Heimsmynd - 01.10.1991, Page 70
í þessum athugasemdum felst vissulega sannleikskjarni -
karlar þurfa á konum að halda og konur á körlum. Kynin eru
ekki eins, eiga ekki að vera það og verða það sjálfsagt aldrei.
En mismunandi eiginleikar og einkenni réttlæta ekki þann
ójöfnuð sem blasir við öllu sjáandi fólki. Og auðvitað eru kon-
ur ekki spegilmyndir karla í daglegu lífi sínu og líta ekki á sig
sem slíkar en þær eru það fyrir innri sjónum karla. Hversu
ófullkomnir og uppburðarlitlir sem þeir eru þá hafa þeir þó
fengið í vöggugjöf hugmyndina um að þeir hafi a.m.k. yfir-
burði yfir helming jarðarbúa. Allar konur hafa margsinnis
rekist á þessa hugmynd hjá körlum. Ég skal taka nokkur dæmi
af sjálfri mér.
DÆM11:
Einu sinni sem oftar var ég
stödd á fundi ásamt all-
nokkrum hópi kvenna og
karla sem höfðu sameiginlegan áhuga á tilteknu málefni. Allt
bjó þetta fólk yfir talsverðri vitneskju um málið og var ekki að
koma að því í fyrsta sinn. Undir
lok fundarins þurfti að skipa
vinnuhóp sem átti að leggja lín-
urnar um starf þeirra samtaka
sem að fundinum stóðu. Ákveðið
var að hafa hópinn 7 manna. Þeg-
ar kom að því að tilnefna í hópinn
flugu fjölmörg karlmannsnöfn um
salinn en minna fór fyrir kven-
mannsnöfnunum. Karlar stinga
nefnilega bara upp á körlum en
konur bæði upp á konum og körl-
um. (Petta gerist líka í prófkjör-
unum; karlar kjósa bara karla og
leyfa kannski einni konu að fljóta
með sem sýnishorni af tegund-
inni, en konur kjósa bæði konur
og karla. Konur fara flatt á
lýðræðinu vegna þess að vitund manna er ekki lýðræðisleg.) Á
það var bent á fundinum að þetta gengi ekki og að sjálfsögðu
féllust karlarnir umsvifalaust á það enda eru þeir allir jákvæð-
ir og vinsamlegir í garð kvenna. Petta eru með öðrum orðum
bestu karlar. F>eir settu því upp sanngjarnan svip og sögðu að
það væri ekki nema réttlætismál að konur ættu 2-3 fulltrúa í 7
manna nefnd og báðu þeir okkur konurnar nú endilega að til-
nefna fulltrúa okkar.
En hvernig dettur góðum körlum í hug að það sé á þeirra
valdi og í þeirra verkahring að úthluta konum tilteknum sæt-
um eða gæðum? Hvernig dettur þeim í hug að hlutur þeirra
sjálfra sé sjálfgefinn? Hvernig dettur þeim í hug að konur séu
bara fulltrúar kvenna en ekki bænda, verkafólks, landsbyggð-
ar, hugmyndastrauma o.s.frv.? Af hverju dettur þeim ekki í
hug að segja að það sé sanngjarnt að í 7 manna nefnd eigi
karlar 2-3 fulltrúa? Af hverju eru þeir svona sannfærðir um
eigið ágæti? Af hverju eru þeir svona sjálfsöruggir gagnvart
konum - jafnvel þó þær hafi brotist áfram af eigin rammleik
en þeim hafi verið ýtt upp í embætti í krafti flokkshollustu
fremur en hæfileika?
Svarið er einfalt - það gerir vöggugjöfin, erfðagóssið!
