/t Dóra og Hildur leita að skeljum á lítilli einkaströnd rétt við heimili þeirra, fjær má sjá Grétar og Margréti. 34 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.