Heimsmynd - 01.10.1991, Síða 71
hrekk? Hvaðan kom þeim eiginlega sú hugmynd að þeir gætu
ógnað konum með hegðun sinni? Þeir voru bara 10-12 ára!
Var þetta fyrsta persónulega reynsla þeirra af varnarleysi
kvenna við aðstæður sem þessar eða voru þetta drengir með
reynslu?
Mvernig sem því er háttað þá fengu þeir staðfestingu
á því í bakaríinu þennan dag að karlmennskunni
fylgir vald og yfirburðir. Ég efast hins vegar um að
þessi staðfesting hafi gert þessi litlu grey nokkuð
hamingjusamari. Það er óþægilegt að þurfa að bera
nagandi valdahvöt í brjósti og vera bara 10 ára.
Sumir karlmenn næra þessa hvöt og leita sífellt
eftir staðfestingu á valdi sínu og yfirburðum. Þeir
gera það ýmist með því að beita annað fólk - ekki
síst konur - andlegu ofbeldi eða líkamlegu. Slíkir
valdbeitingarmenn eru blettur á karlkyninu og
konur hafa lengi spurt sig hvernig á því standi að
karlmenn taki þessi mál ekki í sínar eigin hendur og geri eitt-
hvað í því að minnka blettinn. Konur eru því vanastar að
þurfa að gera slíkt þegar kynsystur þeirra eiga í hlut og þær
treysta ekki á utanaðkomandi aðgerðir. En þegar betur er að
gáð liggur svarið við spurningu kvenna í augum uppi. Karlar
telja sig væntanlega gera talsvert í málinu með því að beita
lögum og ríkisvaldi gegn þeim sem brjóta gegn lögmálum
karlkynsins. Sjálfshjálpin er aðferð hinna valdalausu og þar af
leiðandi ekki aðferð venjulegra vestrænna karla.
En fyrst yfirburðarhugmyndin og sjálfsöryggið er vöggugjöf
karla, eiga konur sér þá nokkurrar viðreisnar von? Erum við
þá ekki dæmdar til að tapa? Nei, því fer víðs fjarri af þeirri
einföldu ástæðu að hamingja manna ræðst ekki af erfðum
heldur því sem þeir ávinna sér á lífsleiðinni. Heimskuleg
sjálfsánægja og vanabundin hugsun plagar gjarnan þá sem búa
við of mikið öryggi og of litla ögrun. Fyrir þeim körlum, sem
ríghalda sér í þá blekkingu að þeir séu tvöfalt stærri en konur,
fer gjarnan eins og steinunum sem sögðu fullir stolts og sjálf-
umgleði: „Hér fljótum við eplin.“
Karlar hafa enga yfirburði yfir konur og konur eru ekki
spegilmyndir karla. Kynin eru ólík en annað er ekki betra en
hitt. Karlar og konur eru ekki tveir andstæðir pólar enda eru
hvorki allar konur eins, né allir karlar. Konur eiga vissulega
sameiginlegan arf og reynslu á ýmsum sviðum en þær eru
engu að síður eins mismunandi og þær eru margar. Það sama
á við um karla. í árþúsundir hefur látlaus samanburður á
andstæðum tröllriðið allri hugsun á Vesturlöndum. Enginn
getur haft skoðun á því hvað er vont nema vita hvað er gott,
til að átta sig á hinu sérstaka þarf að þekkja hið almenna, til
að skilja andann verður efnið að vera á hreinu, og til að geta
skilgreint konur þarf að þekkja karla. Það versta við þessa tví-
hyggju er að hún byggist á að annað sé hinu æðra. Hið góða er
æðra hinu vonda, hið almenna æðra hinu sérstaka, andinn
æðri efninu (þetta er reyndar að snúast við á síðustu og verstu
tímum) og karlar æðri konum. Tvíhyggjann er í eðli sínu and-
stæð öllum jöfnuði og jafnrétti því hún byggist á því að velja
og hafna, taka eitt fram yfir annað. Og því miður kunnum við
tæpast að hugsa á öðrum nótum - hvorki konur né karlar.
En ef við viljum losna úr viðjum tvíhyggjunnar er hugar-
farsbylting nauðsynleg. Við þurfum nýja tegund af hugsun
sem viðurkennir sérstöðu hópa og einstaklinga og lítur á hana
sem forsendu jafnréttis. Það segir sig auðvitað sjálft að ef allir
væru eins þá þyrfti tæpast að krefjast jafnréttis. Sérstaðan á
ekki að útiloka að jafnrétti verði komið á og jafnréttið á ekki
að fela í sér afnám sérstöðunnar. Aðeins með nýrri hugsun
næst það jafnvægi sem er forsenda þess að fólk geti lagt raun-
sætt mat á sjálft sig sem einstaklinga og komið fram hvert við
annað af fullkominni reisn og með gagnkvæmri virðingu.
En elsku karlar - hættið að gera ykkur svona dælt við kon-
ur! Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað slík framkoma leiðir til
fjölskrúðugra spássíuathugasemda í hugum kvenna. Reynið
bara að vera skikkanlegir - þá hefst þetta allt.D
Barnángen Sérsápa.
yið umhirðu
viðkvæmrar húðar.
Barnángen sérsápa er sérstaklega gerð fyrir við-
kvæma húð.
Sápan hentar því vel við umönnun ungbarna, til
umhirðu viðkvæmra staða á líkamanum og fyrir
þá sem hafa exem eða sprungna og þurra húð.
Sápan hentar einnig vel til hárþvottar.
Bamángen sérsápa er þróuð í samstarfi við
sænska húðsjúkdómalækna. Hún hefur lágt PH
gildi (5,5), sem varnar því að eðalilegt sýrustig
húðarinnar raskist við þvott. Hið virka sápuefni
er Isetionat, sem er með mildustu sápuefnum
sem til eru. Sápan veldur því hvorki exemi né
húðertingu.
Barnangen sérsápa fæst í öllum
apótekum, Hagkaup og verslunum á
landsbygðinni.
Barnangen
SPECIAL
TVÁL
Förkánslig
och irritt'rad hud.
milt parfymerad
Special sápa
Erfljótandi sápa, sérstaklega
gerð fyrir þá sem hafa exefó.
sprungna, þurra og
víðkvæmahúð. ,. :
Ath.: Inniheidur milt ilmefni ?
en er án alira iitarefna.
Sýrustig p.H. 5,5. , ..
Specialtválið er jafnt fyrir hue
semhár.
Barnángen
SPECIAL
TVÁL
Förkánslig
och irriterad hud.
OPARFYMERAD
Special sápa
: Er fljótandi sápa. sérstakiegsj
Serð fyrir þá sem hafa exeni |
| sprungna, þurra og viökvæP j
j húö.
1 An allra ilm- og litarefna. |
1 Sýrustig p.H. 5,5. u,
j Specialtválið er jafnt fyrir
j: sem hár.
Hrísalundi 1a • 602 Akureyri • S 96-22949