fulltrúi og sat á skrifstofu Kvennalistans á tali við eina af þing-
konum samtakanna. Allt í einu er hurðinni hrundið upp og
þrír sviphreinir og glaðbeittir menntaskólastrákar koma með
slætti inn úr dyrunum, hlamma sér formálalaust við hlið okkar
og segja digurbarkalega: „Jæja stelpur, hvað eruð þið eigin-
lega að hugsa með þessum Kvennalista? Er þetta ekki tíma-
skekkja og dauðadæmt fyrirbæri?“ - Það þarf tæpast að fjöl-
yrða um að þeir sjálfir voru lifandi vitnisburður um þörfina á
Kvennalista. - Á örskotsstundu flaug í gegnum huga mér
hvort ég ætti til nægilega villt ímyndunarafl til að sjá fyrir mér
þrjár menntaskólastúlkur sem kæmu á kontór Sjálfstæðis-
flokksins, sneru sér að Davíð Oddssyni og Þorsteini Pálssyni
og segðu við þá: „Jæja strákar, hvað eruð þið að hugsa? Er
Sjálfstæðisflokkurinn ekki úr takt við tímann og dauðanum
merktur?“ ímyndunarafl mitt reyndist of bundið af reynslu og
raunveruleika til að ég gæti sett mér slíkan atburð fyrir hug-
skotssjónir.
En litlu menntaskólastrákarnir voru pólitískt þenkjandi,
Af hverju dettur þeim ekki í hug að segja að það sé
sanngjarnt að í sjö manna nefnd eigi karlar tvo til
þrjá fulltrúa? Svarið er einfalt...
höfðu höndlað sannleikann og þó þeir stæðu varla fram úr
hnefa og væri ekki enn farin að vaxa grön, voru þeir sann-
færðir um að þeir gætu tekið kellingarnar í Kvennalistanum í
bakaríið. Nú má ekki skilja orð mín sem svo að þetta hafi ekki
verið hjartahreinir og vel meinandi drengir. Öðru nær - en
þeir báru merki kyns síns. Þeir höfðu hlotið hugmyndina um
yfirburði í vöggugjöf og lífið hafði styrkt hana fremur en hitt.
Hún var orðin samgróin fasi þeirra og viðmóti enda eru þessir
strákar sjálfsagt til stórræðanna á hinum pólitíska leikvelli
framtíðarinnar. Þeir gengu inn á skrifstofu Kvennalistans í
þeirri fullvissu að þeir hefðu „yfirburði yfir helming við-
staddra“.
DÆMI 3:
DÆMI 2:
Á skrifstofur Kvennalist-
ans er alltaf stöðugur
straumur af framhalds-
skólanemum - stelpum og strákum - sem eru að safna sér efni
í ritgerðir um íslensk stjórnmál og stjórnmálaflokka. Stelpurn-
ar eru gjarnan frekar feimnar og óöruggar af því að þær
þekkja okkur ekki, finnst við vera fjarlægar og þær eru kann-
ski svolítið smeykar við okkur af því að við erum komnar með
annan fótinn þar sem valdið er. Valdið hræðir - oft um of.
Þessu er líkt farið með suma stráka en strákar eiga líka til
hegðun sem er óþekkt hjá stelpunum.
Eitt atvik er mér sérstaklega minnisstætt. Ég var þá borgar-
Fyrir nokkrum árum var
ég stödd í bakaríi í mið-
borg Reykjavíkur og
þegar afgreiðslukonan - sem var miðaldra hæglætiskona - var
að ljúka við að afgreiða mig snarast fjórir strákar á aldrinum
10-12 ára inn í bakaríið með miklum boðaföllum. Þeir voru
hressir og greinilega búnir að hita sig upp í einhvern galgopa-
skap sem hafði tekið af þeim öll völd. Óðu þeir um verslun-
ina, sögðust ætla að fá þetta og hitt, bitu í það sem þeir fengu,
sögðu það ýmist vont og þeir vildu ekki kaupa það eða héldu
því fram við afgreiðslukonuna að einhver hefði verið búinn að
bíta í það á undan þeim og hálfétin brauð vildu þeir ekki
borga. Skeyttu þeir ekkert um það þó einhver kvensnift væri í
bakaríinu og því vitni að framferði þeirra og því síður snerti
það þá á nokkurn hátt þó afgreiðslukonan væri orðin örvænt-
ingarfull og gráti næst yfir ógnandi framkomu þeirra.
Þessir strákar voru engir undirmálsstrákar. Hrekkurinn og
samspilið meðan á honum stóð bar því vitni að þarna voru
greindir strákar á ferð. Þeir voru líka myndarlegir, snyrtilegir
og vel klæddir og báru því öll merki ytri velmegunar. Én
hvernig datt þessum krflum í hug að taka upp á þessum
70 HEIMSMYND
HEIMSM917-