Heimsmynd - 01.10.1991, Side 59
að þetta er ekki í fyrsta sinn sem Palm Beach er sögusvið
kvennaflangs Kennedyanna. Þar hófst ástarsamband ættföð-
urins Joe Kennedy við Hollywoodleikkonuna Gloriu Swan-
son.
Umrætt kvöld, 30. mars síðastliðinn, sátu þeir Ted, Patrick
og Willie að drykkju á Au bar. Þar hittu þeir konuna sem nú
hefur kært Willie Smith fyrir nauðgun. Hún hafði farið með
vinkonu sinni, Anne Mercer, á barinn og gefið sig á tal við
þremenningana. Hvað þeim fór á milli liggur ekki ljóst fyrir
en vitað er að nokkrum sinnum lá við að uppúr syði. Anne er
sögð hafa lýst því yfir við Teddy að sonur hans væri leiðinleg-
ur og bætti síðan við: „Með gen sem þessi er öruggt að Kenn-
edyveldið er búið að vera.“ Öldungadeildarþingmaðurinn
brást að vonum illa við en öldurnar lægði og hópurinn sat
áfram við drykkju. Að sögn ákærandans ók hún Willie á setrið
hálf fjögur þessa nótt. Þegar þangað var komið gengu þau
saman spottakorn meðfram ströndinni. Willie ákvað þá
skyndilega að fá sér sundsprett, vatt sér úr fötunum og óð út í
sjó. Þegar hér var komið fannst konunni að eigin sögn tími til
kominn að kveðja og halda heim á leið. Eitthvað leist Willie
illa á þá hugmynd og elti hana þvert yfir lóðina. Þegar hún var
komin að sundlauginni náði hann henni og nauðgaði. Willie
hefur hins vegar þráfaldlega neitað þessum ásökunum og segir
sögu konunnar uppspuna frá rótum.
Það sem ef til vill hefur valdið hvað mestum óhug meðal
bandarísks almennings eru hæg viðbrögð lögreglunnar á Palm
Beach. Það var ekki fyrr en að næstum tvær vikur voru liðnar
frá því að glæpurinn á að hafa átt sér stað að lið lögreglu hélt
til ættarsetursins til að leita að hugsanlegum sönnunargögn-
um. Mörgum hefur þótt afstaða lögregluyfirvalda benda til
þess að reynt hafi verið að þagga málið niður.
Málið tók fljótlega á sig ljóta mynd og snerist upp í skítkast
á báða bóga. Skömmu eftir að Willie hafði verið kærður réð
lögmaður hans einkaspæjara til að grafast fyrir um fortíð
ákærandans í því skyni reyna að sverta mannorð hennar, fjöl-
skyldu og vina. Lögfræðingar konunnar brugðust hinir verstu
við og sökuðu verjandann um að reyna markvisst að klekkja á
hugsanlegum vitnum. Ekki leið heldur á löngu þar til saga
þess efnis að sést hefði til ákærandans, þar sem hún var að
kyssa Willie bless umrædda
nótt, tók að kvisast út. Það
þarf varla að taka fram að ef
sú saga yrði tekin trúanleg
myndi hún skaða málstað
ákærandans mjög. Þegar hér
var komið sögu höfðu nokkr-
ar konur sem kynnst höfðu
Willie haft samband við fjöl-
miðla og sögðu farir sínar
ekki sléttar. The National
Enquirer birti viðtal við eina
þessara kvenna, fyrrverandi
samstúdent Willies í læknis-
fræði, þar sem hún sakar
hann um að hafa nauðgað sér
á stefnumóti. Þegar lögfræð-
ingur ákærða var inntur eftir
sannleiksgildi sögunnar, neit-
aði hann að svara. Saksóknari
hefur nú lagt fram 76 síðna
skýrslu þriggja kvenna sem segjast hafa orðið fyrir kynferðis-
legri áreitni af hálfu Willies. Það er enn ekki ljóst hversu mik-
ilvægur þessi vitnisburður verður talinn eða hvort sannað þyk-
ir að Willie sé sekur um að hafa nauðgað konunni þessa nótt á
Palm Beach. En víst er að verulega er tekið að syrta í álinn
fyrir Willie og eftir að vitnisburður kvennanna þriggja var
lagður fram í málinu ku Jacqueline, ekkja J.F. Kennedys,
hafa lagt bann við því að sonur hennar J.F. yngri umgangist
hinn umdeilda frænda sinn. Réttarhöldin áttu upphaflega að
hefjast 5. ágúst en hefur eins og fyrr segir verið frestað fram í
byrjun næsta árs vegna þess að dómarinn taldi vafasamt að
kviðdómur gæti fellt hlutlægan dóm vegna æsifrétta fjölmiðla
af málinu. Hver sem niðurstaða málsins kann að verða er víst
að öll sú umfjöllun sem það hefur fengið í fjölmiðlum mun
enn einu sinni draga athyglina að Kennedyættinni og fallandi
stjörnu hennar.
Er ljóminn að mást af þessari dáðu, nánast eðalbornu fjöl-
skyldu bandarísku þjóðarinnar, eða eru engin takmörk fyrir
Karolína skoðar fætur nýfædds bróður
síns, Johns yngri.
©
Monroe var djúpt sokkin í áfengis- og eit-
urlyfjaneyslu og sennilegt að forsetinn
hafi óttast að samband þeirra kynni að
verða honum fjötur um fót.
©
Jackie forðar sár eftir að byssukúla hæfði
mann hennar.
©
Lee Harvey Oswald sem talið er fullvíst
að hafi banað forsetanum.
©
Ekkjan, Bobby, Teddy og börnin tvö við
útför forsetans. Sonurinn, John yngri,
heilsar kistu föður síns að hermannasiö.
til þess að rejnit hafi verið að þagga málið niður.