Heimsmynd - 01.10.1991, Blaðsíða 45
Á þakinu þar sem þau eyða mörg-
um stundum. Á minni myndunum
er Úlafur Jóhann ásamt nafna
sfnum, vini og útgefenda Ólafi
Ragnarssyni og konu hans Elínu,
með móður sinni Önnu Jónsdóttur
og eiginkonu Önnu á skíðum í
Colorado.
og nýja tæknin, sem fyrirtækið er að þróa eigi ekki eftir að
gefa minna af sér. Kvikmyndatengdur hugbúnaður verður stór
hluti af nýrri vídeóleikjaframleiðslu Sony og því eyðir Ólafur
og starfslið hans miklum tíma í kvikmyndaverinu í Holly-
wood. Par fylgist hann með tökum og sér til þess að þær henti
ekki bara hvíta tjaldinu heldur einnig fyrirhugaðri notkun í
tölvuleiki. „Við skiptum okkur aldrei af leikstjórninni," segir
hann. En undanfarið hefur hann fylgst grannt með tökum á
Hook í leikstjórn Stevens Spielberg. Hook kostar Columbia
60 milljónir dala. Myndin fjallar um aldinn Peter Pan, sem
Robin Williams leikur. Dustin Hoffman er í hlutverki kapt-
eins Hook og Julia Roberts leikur Tinkerbell. Myndin verður
frumsýnd fyrir jól.
Það var Ólafur sem náði samningum við Spielberg eftir að
Universal kvikmyndafélagið hafði mikið gert til að reyna að
ná honum. Undanfarna mánuði hefur hann kynnst nokkrum
helstu stjörnum heims, bæði í kvikmyndum og á tónlistarsvið-
inu. En hann er lítið uppnuminn yfir því. „Hollywood er sér-
stakur blettur," segir hann brosandi. „Sérhver leikari er í raun
heilt fyrirtæki út af fyrir sig. Mér hefur samið ágætlega við
þetta fólk enda læt ég lögfræðinga um að rífast við það um
peningamálin. Petta eru flókin viðskipti og ganga út á það að
mönnum semji. Ég náði sambandi við Steven Spielberg með
því að setjast niður í sviðsmyndinni við tökurnar á Hook og
spjalla við hann. Það sem Spielberg segist leggja áherslu á í
þessari mynd er að fólk megi aldrei gleyma barninu í sjálfu sér.“
Þegar ég spyr hann um fleiri stórstjörnur segist hann vera
lítið fyrir persónudýrkun. Ég hafði heyrt að hin fagra Julia
Roberts hafi valdið honum vonbrigðum. Hann brosir. „Varstu
búin að frétta það. Æ, það er ekki að marka. Ég hitti hana
þegar hún var illa fyrir kölluð. Það var nýbúið að klippa á
henni hárið og hún var eitthvað óánægð með útkomuna. Ann-
ars held ég að hún sé svolítið þunglynd stelpan en það verður
gaman að fylgjast með henni í framtíðinni. Hún er enn svo
kornung, aðeins 23 ára. Dustin Hoffman kom hins vegar á
óvart. Hann hefur engan áhuga á sölumennsku, vill ekki
koma nálægt henni en talar mikið um bækur. Hann kom
hlaupandi á eftir mér um daginn og spurði hvort ég væri búinn
að lesa bókadóm um einhvern nýjan Pinter, sem kominn væri
fram á sjónarsviðið. Hann fylgist mjög vel með. Arnold
Schwartzenegger er alger andstaða Hoffmans. Hann vill
skipta sér af öllum smáatriðum varðandi sölumennsku sem
tengist myndum hans. Þegar ég var í Hollywood í síðustu viku
kom Arnaldur akandi á jeppa sem líktist fremur skriðdreka en
var þó með blæju. Hann hefur ekki klikkað í mörgum mynd-
um í röð og fer því hikstalaust fram á 15 milljónir dollara fyrir-
fram. Hann er ótrúlegur viðskiptagarpur, stór og mikill en
góður húmoristi. Það kemur mér á óvart hvað sumar þessar
stjörnur eru ólíkar ímynd sinni þegar maður hittir þær í eigin
persónu. Michael Jackson er til dæmis afar feiminn en snjall
og veit hvað hann vill. Auðvitað hefði flest þetta fólk ekki náð
langt ef það væri ekki greint líka.“
„Reglan," segir hann, „er að ræða aldrei peningamál við
þetta fólk. Spielberg er ótrúlegur vinnuþjarkur en þeir eru all-
ir harðir bisnessmenn. Við látum lögfræðinga um að semja því
samningar í Hollywood eru til þess gerðir að fólk geti enda-
laust haldið áfram að þrefa um þá. En glamorinn í kringum
þetta Hollywoodlið er mikill. Þetta er bransi þar sem menn
þurfa að reigja sig og fólk fer mikið út á lífið til að sýna sig og
sjá aðra. Þarna eru haldin rosalegri partý en annars staðar
tíðkast. Ég var viðstaddur eitt nýlega sem haldið var af for-
stjóra Tri Star og hafði svið í Columbia kvikmyndaverinu ver-
ið skreytt með miklum látum.“
Hann segir að peningar skipti sig engu máli. „Þegar ég er
kominn heim til mín þá er ég enginn bisnesskall. í viðskiptun-
um gengur hins vegar allt út á peninga og mér finnast þessar
upphæðir stundum jafn fáránlegar og stærðir í eðlisfræðinni
þar sem er talað um stærðir atóma og fjarlægð til stjarnanna.
Þær upphæðir sem við erum stundum að fást við eru svo
stjarnfræðilega háar.“
HEIMSMYND 45